Heima er bezt - 01.02.1952, Page 19

Heima er bezt - 01.02.1952, Page 19
Nr. 2 Heima er bezt 51 út ýsunni, en það vildi formað- ur ekki heyra nefnt. En skipið var of þungt og varði sig illa fyr- ir áföllum. Var ég þá kominn á fremsta hlunn með að fleygja út ýsunni í trássi við formann- inn, ef með þyrfti. Allir skip- verjar hrúguðust fram í stafn, til að gá að skipsljósinu. Varð ég því að taka að mér austurinn. Fór ég þá að slá upp á glensi við formanninn, en andlit hans var sem mótað í stein og fékk ég hann ekki einu sinni til að brosa, þó að hann skipti sjaldan um ham, er illa viðraði, og sauð á keipum. Ég var ekki að hugsa um dauðann, því ég hafði þá trú, að við myndum komast lífs af úr þessum sjávarháska. Það var komin stjarfakennd deyfð yfir félaga mína, enda var ekki frýnilegt umhverfis, bylur, hræv- areldar og stórsjór. Er við höfð- um siglt gegnum þessi ósköp um stund, sáum við skipsljós. Birti nú yfir andlitum félaga minna og varð uppi fótur og fit á skip- inu okkar. Vildi okkur það til happs, að við höfðum vindhæð með okkur. Var þó með naum- indum að við náðum í hekk skútunnar, og var skipshöfnin tilbúin að taka á móti okkur. Brotnaði báturinn okkar strax við skipshliðina. Freistaðist ég til að bjarga línunni og fram- siglunni. Fór ég síðastur upp á skipið, og af því að ólag reið yf- ir bátsflakið, var ég rétt farinn í hafið, en gat læst klónum í lunningu skútunnar og hélt þar dauðahaldi, meðan verið var að draga 2 félaga mína, sem eftir voru í bátnum, upp á skipið. En meðan ég dinglaði þarna eins og klukkudingull, fékk ég tvö högg af bátsflakinu, kom annað á herðar mér, en hitt á fótlegg- inn. Ég neytti minnar siðustu orku og tókst að halda mér þarna, þar til ég var dreginn upp á skipið. Þegar undir þiljur kom, var farið að athuga meiðsli mín og kom mér ekki annað til hugar en að fótleggurinn væri brotinn, eftir þrautunum, sem ég hafði í honum. En svo var samt ekki, en var illa marinn frá hné og niður á ökkla. Skipverjar gengu úr kojum sínum fyrir okkur. Var hlúð að okkur eftir föngum og búið um meiðsli mín. Um nóttina klukk- an 4 fór að draga úr veðrinu. Var þá farið að sigla og báts- flakið okkar skorið aftan úr. Þá var hann snúinn til sunnan átt- ar með bezta veðri. Okkur var skipað upp í Garði. Komust all- ir heim nema ég, vegna fóta- meins. Vissi ég ekki fyrr til en ljósmóðirin þarna á staðnum var komin til mín með fulla fötu af sýru og sárabíld, og kroppaði upp úr sárinu. Svo batt hún blautu sýrubindi um fótinn, sem var svo hryllilega ljótur, að mér hnykkti við. Hann var alsettur bólguhnútum og svo gildur, að það varð að rista brækurnar ut- an af honum. Daginn eftir kom maður með hest að sækja mig. Eftir að ég kom heim, heyrði ég sagt, að gömlu hjónin hefðu verið lögst fyrir í sorg. Það var búið að senda í allar áttir og hvergi spurðist til okkar. Var því talið fullvíst, að við hefðum farizt. Hefði það orðið mikill missir fyr- ir gömlu hjónin, ef þau hefðu misst þarna 4 syni sína og upp- eldisson. Ætti það ekki að eiga sér stað, að mörg skyldmenni væru á sama skipinu. En því mið- ur á það sér alltof oft stað, og oft heyrir maður það í blöðum og útvarpi, ef bátur hefur far- izt, að með honum hafi farizt tveir eða fleiri bræður. Skipið, sem bjargaði okkur, Stóri-Geir, var eign Geirs Zoega, kaupmanns í Reykjavík. — Þá var mikil útgerð hjá honum. Þrem dögum eftir þessar hrak- farir fór ég að róa aftur. Haltr- aði ég við mjóan staf niður að skipinu. Fyrst um sinn fékk ég arniku hjá lækninum, en hún bætti mig lítið. Svo kom kona Hákonar í Stafnesi, Guðrún að nafni, með skegghníf og blóð- tökuhorn og bruggaði hún krabbafeiti. Kvoppaði hún mig Magnús Jóhannsson, Hafn- arnesi skrifar framhald af endurminningum Sigur- hergs Þorbergssonar, en fyrri greinin birtist i nóv- emberblaðinu. v_________________________ vel og vandlega og sagði, að það væri munur að eiga við mig eða piltana sína, sem skræktu af hverju smáræði, þó að það væri ekki nema smá bóla. Síðan mak- aði hún allan fótinn úr þessari indælu krabbafeiti, sem angaði eins og dýrasta ilmvatn. Lét hún mig hafa það sem eftir var af þessu græðandi smyrsli og bætti það mér furðu fljótt, en ég hafði lengi dauðan blett á mjóaleggn- um á eftir. Þó smákom líf í hann eftir nokkur ár. Þetta var árið 1902. Um vorið fór ég til Einars Sveinbjörnsson- ar í Laufgerði. Þá veiktist ég af lungnabólgu. Vann ég samt með þessu. Ég var verstur á nóttunni, en Thoroddsen læknir í Kefla- vík lét mig hafa tvö smáglös af meðulum, annað til inntöku, en hitt til áburðar. Dugðu þau mér í viku og var ég þá orðinn al- bata. Árið 1903 felldi stúlka ástar- hug til mín, vinnukona í Aust- vaðsholti, þessi sama og vann með mér í skarlatsveikinni, án þess þó að ég bæri beint ástar- hug til hennar, því að ég hafði enga stúlku augum litið, sem ég þráði að bindast hinum eilífu böndum. Af því þetta var góður kvenkostur, gat ég ekki fengið mig til að synja svona góðu boði og trúlofaðist henni — og þó leynilega. Hafði því enginn hug- mynd um samdrátt okkar lang- an tíma. Samt kom að því, að það varð opinbert. Stúlkan hét Guðbjörg Pálsdóttir, ættuð af Rangárvöllum. Einn góðan veð- urdag fórum við að tilkynna föð- ur hennar trúlofun okkar. Var hann þá húsmaður hjá Þorsteini á Hrafntóftum og hafði þar tölu- vert af kindum. Heyjaði hann handa þeim á hólma úti í Rangá. Tók hann okkur vel og gaf sam- þykki sitt til ráðahagsins. Einn- ig kaus hann, að við tækjum við búi hans, er fram liðu stundir, og tök væru á að fá gott jarð- næði. Þar sem við vorum fremur eignalítil, þótti mér þetta kær- komin góðvild. Hugðist ég líka launa honum 'hana í ellinni, ef ég lifði lengi og auðnaðist að komast í sæmileg efni. Guðbjörg var þó efnaðri en ég. Átti hún 300 krónur. Ég held, að mínar eignir hafi verið minni. Þá var

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.