Heima er bezt - 01.02.1952, Síða 22

Heima er bezt - 01.02.1952, Síða 22
54 Heima er bezt Nr. 2 lit með piltinn, þar sem ígerðin stóð svo djúpt. Þoldi hún því enga bið. Pilturinn spurði mig hvort ég yæri fáanlegur til að stinga á í- gerðinni. Ég vissi ekki gerla hvað gera skyldi. Ég bar ekkert skynbragð á læknisfræði og var hálfhræddur um, að mér myndi mistakast við þetta. Samt ákvað ég að reyna þetta. Fékk ég svo léðan Eskilstúna hníf, því ég hafði heyrt, að í þeim væri gott stál. Var þetta tví- blaðasjálfskeiðungur. Brýndi ég minna blaðið vel og vandlega, sauð það í vellandi vatni og gekk síðan inn til piltsins. Fletti ég síðan ofan af honum sænginni og tók að rannsaka í- gerðina, sem var mjög svo ill- kynja. Datt mér í hug, að ekki myndi sama hvernig skurður- inn lægi og ákvað að láta hann liggja eftir taugunum. Bað ég síðan guð að stjórna hendi minni. Lét ég síðan hnífinn kanna ígerðina og gekk hálft litla blaðið á kaf í læri hans, en það bar engan árangur. Brá mér nokkuð við það, en lét samt eigi hugfallast. Spurði ég pilt- inn hvort hann treysti sér til að afbera aðra stungu og sagði hann já við því. Notaði ég þá allt blaðið og skar ofurlítið til um íeið. En þar með var líka björninn unninn. Þá gekk út svo mikið af þykkum greftri, að ég hef aldrrei séð önnur eins firn af slíku. — Síðan kreisti ég sárið þar til ekkert var orðið eftir og sendi síðan mann til frúarinnar hans Péturs Þor- steinssonar og bað hana að lána mér karbólvatn.' Þvoði ég sár- ið úr því, og eftir fjóra daga var pilturinn orðinn góður og farinn að ganga til vinnu sinn- ar. Fékk ég mikið lof fyrir þess- ar læknisaðgerðir mínar. Nú vík ég að því aftur, er ég fór með ísafoldinni til Reykja- víkur. Hafði ég þar skamma dvöl, en lagði af stað gangandi heim. Kom ég að Litlu-Tungu til að heilsa upp á kærustuna. Stóð þar allt við sama og áður. Talaðist svo til, að við byrjuðum búskapinn eftir hálft annað ár. Síðan fór ég heim að Helluvaði, knúði þar dyra og kom þar út stúlka. Spurði ég hana hvort Jónas væri heima, en hún sagði að hann væri í réttum, því það ætti að reka sláturfé daginn eftir til Reykjavíkur. Spurði hún mig hver ég væri og hvar ég ætti heima. Sagði ég henni til nafns míns og að nafn- inu til ætti ég hér heima, þó aldrei hefði ég komið þar fyrr, og þekkti þar engan nema Jón- as. — Jæja, mér var ekki til setunn- ar boðið. Daginn eftir fór ég með féð til Reykjavíkur, en var síðan heima það haust fram að vertíð. — Nú var kona Einars Sveinbjarnarsonar í Keflavík, Guðrún Bjarnadóttir, búin að fala mig þessa vertíð, því hún hafði haft mann sjálf. Átti ég að róa á útveg manns hennar, og var Sveinbjörn sonur þeirra formaður á því skipi, sem ég skyldi róa á. Einnig gerði Einar út annað skip, að einhverju leyti, og kemur það síðar við sögu. Ég spurði Jónas hvort ég mætti taka þessu boði, en þá kvaðst hann vera búinn að ráða mig á skútu í Reykjavík og heiti hún Valdimar og sé frá Engey. Skyldi ég vera þar upp á hálfdrætti. Var það mál svo út- kljáð. — En rétt áður en ég lagði af stað suður, dreymdi mig, að við værum margir félagar dæmdir til dauða. Vissi ég þó enga sök á hendur okkar. Mér fannst að engin von væri að fá náðun. Varð því þetta svo að vera. Það átti að hálshöggva okkur. Við vorum allir staddir í sama húsi og fannst mér aftök- urnar vera byrjaðar og búið að afhöfða tvo. En þegar sá þriðji var leiddur undir öxina, þá hljóp ég á dyr til að flýja þessi hræði- legu örlög. Þegar ég komst út fyrir húsdyrnar, urðu fyrir mér ótal stigar, einn upp og annar niður og komst ég út fyrir þá alla. Þá sá ég, að á eftir mér kemur maður, og segir. Fyrst þú varzt svo duglegur að komast undan, skaltu líf hljóta og allir sem eftir eru. Upp frá þessu vaknaði ég. — En svo með ver- tíð lagði ég af stað og var með klyfjahest, sem átti að ganga til Eyrarbakka. Fór ég ekki lengra um daginn en að Litlu-Tungu til að geta kvatt unnustu mína. Mér varð þá sú skyssa á, á leið- inni, að hesturinn fór niður um ís ofan í leirkeldu. Var lítið upp úr annað en hryggurinn og höfuðið. Það fyrsta, sem ég gerði, var að taka af honum klyfjarn- ar, og þar næst reiðinginn. Svo fór ég að hugsa mér ráð til að ná blessaðri skepnunni upp i'ir þessu kviksyndi, því tilgangs- laust var að æpa á hjálp, því langt var til bæjarins. Tek ég því það ráð að leysa út úr hon- um beizlið, hnýti því í tagl hests- ins, bregð því síðan um herðar mér. Toga ég svo í ferlíkið af öllum lífs og sálarkröftum, unz lendarnar komu á skörina, sem var svo sterk, að hún þoldi þyngsli hestsins. Þá var líka þrautin unnin. Eftir það rann hann upp úr. En ljót var verk- unin á skepnunni, allur tómur leir. Svo komst ég með svaðilfar- ann á áfangastað, fékk gott hús og skóf úr honum leðjuna, það sem ég gat. Þar næst töluðum við kærustupörin okkar laun- ungarmál, en ekki sagði ég henni frá mínum ástardraum- um, er yfir mig komu um sum- arið, enda var ég búinn að bæla þá niður að mestu. En hún sagð- ist hafa haft þungar draumfar- ir til mín, og vera hrædd um það, að þettá verði okkar síðasta samverustund, og grét hún sárt yfir því. Oft er ljótur draumur fyrir litlu efni. Þú skalt ekki setja þetta fyrir þig, því guð mun ætla mér lengra líf. En mér segir svo hugur, að það verði eitthvað annað en dauðinn sem aðskilur okkur. Ég mun aldrei bregðast þér. En það getur svo margt komið fyrir, sem ekki er á mannlegu valdi að ráða við, sagði ég við hana. Svo slitum við þessu tali, og hún sagðist vona, að hún breytti aldrei svo lífsskoðun sinni, að hún sliti tryggðum við mig. — Morguninn eftir fylgdi hún mér á leið og kvaddi mig með sökn- uði og fögrum fyrirheitum. Kom ég svo til höfuðstaðarins og var þá strax farið að búa sig til fiskveiða, því allir voru komnir til vers, sem ráðnir hofðu verið á skútuna. Voru það valdir menn, allir á bezta aldri, utan einn unglingur. Síðan var

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.