Heima er bezt - 01.02.1952, Síða 25

Heima er bezt - 01.02.1952, Síða 25
Nr. 2 Heima ER BE'ZT 57 ÞÓRDlSARÞÁTTUR ÞÓRDÍS í HVAMMI var fædd 1825 á Hjálmstöðum í Laugar- dal. Hún þótti sérstaklega heppin og dugleg yfirsetukona. Ekki hef ég heyrt hvenær hún byrjaði það starf, en það var fyrir mitt minni, og líklega áð- ur en farið var að launa yfir- setukonur. En laun ljósmæðra voru lítil framan af, 40 kr. árs- launin og svo einhver þóknun fyrir að sitja yfir konum. Og munu flestir hafa borgað það, sem gátu vegna fátæktar. Mað- ur Þórdísar hét Jón og bjuggu þau í Hvammi í Ölfusi. Ljós- móðurumdæmi Þórdísar mun hafa verið Ölfushreppur austan Varmár. En önnur var samtíða henni vestan Varmár. Oft var Þórdísar vitjað út fyrir umdæmi hennar, upp í Grafning og víð- ar að. Því bæði hafði hún al- mennt traust, sem heppin ljós- móðir og dugleg að ferðast, bæði gangandi og ríðandi. Ekki heyrði ég annars getið en þau Jón, maður hennar, og hún hafi komizt vel af fyrir sig efnalega. Þau voru víst bjargálna sem kallað var. Nokkuð var það, að Þórdís bjó nokkur ár með son- um sínum eftir að maður henn- ar dó. En það hefði hún ekki getað, ef þau hefðu verið bláfá- tæk, nema með sveitarstyrk. En af sveit þáði hún aldrei nema ef það hefur verið eitthvað lítið rétt áður en hún dó, síðasta missirið eða svo. Ég man vel eftir Þórdísi og talaði oft við hana, og hún kom nokkrum sinnum til foreldra minna í Hlíð í Grafningi. Hún var að eðlisfari gáfuð kona og talsvert lesin. En hún bar þess augljós merki, að hún var alin upp við 18. aldar menningu. Hún var ræðin og skemmtilegt að tala við hana. En þó laus við að vera málskrafsmikil eins og sumar konur voru kallaðar. Hún var bæði fróð og minnug um marga hluti, bæði um það, sem hún hafði heyrt og lesið. Orð- heppin þótti hún og gat stund- um verið bituryrt. En aldrei heyrði ég talað um, að það hafi komið fyrir, að hún hafi reiðst svo á bæri. Ef henni mislíkaði við einhvern, þá stakk hún upp í þann með stuttri setningu, og þar með féll talið niður. Aldrei heyrði ég, að hún hafi lent í orðasennu við neinn. 1879 urðu prestaskipti í Arnarbæli. Séra Páll Matthíasson hætti prest- skap. En séra ísleifur Gíslason tók við brauðinu. Síðustu ár séra Páls í Arnarbæli var sonur hans, séra Jens, aðstoðarprestur hjá honum. Séra Jens og þeir feðgar báðir voru vinsælir og vel látnir og vildu Ölfusingar helzt að séra Jens tæki við brauðinu af föður sínum, en þá voru engin prestkosningalög til. Heldur var prestum veitt prestaköllin eftir embættis- aldri og öðrum verðleikum sem kallað var. Út af þessu var séra ísleifi tekið með kaldri kurteisi þegar hann kom. Svo var ann- að. Lögin um barnafræðslu gengu í gildi skömmu síðar. Og séra ísleifur hafði áhuga fyrir bættri og meiri fræðslu en verið hafði. Hann gekkst fyrir því, að skólahús var byggt í hreppn- um, og var það eins og gengur misjafnlega séð af sumum. Þótti bæði kostnaðarsamt og jafnvel sum,um óþarft og gagnslaust. En fleiri voru þeir nú samt sem voru þessu fylgjandi, og skól- inn mun hafa starfað á meðan séra ísleifur lifði. En séra ís- leifur skipti sér af fleiru en fræðslumálum. Hann hafði á- huga fyrir heilbrigðismálum og öllum málum, sem hann hélt að væru til þjóðþrifa. Þetta áttu Ölfusingar erfiðara með að skilja en nokkurntíma lögin um að börnum væri kennt að skrifa og reikna. Þórdís í Hvammi varð fyrir þessari umbótaviðleitni séra ísleifs einna mest vegna þess að hún var ljósmóðir. Þó hún væri heppin ljósmóðir, þá var hún aldrei þrifin eða hrein- leg. En það gat séra ísleifur ekki liðið, að ljósmóðir væri sóði. Hann vildi því láta hana segja af sér og hætta þeim starfa. En hún var nú ekki á því. Þá mun hann hafa kært hana fyrir sýslunefnd. Nokkuð var það, að sýslumaður rannsakaði málið. Þórdís safnaði fjölda af vottorðum um hæfni sína, bæði frá konum, sem hún hafði setið yfir og frá hér- aðslækni. Ég sá sumt af þessum vottorðum. Þau sem ég sá, voru öll á einn veg, báru henni góð- an vitnisburð um hjálp og ná- kvæmni. En hreinlæti var ekki nefnt í neinu þeirra. Út af þessu þrasi varð mikið umtal í sveit- inni og lögðu margir það út á verri veg af prestsins hálfu að ráðast á fátæka kerlingu, og þótti hann ráðast þar á .garð- inn, sem hann var lægstur. Þórdísi féll þetta líka illa, sem von var, því auðvitað var hún sæmilega hreinleg frá eigin sjónarmiði og aldrei hafði hlot- izt illt af sóðaskap hennar og heilsugóð var hún. En endirinn varð sá, að Þórdís var látin hætta starfinu, en þó ekki svift réttinum að mega sitja yfir konum. En þegar þetta var um garð gengið, útvegaði séra ísleif- ur henni hæstu eftirlaun úr sýslusjóði, sem uppgjafa ljós- mæðrum voru þá greidd. Þetta lögðu sumir þannig út, að prest- urinn hefði fengið samvizkubit og viljað með þessu bæta fyrir synd sýna. Um sömu mundir erfði Þórdís 600 kr. og heyrði ég sagt, að séra ísleifur hefði að- stoðað hana í því að ná þeim arfi. Þá peninga lánaði hún honum, og svo sættust þau heil- um sáttum og mun hann hafa litið eftir því, að hún hefði nægilegt við að lifa meðan hans naut við. Enda heyrðist Þórdís aldrei hafa annað en gott um séra ísleif að segja eftir þetta. En á meðan á málinu stóð, kallaði hún hann aldrei annað en prestsskrattann, þeg- ar hún minntist á hann. Fyrsta haustið eftir það að hún hætti ljósmóðurstörfum, kom séra ís- leifur til hennar í húsvitjunar-

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.