Heima er bezt - 01.02.1952, Page 27

Heima er bezt - 01.02.1952, Page 27
Nr. 2 Heima er bezt o9 SAGNFRÆÐI: Byron lávarður Eftir Baldur Bjarnason FÁ ÚTLEND SKÁLD hafa kitlað svo eyru íslenddinga sem Byron lávarður. Byron fæddist 1788. Hann var af gömlum ensk- um og skozkum aðalsættum. Faðir hans var af enskri Nor- mannaætt, móðir hans var af Stúartaættinni, hinni sögu- frægu konungsætt Skota og Englendinga. Faðirinn var drykkfeldur og svallgefinn ráð- leysingi, móðirin vanstilt, tauga- biluð og ákaflega móðursjúk en sæmilega greind. Foreldrar Byr- ons skildu þegar hann var barn að aldri. Það varð Byron til hamingju, að afabróðir hans arfleiddi hann að eignum sín- um og titli þegar hann var barn að aldri. Þegar gamli maðurinn dó, var Byron lávarður 10 ára að aldri. Byron var bví laus við fjárhagsáhyggjur fyrst framan af. Hann fékk all-góða mennt- nn, stundaði um skeið háskóla- nám. Námsmaður var hann að- eins í meðallagi en varð snemma fjöllesinn í heimspeki og bók- menntum. Byron var einnig góður íþróttamaður. Það bagaði hann þó mjög, að hann var halt- ur. Byron, sem var manna fríð- astur, og hafði til að bera töfr- andi framkomu, þjáðist alla ævi af minnimáttar kenndum, vegna þess að hann var fatlaður. Er á- litið, að það hafi stafað af því, að hin vesæla móðir hans hafi í geðvonsku sinni strítt honum með þessu líkamslýti þegar hann var barn. Hann gat aldrei bætt sér þetta upp, hvernig sem hann þjálfaði sig líkamlega og andlega Byron var því snemma viðkvæmur og hörundssár, hann var ákaflega laus við skapfestu, og aldrei heilsteyptur í neinu. Listamannseðli hans kom fljótt í ljós, og þó fyrstu ljóð hans fengju engan hljómgrunn, var hann orðinn þekkt skáld liðlega tvítugur að alddri. Hann var þá nýkominn úr ferðalagi frá hin- um sólríku Miðjarðarhafslönd- um. Hann vaknaði einn morg- unn og fékk að vita, að hann var orðinn frægur. Hann var nú um skeið dáður og tilbeðinn, einkum var hann eftirlætisgoð kvenfólksins. Sumar samkvæm- isdömurnar hnigu bókstaflega í yfirlið, þegar Byron kom inn í samkvæmissalinn. Byron giftist nú ríkri stúlku af borgaraættum. Það var hon- um mikil hjálp í bili, því Byron var nefnilega orðinn fátækur, þrátt fyrir lávarðstignina. Byr- ons-ættin hafði í nokkrar kyn- slóðir stöðugt verið á hnignun- arleið í fjárhagslegu tilliti, og skáldið Byron lávarður var á góðri leið með að sóa síðustu reitunum. Því miður verður að viðurkenna það um hið unga skáld og lávarð, að hann með- höndlaði hina ríku og góðu konu sína skammarlega. Þau skildu að lokum. Ada dóttir þeirra varð hjá móður sinni, en Byron varð ekki vært í Englandi. Illar tungur sögðu, að Byron hefði drýgt blóðskömm, og átt barn með hálfsystur sinni, - og það var álitið, að það væri or- sök skilnaðarins. Þessi orðrómur hefur aldrei verið sannaður að fullu. En víst er það, að Byron hafði slíka svívirðu af máli þessu, að þegar hann flýði Eng- land árið 1816, sór hann að koma þangað ekki aftur. Afkomendur Byrons lávarð- ar halda því fram, að því er virðist með fullum rétti, að hinar illu tungur hafi sagt satt. Eftir flótta frá Englandi lifði Byron léttúðarlífi og flakkaði víða um lönd. Lengst af var hann á Ítalíu. Ljóð hans flugu víða um lönd í þýðingum. Byron vann sér heimsfrægð, og hann lék sér nú að því að hæðast að gamla Englandi, en dáði léttúð- ina og gjálífið í hinum sólbjörtu suðurlöndum. Byron var lýð- ræðissinni, og frelsisunnandi, og þó fullur af stéttarhroka enska aðalsins. Fyrst framan af vildi hann ekki taka borgun fyrir ljóð sín. Honum fannst það ekki lá- varði sæmandi. Síðar kenndi hin harða lífsbarátta honum, að hann varð að þiggja borgun fyrir ljóð sín, og varð hann brátt ríkur maður. Byron var mannvinur, en þjáðist þó af mannfyrirlitningu. Hann var harður og viðkvæmur í senn, og þráði samúð þeirra smælingja, sem hann orti um í ljóðum sín- um ,og lítilsvirti í veruleikanum. Á þessum árum orti Byron kvæðaflokkinn Don Juan, sem er frægasta verk hans. Allar þær andstæður, sem einkenndu skapgerð Byrons komu fram í ljóðum hans. En ljóð hans eru líka mótuð af töfrakrafti, kyngi og munaðarhita hins unga lá- varðar, sem unni bæði fögrum konum og fögru landslagi, og fann sér hvergi hvíld eða sama- stað. Árið 1823 gerðist Byron einn af liðsmönnum Grikkja í frelsisstríðinu við Tyrki. Hann dó árið 1824, 36 ára að aldri. Banameinið var heilabólga. Dauði hans varpaði slíkum ljóma yfir nafn hans, að mis- gerðir hans gleymdust alveg, hann varð hetja og píslarvottur milljóna manna, og róttækir vinstrimenn og lýðveldissinnar hófu hann til skýjanna um all- an heim. Byron er þó sem mað- ur og skáld, nátengdur hinum hrynjandi aðli á fyrri hluta 19. aldar. Lífsskoðanir hans endur- spegla að miklu leyti hugarfar hinnar rótlausu og stéttvilltu aðals-æsku í byrjun 19. aldar. Þessi aðals-æska var að molast niður milli vaxandi auðborgara- stéttar og hins rótgróna há- aðals, sem enn sat að sínu. Róm- antík, lífsleiði og lífsflótti ein- kenndi þetta fólk. Tiltölulega þýðingarlitlir árekstrar, sem áttu orsök sína í litt geðslegum ástarævintýrum hröktu Byron, ekki aðeins frá heimalandi hans, heldur líka frá stétt hans og uppruna, svo að hann, sem var afkomandi hinna afturhalds- sömu Stúarta og þeim í mörgu líkur, varð byltingamaður og lýðræðissinni. Ljóð Byrons voru á 19. öld þýdd á flest menning- armál heimsins, einnig á ís- lenzku, og áhrif hans hér á landi voru mikil, þeirra gætir jafnvel töluvert enn.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.