Heima er bezt - 01.02.1952, Qupperneq 32

Heima er bezt - 01.02.1952, Qupperneq 32
64 Heima ER BE'ZT Nr. 2 Föndur fyrir unglinga: Hagnýt minnisatriði Blápappír. Ef þig vantar blápappír við teikningar á smíðisgripum fyrir laufsög, geturðu hæglega búið slíkan pappír til sjálfur úr þunn- um, sterkum pappír, sem þú lit- ar öðru megin með eftirfaranöi blöndu: Settu % hluta vax saman við % hluta línolíu og ys hluta af þurrum lit. Hitaðu olíuna, bræddu vaxið og hrærðu litar- duftið saman við. Viljirðu búa til bláan pappír, þá notaðu „pariser“-bláan lit. Við rauðan pappír notarðu rauðkrít, en við svartan er bezt að nota grafit. Stimpillítur. Stimpillitur er auðveldlega bú- inn til með því að blanda saman svartkrít eða „pariser“-bláma við % hluta glycerin. Leir. Bræddu býflugnavax við lít- inn hita. Settu smáskammt af terpentínu út í til þess að mýkja vaxið, einnig „sesam“-olíu, er fæst í hverju apóteki eða máln- ingarverzlun. Leirinn geturðu litað eftir vild með því að blanda þurrum lit saman við. Lím á merkispjöld o. fl. Leystu upp límduft í köldu vatni. Taktu síðan hálfu meiri skammt af gúmmí-arabicum og kandíssykri og settu út í vatns- magn, er sé tvöfalt meira en það, sem límið var leyst upp í. Þetta skal allt hitast við hægan eld. Úr þessu verður síðan ágætt lím, sem þornar aftan á miðunum, en blotnar nægilega, ef það er sett á votan svamp eins og hvert annað bréflím. Litarvatn. Settu tvö lítil zink-stykki í flösku með ómengaðri saltsýru. Zinkið leysist upp í saltsýrunni. En á meðan það fer fram, er bezt að láta flöskuna standa utan dyra, því að dampurinn af þessum efnategundum er eitr- aður. Leystu upp salmiakduft, sem svarar einni teskeið og settu út í bolla af sjóðandi vatni. Blandaðu síðan öllu þessu saman og láttu flöskuna standa, þar til efnin hafa fallið á botn- inn, öll nema litarvatnið. Helltu þá litarvatninu gæti- lega ofan af á aðra flösku. Þétting tjalds. Tjaldið þitt geturðu þéttað og varið fúa með eftirfarandi að- ferð. Þú leysir tvö hektógrömm af álúni upp í 15 lítrum sjóð- andi vatns, en í öðru keri leys- irðu tvö hektógröm af „blys- ocker‘ upp í öðrum 15 lítrum af sjóðandi vatni. Hið síðarnefnda efni er baneitrað. Þegar blönd- ur þessar hafa báðar staðið það lengi, að aukaefnin eru setztt á botninn í kerunum, er vatninu blandað og tjaldið látið liggja í blöndunni næturlangt. Um morguninn hengirðu tjald- ið upp til þerris, án þess að vinda það. Þú lætur sem sagt renna úr því af sjálfu sér. Fari svo, að örlítið blýsalt setjist á tjaldið, getturðu auðveldlega burstað það af, þegar voðin hef- ur þornað. Laufsögun. Sennilega er laufsögin eitt- hvert hagnýtasta áhald, sem smiðurinn getur fengið sér, með tilliti til þess, hversu ódýr hún er. Hugsaðu þér, hversu fjöl- margt er hægt aö smíða með hennar hjálp. Með henni er ekki einungis hægt að saga timbur, heldur einnig tinnu- gúmmí (ebonit), horn og ýmsar málmtegundir, t. d. messing. Laufsögin er því raunverulega nokkurskonar galdratæki, sem maður notar, þegar maður vill saga bognar línur og fara hönd- um um efnið þar sem ekkert annað verkfæri getur komizt að því. Blaðið er nefnilega svo þunnt, að það tekur ekki burtu nema sem svarar blýantsstriks- breidd af efninu. Til eru að vísu bæði fín og gróf sagarblöð, og fer það eftir númerum, einnig eru til sérstök blöð fyrir málma. Eftir því sem blaðið er fínna, þeim mun minna eyðir það efniviðnum, eins og að líkum lætur. En of þunn blöð eru gjörn á að hrökkva sundur. Not- astu því við mátulega þykk sag- arblöð. Og að öllum jafni borg- ar það sig að kaupa beztu teg- undina. Sagirðu þunna málmplötu, er hagnýtt að láta blaðið jafnframt saga gegnum undir-plötu úr tré eða „masonite". Blaðið festist þá ekki í plötunni. Ef um er að ræða mjög þunnt efni, sem saga þarf í fleirum en einu eintaki, er réttast að leggja saman fleiri en eina plötu og saga í einu. Þá verður líka að gæta þess að halda söginni réttri og festa plöturnar með þvingu, svo að þær haggist ekki. Allar smáraufir og útskot ger- um við þrengri en nauðsynlegt er og notum heldur raspinn á þær á eftir. Því varla er nokkur sá hlutur til, sem eyðileggur jafn mikið laufsagar-iðjuna og of ó- varkár eyðing efniviðarins með því að saga of mikið. Laufsagar-mynztur. Þegar við veljum mynztur til að vinna með laufsög, verðum við að hafa það hugfast, að ekki er allt fallegt bara fyrir það eitt, að í því er mikið flúr og rósaverk. Við eigum að byrja á því að smíða einfalda og snotra hluti. Þegar við notum laufsagar- mynztur, teiknum við það á gegnsæjan pappír, til þess að þurfa ekki að eyðileggja bókina eða blaðið, sem það er í með blápappírsteikningu. Hinsvegar notum við blápappírinn, þegar við teiknum fyrirmyndina af gagnsæja pappírnum yfir á efni- viðinn. Og bezt er að nota graf- it-pappír. Til þess að mynztrið haggist ekki, er bezt að pinna það niður eða hefta á annan hátt. Nauðsynlegt er að rita mynztr- ið sem greinilegast og með odri- cjóum blýanti. Notaöu reglu- striku eins oft og þú færð því við komið.

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.