Heima er bezt - 01.09.1952, Page 4
260
Heima ER BEZ'
Nr. 9
hugsjónir, sem báru málefnið til
sigurs.
Oft hefur staðið styrr um Sam-
bandið og aðgerðir forystu-
manna þess á ýmsum sviðum,
enda hlýtur svo að verða. Verð-
ur hér ekki farið nánar út í það,
en aðeins skal bent á þá stað-
reynd, að allar stéttir þjóðfélags-
ins viðurkenna afrek samvinnu-
manna, eins og kom fram á
fundinum í ræðum margra for-
ystumanna þjóðarinnar.
Eins og nú er ástatt á mörgum
sviðum þjóðmálanna, sem og
heimsmálanna yfirleitt, verður
nauðsyn samvinnu á sem flest-
um sviðum æ ljósari hverjum
hugsandi manni. Leiðin út úr
þeim erfiðleikum, sem steðja að
og uggvænlegt útlit fyrir fram-
tíðina, sem einkum getur orðið
örlagaríkt smáþjóðunum, er
samstarf og samhugur þeirra
manna, sem hægt er að treysta
til að setja almenningshag ofar
persónulegum hagsmunasjónar-
miðum, en það er oft eina
leiðin til að bægja hættunum frá.
Heima er bezt birtir nú nokkr-
ar myndir frá alþjóðamótinu og
afmælishátíð Sambands ísl. sam-
vinnufélaga og vonar, að les-
endum þyki gaman að fá þær í
blaðinu. Annars hefur afmælis-
ins verið ýtarlega minnzt á öðr-
um stað, því að tímaritið Sam-
vinnan hefur gefið út sérstakt
afmælisrit, svo að óþarft þyk-
ir að fara fleiri orðum um sjálfa
,sögu samtakanna á þessum stað.
A efri myndinni sjást nokkrir hinna erlendu gesta, auk heiSursfélaga og for-
stjóra S./.S., á hátíðafundi S.Í.S. í Reykjavík. ■— Neðri myndin sýnir forseta
Alþjóðasamhands samvinnumanna, Sir Harry Gill, setja miðstjórnarfundinn
í hátíðasal Háskóla Islands. Vinstra megin við hann situr ungfrú G. F. Polley,
aðalritari Alþjóðasambands samvinnumanna, en til hcegri við Sir Harry Gill eru
Vilhjálmur Þór, forstjóri S.Í.S., og Harold Taylor, fulltrúi miðstjórnar I.C.A.
(Ljósm.: Guðni Þórðarson).