Heima er bezt - 01.09.1952, Síða 9

Heima er bezt - 01.09.1952, Síða 9
Nr. 9 Héima er bezt 265 þóttu sum nöfnin heldur óheppi- leg, svo að ekki sé dýpra í árinni tekið. Langflest eru ættarnöfnin mynduð af bæjarnöfnum og öðr- um örnefnum, en annar stærsti frumorðaflokkurinn eru eigin- heiti karla og kvenna. í því sam- bandi farast nefndinni orð á þessa leið: „Vér göngum að því vísu, að margir vilji kenna sig við föður eða móður eða foreldri sitt fjar- skyldara. Vér höfum því samið skrá um ættarnöfn dregnum af mannanöfnum, og þó nálega þeim einum, er telja má íslenzk að uppruna og oss þóttu ekki óviðfelldin eða of löng...Vér efumst ekki um, að mörgum verði það ljúft, að kenna sig við eignarjörð sína eða ættaróðal, og höfum vér því leitast við að mynda nöfn af sem flestum bæj- arnöfnum, er oss þóttu með nokkru móti hæf. Hafa því fleiri flotið með en oss þykja sjálfum fögur, því að vér vitum vel, að ekki er einn smekkur allra og að mörgum þykir það fagurt, sem honum er kært“. Þrjár endingar, sem nefndin notaði mikið við ættarnafnasmíð sína, sættu afarharðri gagnrýni. Það voru endingarnar -on, -fer og -star. Um réttmæti þessara endinga farast nefndinni þannig orð: „Á eldra stigi málsins enduðu þau kvenkynsorð á -on, sem nú enda á -a: alda, bringa, tunga. Hefur nefndin því myndað ætt- arnöfnin: Aldon, Bringon, Tung- on. Allmörg íslenzk ættarnöfn hafa endað á fjörð. Vér höfum ekki myndað ættarnöfn á þann hátt, að taka nöfn í þolfalli, en „fjörð“ getur ekki verið annað en þolfall. Að hinu leytinu var þágufallsmyndin „firði“ óhæf. Vér höfum því tekið það ráð að hafa hina germönsku frumrót í orðinu „fjörður" að endingu slíkra nafna. Hún er -fer. Af bæjarnöfnum, sem enda á -stað- ur, -staðir, hafa áður verið mynduð ættarnöfn með ending- unni -stað, t. d. Hafstað, Lyng- stað, eða með dönsku ending- unni -sted, t. d. Melsted. Að vísu teljum vér ekki frágangssög að ættarnöfn endi á -stað, en hætt er við að slík ættarönfn fengi ranga eignarfallsendingu, ef þau væri beygð. Vér höfum því myndað nýja endingu, „star“, af rót orðsins „staður“, hún er sta, og við hana höfum vér skeytt „r“, sem er algeng afleiðsluend- ing í málinu.“ Eftir útkomu nefndarálitsins blossuðu ættarnafnadeilurnar upp að nýju, heitari og ákafari en nokkru sinni fyrr. Mjög mikla athygli vakti fyrirlestur, sem Árni bókavörður Pálsson flutti fyrir fullu húsi í Iðnó 27. febrúar 1916. Lagðist hann þar mjög fast gegn ættarnöfnum, fór hörðum orðum um nefndarálit þremenn- inganna og fann því æðimargt til foráttu. Erindið var síðan prentað. Get ég ekki stillt mig um að birta hér dálítinn kafla úr erindi þessu. Eftir að Árni hefur rifjað upp helztu röksemdir þeirra manna, sem berjast fyrir upptöku ættar- nafna á íslandi, kemst hann að þeirri niðurstöðu, að meginá- herzlu leggi þeir allir á það at- riði, að ættarnafnasiðurinn hafi hvarvetna sigrað í menningar- löndunum, „fínu“ löndunum, nema hvað sveita-alþýðan haldi við hinn forna sið á stöku stað. íslendingar stimpli því sjálfa sig sem lítt upplýsta almúgaþjóð, ef þeir fari ekki að dæmum menn- ingarþjóðanna í þessu efni. Og Árni heldur áfram: „Ég held, að hér sé maður kominn að sjálfum kjarnanum í skoðunum þeirra manna, sem fyrir ættarnöfnunum hafa bar- izt. í þeirra augum táknar hinn forni siður': einangrun, öfug- uggaskap, úreltan hugsunarhátt og heimskulega og gagnslausa mótspyrnu gegn „straumi tím- ans“. íslenzku heitin eru „ófín“ — það eina orð nægir. Það er orð, sem ég hygg, að menn séu al- mennt hræddari við, en nokkurt annað orð, sem nú er tíðkað í málinu. Og ef svo fer einhvern tíma, að ættarnöfnin sigri hér á landi, þá verður það vegna þess, að þau eru „fín,“ en innlendu heitin „ófín“. Við vitum sjálf- sagt öll, að þau ættarnöfn, sem nú tíðkast vor á meðal, hafa menn tekið sér af þessari ástæðu, — að minnsta kosti öll þau nöfn, sem enda á -sen og -son. Þau eru í fyrstu tekin upp á þeim tíma, þegar nálega öll þjóðernis- meðvitund var kreist úr íslend- ingum, og sumir af helztu mönn- um þeirra hefðu viljað skafa þjóðernið af sér með öllu, ef þeir á nokkurn hátt hefðu getað það. .... En geta menn nú fært nokkrar sönnur á þá staðhæf- ingu, að útlendir menn líti svo á sem hin íslenzka nafnvenja beri vott um úrelt og afkáralegt menningarástand? Ég efast ekki um, áð danskur krambúðarlýður hafi margoft látið slíkar skoðan- ir í ljósi, en af þeim lærimeistur- um okkar í uppskafningshætti og apalátum hefðum við þá líka getað lært, að íslenzkan væri orðin ekki svo lítið á eftir tím- anum og ekki sem allra „fínust“, og höfum við þó ekki viljað gleypa við þeirri kenningu. Hitt veit ég, að þýzkir fræðimenn, sem þekkja land vort og þjóð betur en nokkrir aðrir útlendir menn, líta svo á, að það sé ís- landi ódauðlegur heiður, hvernig það hefur varðveitt forna tungu og forna siði, og mundu þeir telja oss það litla fremd, ef við nú færum að gerast nafnskiptingar eða umskiptingar. Og ef við á annað borð viljum hegða okkur eftir því, hvernig aðrir kunni að dæma um okkur, — en það er annars einkenni lítilsigldra manna og lítilsigidra þjóða — þá er okkur nær að hlíta þeim bendingum og ráðum, sem við fáum frá þeim vinum okkar út- lendum, sem bezt þekkja okkur, heldur en hlaupa eftir hverjum þeim goluþyt tískunnar og tíð- arandans, sem hingað kann að berast frá öðrum löndum....... Hin gamla, íslenzka ættarnafna- venja er svo samgróin eðli ís- lenzkunnar, að við getum ekki losað okkur við hana nema með því að misþyrma tungunni. Nafnanefndin getur þess, að ís- lenzkunni hafi aldrei verið sýnt um að mynda ættarnöfn, og er starf hennar sjálfrar ólygnasti votturinn um, að þetta er satt. En mönnunum er ekki sök gef- andi á þessu, þetta er málinu að kenna eða þakka, allt eftir því, hvernig á er litið..Það er al- mennt talið til spillingar tung- unni, að hleypa inn í hana út- lendum orðum og ætti ekki að þola slík orð, hvorki í ritmáli né mæltu máli, nema þau séu með

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.