Heima er bezt - 01.09.1952, Síða 11

Heima er bezt - 01.09.1952, Síða 11
Nr. 9 Heima er bezt 267 Þegar kom á árið 1917, hjöðn- uðu ættarnafnadeilurnar um sinn. Ýmsir menn tóku sér upp ættarnöfn samkvæmt löngunum frá 1913, eins og verið hafði á hverju ári síðan sú löggjöf var sett, þótt naumast gæti heitið, að mikið kvæði að því. Leið nú og beið fram til ársins 1923. En á alþingi það ár bar Bjarni Jóns- son frá Vogi fram „frumvarp til laga um nöfn“. Fjallaði það öðr- um þræði um mannanöfn, en hinum um bæjarnöfn og staða. Höfuðatriði þess hluta frum- varpsins, sem laut að manna- nöfnum, voru eftirfarandi á- kvæði: „Hver maður skal bera eitt nafn og kenna sig til föður síns sem verið hefur, með þeim hætti, sem gerði Snorri Sturluson eður Þórgerður Egilsdóttir. Ættar- nafn má enginn taka sér hér eft- ir. Víttir skulu þeir menn, er nú bera ættarnöfn og eldri eru en 10 ára, þótt þeir haldi ættar- nafninu til dauðadags. Heimilt skal manni að hafa viðurnefni, sem honum er gefið að nafnfesti að fornum sið“. í greinargerð segir á þessa leið: „Nú á dögum hefur erlend sníkjumenning, léleg í alla staði, náð svo sterkum tökum á mönn- um, að þeir sæta hverju færi, sem gefst, til þess að skafa af sér þjóðerni sitt og glata dýrmætri menning, er vaxið hefur um þús- undir ára upp af norrænni rót, en vér geymum nú að mestu ein- ir. Svo langt hefur þetta gengið, að sjálft alþingi hefur sett lög til styrktar þessari þjóðernisglötun og stjórn landsins hefur gefið út rit í þessu skyni og látið lands- sjóð kosta útgáfuna .... Þetta frumvarp mitt er eins konar fyr- irspurn til alþingis, hvort það viti nokkurn annan skyldari til að vernda dýrmætustu eign þessarar þjóðar en sjálft sig“. Umræður urðu allharðar um frumvarpið, og sætti það snarpri mótspyrnu. Jón Þorláksson og Jakob Möller beittu sér einkum gegn málinu, töldu það höggva alltof nærri persónufrelsi manna og fundu því margt annað til foráttu. Frumvarpið varð ekki útrætt á þessu þingi. Á alþingi 1924 flutti Bjarni frumvarp sitt öðru sinni, og þá í nokkuð breyttri mynd. Fjallaði það nú eingöngu um manna- nöfn, og hafði eitt ákvæðði verið rýmkað nokkuð frá hinu fyrra frumvarpi. Fólst sú rýmkun í 3. grein frumvarpsins, er hljóðaði nú á þessa leið: „Þeir íslenzkir þegnar og börn þeirra, sem nú bera ættarnöfn, mega halda þeim alla ævi“. Aftur fór svo, að frumvarpið dagaði uppi. Bjarni var þó ekki af baki dotitnn, og á alþingi 1925 bar hann frumvarp sitt fram hinu þriðja sinni. Og í þetta skipti náði það fram að ganga, að vísu með allmiklum breyting- um. Þar sem lög þessi um mannanöfn, nr. 54 frá 27. júní 1925, hafa gilt í aldarfjórðung og eru í fullu gildi enn í dag, ætla ég að birta þau hér, enda eru þau fremur stutt. Gildandi laga- ákvæði um mannanöfn eru þessi: 1. grein: Hver maður skal heita einu íslenzku nafni eða tveim og kenna sig til föður, móður eða kjörföður og jafnan rita kenn- ingarnafn sitt með sama hætti alla ævi. 2. gr. Ættarnafn má enginn taka sér hér eftir. 3. gr. Þeir íslenzkir þegnar og niðjar þeirra, sem bera ættar- nöfn, sem eldri eru en frá þeim tíma, er lög nr. 41, 10. nóvember 1913 komu í gildi, mega halda þeim, enda hafi þau ættarnöfn, sem yngri eru en frá síðastliðn- um áramótum, verið tekin upp með löglegri heimild, sbr. 9. gr. þeirra laga. Sama er og um þá erlenda menn, er til landsins flytjast. Þeir íslenzkir þegnar og börn þeirra, sem nú bera ættarnöfn, sem upp eru tekin síðan lög nr. 41, 1913 komu í gildi, mega halda þeim alla ævi. Konur þeirra manna, sem rétt hafa til þess að bera ættarnöfn, mega nefna sig ættarnafni manns síns. 4. gr. Ekki mega menn bera önnur nöfn en þau, sem rétt eru að lögum íslenzkrar tungu. Prestar skulu hafa eftirlit með, að þessum ákvæðum sé fylgt. Rísi ágreiningur um nafn, sker 'neimspekisdeild háskólans úr. 5. gr. Nú hefur maður hlotið óþjóðlegt, klaufalegt eða erlent nafn áður en lög þessi voru sett, og getur hann þá breytt nafni með leyfi konungs. 6. gr. Stjórnarráðið gefur út skrá, eftir tillögum heimspeki- deildar háskólans, yfir þau mannanöfn, sem nú eru uppi, sem bönnuð skulu samkvæmt lögum þessum. Skrá þessi skal send öllum prestum landsins. Skráin skal gefin út á hverjum 10 ára fresti, að lokinni útgáfu hins almenna manntals.“ Ég hef nú í nokkrum megin- dráttum gert grein fyrir deil- um þeim, sem háðar hafa verið hér á landi um ættarnöfn og réttmæti þeirra. Ég hef reynt eftir föngum að skýra sjónar- mið beggja aðila, án þess að leggja á þau nokkurn dóm frá eigin brjósti. En áður en ég lýk grein þessari Iangar mig til að skýra frá því, að íslenzkt manna- nafnakerfi hefur alveg nýlega borið á góma meðal sérfræðinga á sviði skýrslugerðar og heil- brigðisrannsókna. Hefur komið upp úr kafinu, að hinn íslenzki nafnsiður er í því tilliti sérstak- lega handhægur og miklum kost- um gæddur. Mál þetta er svo vaxið, sem nú skal greina: Til eru mjög fullkomnar og ó- trúlega afkastamiklar vélar, sem notaðar eru til að vinna úr skýrslum margvíslegan fróðleik. Nokkrar slíkar vélar hafa verið fengnar frá Ameríku hingað til lands, í Hagstofu íslands, og eru þær hrein galdratæki. Nú stend- ur svo á, að alþj’óðaheilbrigðis- stofnun Sameinuðu þjöðanna, sem hefur með höndum umfangs miklar rannsóknir á sviði heil- brigðismála, hefur fyrir nokkru sent hingað einn af sérfræðing- um sínum. í skýrslu þeirri, sem hann hefur tekið saman um at- huganir sínar hér, kemst hann að þeirri niðurstöðu, að óvíða eða hvergi í veröldinni séu skil- yrði jafngóð og hér til aö fram- kvæma með hinum nýju og full- komnu vélum alhliða rannsókn- ir á heilli þjóð. Það, sem hann telur auðvelda þetta starf, er íslenzka mannanafnakerfið, einkum sú staðreynd, að nafna- Framh. d bls. 283.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.