Heima er bezt - 01.09.1952, Qupperneq 12

Heima er bezt - 01.09.1952, Qupperneq 12
268 Heima er bezt Nr. 9 Þorvaldur Thoroddsen „Það er einkennilegt að sjá, hvernig mikilmenni með fram- úrskarandi hæfileikum stundum koma fram í veraldarsögunni í hópum, á vissum tímum og á vissum stöðum, án þess að hægt sé að gjöra sér nokkra grein fyr- ir hvernig á því stendur. Þegar svo ber undir hefjast stór og smá þjóðfélög á hærra menningarstig en áður, en svo kemur oft lá- deyða á eftir og afturför, þang- að til ný alda rís og er hennar oft langt að bíða.“ Þannig farast Þorvaldi Thor- oddsen orð á einum stað í ævi- sögu Péturs biskups. Þessi sönnu orð geta átt við hann sjálfan, því að slíkur forystumaður var hann á því sviði, sem hann lét helzt til sín taka, að hann var ein- stæður meðal íslendinga á sinni tíð. Við íslendingar höfum átt því láni að fagna að eignast nokkra slíka afburðamenn, þótt ládeyð- urnar séu tíðari. Er það einkum örlagaríkt að vera staddur á slíku ládeyðutímabili á örlaga- ríkum tímamótum eins og því, sem staðið hefur yfir undanfar- inn áratug eða rúmlega það. Það hefði verið hamingja þjóðarinn- ar, ef hún hefði þá átt forystu- menn á sem flestum sviðum, sem áttu næga víðsýni og djörfung til að leiða hana gegnum hætt- urnar. Það er ekki nóg að dá- sama hina miklu menn sögu okkar með vörunum, minningu þeirra er beinlínis sýnd van- sæmd með slíkri dýrkun, nema því aðeins, að hugur fylgi máli og reynt sé að feta í fótspor þeirra. Höfuðorsök þessarar óáranar á mörgum sviðum mun fyrst og fremst vera að finna í þeirri augnablikshyggju og gullkálfs- dýrkun, sem farið hefur eins og logi yfir akur síðustu árin, þeg- ar mörg menningarverðmæti virðast vera orðin föl hæstbjóð- anda, og margir aðrir undarleg- ir hlutir hafa gerzt, sem munu skapa núverandi kynslóð harð- an áfellisdóm í sögu framtíðar- innar. En þegar þjóðir eru staddar á hættulegum tímamótum, er allt- af mikill styrkur í að rifja upp fyrir sér sögu fortíðarinnar og kynnast þeim mönnum, sem vörpuðu ljóma á land og þjóð. Einn þessara manna var Þor- valdur Thoroddsen prófessor. Heima er hezt hefur áður flutt smágreinar um þá Svein Páls- son lækni og Björn Gunnlaugs- son yfirkennara, en þeir áttu mestan þátt í að rannsaka land- ið og auka þekkingu manna á því á fyrri hluta aldarinnar sem leið. Frá því er ferðum Bjarnar Gunnlaugssonar lauk, og þar til rannsóknir Þorvalds Thoroddsen hófust árið 1880, hafði lítið verið um rannsóknarferðir um öræfin og sízt í vísindalegu augnamiði. En með ferðum Þorvalds varð gerbreyting á þessu. Hann ferð- aðist um landið í 18 ár, jafnt byggðir sem öræfi, og skrifaði fjölda merkra ritgerða um ferð- ir sínar og athuganir. Komu þær út á ýmsum málum samtímis því, að þær voru birtar í And- vara, tímariti Þjóðvinafélagsins. Þorvaldur Thoroddsen var fæddur í Flatey á Breiðafirði 1855, sonur Jóns Thoroddsen skálds og sýslumanns og konu hans, Kristínar Þorvaldsdóttur frá Hrappsey. Þegar hann var fjórtán ára gamall missti hann föður sinn. Eftir að faðir hans dó, tók Jón Árnason, þjóðsagna- safnarinn alkunni, Þorvald í fóstur, en Jón var kvæntur móð ursystur Þorvalds. Þorvaldur var ungur þegar hann fór í latínu- skólann. Þá þegar var áhugi hans á náttúrufræði vaknaður, og hann afréð að stunda nátt- úrufræðinám þegar til háskól- ans kæmi. Einnig hafði hann mikinn áhuga á sögu, og hafði gott tækifæri til að kynna sér hana, því að Jón Árnason var manna fróðastur í þeirri grein og átti gott bókasafn. Þegar Þor- valdur stóð á tvítugu sigldi hann til háskólans í Kaupmannahöfn, en þegar árið eftir varð hann leiðsögumaður jarðfræðingsins Johnstrups prófessors á rann- sóknarferð hans til eldgosa- svæðisins í Öskju, en Askja gaus 1875, og fóru þá margar jarðir á Austurlandi í eyði, vegna hins gífurlega öskufalls. Hafði Þor- valdur stórmikið gagn af ferð þessari, og hún mun hafa styrkt hann í því áformi sínu, að gera rannsóknir landsins að ævi- starfi. Eins og þá var ástatt hér á landi, var frágangssök að ætla sér að hafa ofan af fyrir sér með vísindastörfum. Þegar gagn- fræðaskóli var settur á stofn á Möðruvöllum, sótti Þorvaldur um kennarastöðu þar og fékk hana. Fór svo, að hann lauk aldrei prófi í námsgrein sinni við háskólann. Samhliða kennslustörfum á Möðruvöllum hóf hann að rann- saka landið og ferðaðist um það á nær hverju sumri i átján ár. Fékk hann styrk til rann- sóknanna frá Alþingi, en þó oftast með eftirtölum og aur- kasti þeirra, er þar sátu. Þor- valdur hefði ekki getað fram- kvæmt rannsóknirnar, ef hann hefði ekki notið aðstoðar danskra stjórnarvalda og ein- staklinga. Landssjóður var fá- tækur á þeim árum og í mörg horn var að líta, en það nægir ekki til afsökunar á því skiln- ingsleysi, sem ríkti í sölum þings- ins á slíkum málefnum. Var framkoma sumra þingmanna svo mótuð af nánasarskap og þröng- sýni, að undrum sætir og ætti að verða til aðvörunar í framtíð- inni. — Var Þorvaldur kennari á Möðruvöllum í næstu tvö árin, en síðan var honum veitt staða við Latínuskólann í Reykjavík. Lausn frá þeirri stöðu fékk hann 1899. Fluttist hann þá til Kaup- mannahafnar og átti þar heima það sem eftir var ævinnar. Stundaði hann eingöngu ritstörf eftir að hann flutti út. Þorvaldur var kvæntur Þóru Pétursdóttur biskups. Áttu þau eina dóttur, er dó ung. Þóra andaðist árið 1917. Þorvaldur dó árið 1921, 66 ára að aldri. Rannsóknarferðir Þorvalds í þau átján ár, sem hann fór um landið, mega teljast þrekvirki, þegar litið er á allar aðstæður. Fylgdarmaður hans þessi ár var Ögmundur Sigurðsson, er síðar varð skólastjóri í Hafnarfirði, en hafði verið lærisveinn Þorvalds

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.