Heima er bezt - 01.09.1952, Side 16

Heima er bezt - 01.09.1952, Side 16
272 Heima er bezt Nr. 9 Stórar hjarðir Safnið rekið niður hjá Fossnesi í Gnúpverjahreppi. í almanakinu stendur, að rétt- ir byrji við 21. viku sumars. Þeim er þetta ritar, er ekki kunnugt um, að um það hafi verið nokkur meginregla, að þær skyldu byrja svo snemma, og enda ótrúlegt, að það hafi verið almennt, því að víðast mun slætti ekki hafa verið lokið og er tæplega enn, nema þá þar sem eingöngu er aflað heyja á ræktuðu landi. En það stendur svo margt í alman- akinu, sem ekki er tekið bókstaf- lega. Vera má og, að þetta eigi að skiljast þannig, að göngur hafi hvergi byrjað fyrr. En hvað sem um það er, er september- mánuður sá tími, þar sem snögg- lega skiptir um starf hjá öllum þeim, er búa í sveitum þessa lands. Skömmu eftir að síðustu heytuggunni er bjargað undir þak — sé tíðarfar svo hagstætt, að það hafi tekizt — fara menn að hugsa um fé sitt. Dagarnir eru orðnir ískyggilega skammir, og brátt er allra veðra von. Sælu- tími sauðkindanna á fjöllum uppi er á enda. Menn fara að tygja sig í fjallgöngur. Nærri hvert heimili er skyldað til að gera út mann á fjallið, en þó munu vera nokkrar undantekn- ingar frá þeirri reglu. Sumar heiðajarðir eru svo víðlendar, að smölun þar er nærri eins erfið og á afréttum, og slíkir bændur eru auðvitað undanþegnir frá skyldunni, eins og rétt og sjálf- sagt er. Fræðimenn teíja, að í fornöld hafi hið íslenzka þjóðfélag verið furðanlega vel skipulagt, og fornmenn hafi sýnt mikinn fé- lagslegan þroska á vissum svið- um. Ekki er gott að vita, hvenær gangnaskylda var fyrst í lög leidd, en ætla má að það hafi verið mjög snemma, þar sem hér er um svo almenna hagsmuni að ræða, sem að sækja fé í óbyggðir. En lengi vel mun þetta vera hin einasta almenna skyldukvöð, sem gekk jafnt yfir alla bændur í landinu. Er engin fjarstæða að líkja fjallskyldunni við herskyldu annarra þjóða, en hana höfum við verið lausir við fram að þessu, og verðum í framtíðinni, ef þjóð- in ekki slítur tengslin við menn- ingu sína og þar með hið bezta í sjálfri sér. — En hvað sem um það er, hafa göngurnar og rétt- irnar, sem þar fara á eftir, alltaf þótt merkileg tilbreyting frá önnum hins daglega strits, þó að það hafi ekki verið neinn tími til hvíldar og hóglífis. Það hefur jafnan verið einhver ævintýralegur ljómi yfir göngun- unum. Margur unglingurinn hef- ur hugsað til þeirra með kvíða- blandinni eftirvæntingu, einkum ef hann átti að fara á „fjallið“ í fyrsta skipti. Það var, sem hann sæi fyrir sér nýja og áður ó- þekkta veröld. Það var viður- kenning á því, að hann væri orð- inn maður, þegar hann fékk að fara í göngur í fyrsta sinn. Gangnamaðurinn var búinn út eftir beztu getu; nestið hans mátti ekki vera lakara en hjá öðrum; þar lá við sæmd heimilis- ins, enda mun það víða hafa tíðkast, að slátra lambi við þetta tækifæri. Var hann hlýtt klædd- ur, enda mátti búast við misjöfn- um veðrum á afréttunum, og ekki vantaði, að hinir eldri og reyndari iegðu honum lífsregl- urnar. Þótti honum stundum lít- / náttstað.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.