Heima er bezt - 01.09.1952, Blaðsíða 20

Heima er bezt - 01.09.1952, Blaðsíða 20
276 Heima er bezt Nr. 9 Rúdolfs, María Larisch greif- ynja, er afhenti honum bréfið, sagði honum hlæjandi frá Maríu Vetseru barónessu. Hún var seytján ára og ávallt kölluð „Mary litla“. María gerði ekkert til að leyna því, hve hrifin hún var af krónprinsinurn. „Ég sá krónprinsinn á götu í dag, hann var dásamlegur!“ sagði hún oft við Önnu systur sína, Agnesi þjónustustúlkuna sína og leyndi því heldur ekki við aðdáanda sinn, Miguel prins af Braganza, en hann var einn af kunningjum krónprinsins. Já, hann fullyrti meira að segja síðar, að María hefði látið líklega við sig, aðeins til þess að geta fengið hann til að segja sér eitthvað um krónprins- inn. Og þegar María Larisch kom í heimsókn og María litla var að kæfa hana í kossum, sagði Anna systir hennar: „Láttu þér ekki detta í hug, að hún sé svona glöð yfir að sjá þig. Hún lætur svona af því að þú ert frænka krón- prinsins og líkist honum ofurlít- ið. Flýttu þér að segja henni, hvað þú hafir borðað í miðdeg- isverð í dag — hún hefur afskap- lega mikinn áhuga á því“. Syst- urnar fóru að kíta og María litla sagði gremjulega: „Hvað kemur það þér við, þó að ég sé hrifin af krónprinsinum? Hann er ekki líkur nokkrum öðrum á jarðríki; slíkur maður sem hann er ekki til —“. Og er greifynjan spurði hana, hvernig hún vissi það, lagði hun höndina í hjartastað og svaraði ljómandi af ham- ingju: — „Ég veit það, því að hjarta mitt segir mér það“. „Ein, er elskar yður heitt, sendir yður innilegar kveðjur“. — Skyldi þessi ástarjátning hafa vakið svipaðar tilfinningar í brjósti hans? Hann var orðinn þrítugur og hafði liðið miklar sálarkvalir. Eða vakti hún óseðj- andi forvitni hjá honum? Þetta var að minnsta kosti eins og upphaf að ævintýri. IV. Og dag einn var María litla í sjöunda himni: — Hún hafði hitt krónprinsinn, tekið í höndina á honum, horft í augu hans og talað við hann. Larisch greifynja var milligöngumaður. Hún hafði tekið Maríu með sér í skemmti- ferð og smyglað henni svo inn í höll krónprinsins. Eftir þetta vildi krónprinsinn hitta Maríu sem oftast, svo að María Larisch varð að taka hana með sér og sækja hana heim. Móðir hennar og aðrir í fjöl- skyldunni voru leyndir þessu. En María skrifaði vinkonu sinni, Hermínu X., um þetta svolát- andi: „Þegar við sjáumst í hljómleikahúsinu, veitist okkur hræðilega erfitt að láta á engu bera, svo að mamma eða Anna systir verði ekki varar við sam- band okkar. Hann grátbiður mig um að fara gætilega, svo að ekki komizt upp um okkur, því að hann getur ekki lifað án mín og missir vitið, ef hann fær ekki að sjá mig. Þetta skrifaði hann mér. Er það ekki alveg dásamlegt að fá slík bréf frá honum? Ég gæti heldur ekki lifað lengi án hans. Hann er minn guð — allt! Ég vildi gjarna senda þér bréfið frá honum, en M. L. hefur tekið það eins og öll bréf hans, og geymir þau fyrir mig, svo að hvorki mamma eða Anna geti komizt í þau“. Krónprinsinn og María stund- uðu einkennilegar bréfaskriftir. María varð að skrifa utan á sín bréf nafn einkaþjóns krónprins- ins, Loschek, og sendi Agnesi þjónustustúlku sína með það. Rúdolf var Agnesi þakklátur og launaði henni ríkmannlega milligöngu hennar. Bréf sín til Maríu sendL hann Agnesi, og þjónn hans, Loschek, sendi þjón sinn með þau! Elskendurnir áttu við marga örðugleika að stríða, og gátu ekki hitzt svo oft, vegna þess að María Larisch bjó á land- setri sínu og kom sjaldan í heim- sókn til Wien. — „Nú er M. L. farin og nú get ég ekki hitt hann fyrst um sinn“, sagði María Vet- sera, — „ég er að deyja af óþol- inmæði og tel tímana, þangað til hún kemur næst! Ég er alltaf að hugsa um, hvernig ég geti feng- ið að hitta hann, en það er ó- mögulegt án aðstoðar Maríu Lar- isch“. V. En hefur- ástin nokkuru sinni guggnað fyrir erfiðleikum? Og sá dagur hlaut að renna upp einhverntíma, sem María lýsir í bréfi til vinkonu sinnar: •— „Ég verð að játa dálítið fyrir þér. Ég var hjá honum í gær milli kl. 7 —9. Við erum bæði hálf rugluð. Við heyrum hvort öðru til með líkama og sál eftir þetta. Ég vona að ég sleppi við að fara á dans- leik með mömmu og Önnu á laugardaginn. Takizt það, þá fer ég til hans. Nú á ég ekki lengur sjálfa mig ein. Bara við gætum verið saman, bara að við gætum búið í kofa saman einhvers stað- ar! Við ræddum svo mikið um það, og vorum bæði svo ham- ingjusöm. En því miður geta vonir okkar aldrei ræzt. Ef ég gæti gefið líf mitt til þess að hann yrði hamingjusamur, skyldi ég með gleði gera það, því að hvað er líf mitt? Hermína — þegar sú stund kemur, að ég verð að flýja frá heiminum og menn- irnir fyrirlíta mig — þá ætla ég að biðja þig að dæma mig ekki“. Þessi bréf Maríu eru skrifuð um það leyti sem Rúdólf varð þrítugur og ritaði vini sínum, ritstjóranum, að hann vænti sér mikils af næstu tíu árunum, þrátt fyrir allt. Öll likindi benda líka til þess, og staðreyndirnar styðja þá skoðun, að ást hans til þessarar ungu stúlku og ábyrgð- in sem hann tók á sig, hafi glætt vonir hans og athafnaþrá að nýju. Að minnsta kosti á- kvað hann nú að brjóta af sér allar hömlur. Hann ritaði páf- anum bréf með eigin hendi og fór fram á að fá að skilja við konu sína, til þess að geta kvænzt aftur og gefið ríkinu ríkiserfingja. Páfinn sendi Franz Jósef keisara bréf Rúdólfs. Varð nú uppgjör milli þeirra feðganna, er endaði á þann hátt, að Rúdólf varð að lofa föður sínum að sætt- ast við konu sína og hugsa ekki um skilnað framar. Rúdólf var áríðandi að vinna frest til þess að geta leyst vandamál sín. Hann - átti marga vini víðsvegar um ríkið, sem aðeins biðu þess að hann léti þá heyra frá sér .... VI. í ungverska þinginu hafði margt sögulegt gerzt undan- farnar vikur. Deilurnar risu hátt. Þær höfðu byrjað á megnri óánægju með hin nýju herlög ríkisins, sem féllu ekki í smekk ungversku þjóðernissinn-

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.