Heima er bezt - 01.09.1952, Page 26

Heima er bezt - 01.09.1952, Page 26
282 Heima er bezt Nr. 9 inguna „In pacem“. Ég hef fund- ið vitnisburð um slíka atburði víðsvegar á Englandi. Tveir slík- ir staðir eru í greifadæminu Lincoln. Hjá bóndabæ rétt við þorpið Temple Brewer fann ég hinar lítilfjörlegu rústir af kirkju musterisriddaranna. Musteris- riddararnir voru geysilega rík og valdamikil regla á miðöldunum. Fornfræðingur nokkur, sem mjög er metinn af vísindamönn- um, kirkjuumsjónarmaðurinn G. Oliver, lýsir uppgreftri einum, er hann stóð fyrir, í bréfi til Vís- indafélagsins. Hann hafði rann- sakað Temple Brewer. „Nokkrar grafhvelfingar hafa verið notað- ar í augnamiði, sem er hryllilegt að hugsa um. í skoti einu fund- um við beinagrind af manni. Að grafa manneskjur lifandi inni í þykkum múrum var engan veg- inn óvenjulegt á fyrri öldum“. Það er vert að geta þess, að regla musterisriddaranna var leyst upp á fjórtándu öld, vegna guðsafneitandi djöfladýrkunar og siðferðlegri eyðileggingu inn- an hennar. Það er því hugsan- legt, að sá, sem beinagrindin er af, hafi verið einn af svörtum sauðum reglunnar. Mjög áþekkt fyrirbæri urðu menn áskynja um í grafhvelfingunni við Thornton Abbey fyrir um það bil hundrað árum. Thornton Abbey er einnig í Lincoln greifadæminu. Tilfellið er sérlega umhugsunarvert, þar sem leyfar þær er fundust þar, eru álitnar vera af sjálfum ábóta klaustursins. Því miður skortir glöggar sögulegar heimildir um þetta mál. Það væri óskandi, að blaðamenn hefðu verið uppi á þeim tíma og lýst atburðunum. Sagnaritarinn Stukeley (1687— 1765) segir svo: „Þegar menn rifu múrvegg nokkurn, fundu þeir beinagrind i sitjandi stöðu við borð með lampa fyrir framan sig“. Hver var hann? Tanner biskup skrifar í riti sínu um Thornton Abbey, en þetta rit er nú geymt í Bodleen- bókasafninu í Oxford, í kaflan- um um Walter Multon ábóta (1443): „Hann dó, en hvernig dauða hans bar að, veit ég eigi. Engin sálumessa var sungin yfir honum, eins og þó var venja, og gröf hans hefur aldrei fundist". Hvílíkur draugalegur harm- leikur frá myrkri miðaldanna lýsir sér ekki bak við þessi fáu orð? Ábótin af Thornton hafði hliðstæða þjóðfélagslega stöðu og greifar. Hann stjórnaði klaustrinu eins og einvaldskon- ungur — og þó varð slíkur höfð- ingi að segja skilið við lífið án eftirmælis, eða þeirra viðhafnar- siða er tíðkuðust við slík tæki- færi. Hverjar voru þær voðalegu syndir, sem þjónar kirkjunnar höfðu gert sig seka um, úr því að þeir hlutu svo hryllileg synda- gjöld? Væri hér um siðferðisaf- brot að ræða — hvar var þá hinn meðseki? Er það hugsanlegt, að hinir þykku múrar Thornton- klaustursins geymi leyfarnar af öðrum syndurum í leynihólfum milli steinanna? Háa kapellan á hæðinni undir St. Michaelsfjall- inu, sem gnæfir yfir ströndinni í Cornwall, er velþekktur og fjöl- sóttur ferðamannastaður. Þá er ég kom á staðinn, var mér greint frá því af sögufróðum manni, að á sextándu öld hefðu menn upp- götvað leyniklefa undir kapell- unni. Þar fundust leyfar af manni með krukku fyrir framan sig. Enda þótt margir kaþólskir höfundar hafi véfengt það, er það óyggjandi staðreynd, að menn voru grafnir lifandi á þennan hátt. En sumir kaþólskir höfundar telja, að hér sé um sér- staka greftrunaraðferð að ræða, þegar mikilsvirtir kirkjunnar menn áttu í hlut. En slík fullyrð- ing gerir eftirfarandi spurningar eðlilegar: Væri hér um að ræða sérstak- an heiður, hví voru þeir þá settir í nafnlausar grafir? Það er al- viðurkennt, að það var álitinn mikill heiður að vera greftraður inni í sjálfum helgidóminum, en venjulega aðferðin mun hafa verið sú, að grafa líkin djúpt undir gólfinu og setja minning- arplötu yfir staðinn. Þetta var eigi aðeins heiður sem hinum látna var sýndur, en af heil- brigðisástæðum var nauðsynlegt að gröfin væri djúp. Manns- líkami, sem var múraður inn í vegg, hlaut að verða valdur að hræðilegum ódaun eftir nokkurn tíma. Eitt sinn er rottur komust í hús mitt, tók ég það til bragðs að eitra fyrir þær. Ein af rottun- um drapst í holu sinni í veggnum, en ólyktin af henni varð brátt svo óþolandi, að ég neyddist til að láta rífa vegginn til þess að ná rottuskrokknum burt. Líkami fullorðinnar manneskju hlýtur að hafa dreift um sig margfallt verri ódaun. Þetta er sennilega ástæðan til þess að kviksetning í múrvegg varð aldrei opinber- lega viðurkenndur aftökusiður. En það staðfestir aftur á móti hugmyndir þeirra tíma um gildi refsinganna, þegar ofstopafullur yfirmaður gat fengið sig til að múra lifandi stúlku inni í veggn- um á sjálfu klaustrinu, fyrir það eitt að hún varð ástfangin. Og geta má þess til, að nályktin hefði verið þoluð vegna þess, að hún var aðvörun til annarra í klaustrinu um að feta ekki í fót- spor hinnar óhamingjusömu nunnu. Þó má ganga að því vísu, að fæstir þeirra, sem dóu „in pacem“ í skotum múrveggjanna hafi verið látnir rotna þar upp, heldur verið fluttir eftir nokkurn tíma og greftraðir á venjulegan hátt. Það er ennfremur alkunna, að eitt af refsimeðulum miðalda- kirkjunnar var að svelta söku- dólginn í hel í klefa, sem var svo þröngur, að þar var hvorki hægt að liggja eða standa uppréttur. Einn þessara viðbjóðslegu kvala- staða fannst í digurri súlu í Temple Church. En þessi kirkja stendur ennþá milli Fleet Street og Themsen, þrátt fyrir loftárás- irnar á þennan stað. Klefinn er fjögur fet og sex tommur á lengd og tvö fet og sex tommur á breidd. Ofurlítið loftgat er á honum, bæði til þess að veita inn hreinu lofti og svo til að gefa sökudólgnum möguleika á að fylgjast með helgiathöfnum fyr- ir háaltari kirkjunnar. Eftir loftárásina, þegar Temple Church varð fyrir sprengjum, fékk ég tækifæri til að skoða hana og fann þá píningarklefan óskemmdan. Hafði það hlíft hon- um, að hann var inni í súlunni. Sjálf kirkjan var mikið skemmd, en er nú í viðgerð. Sagnfræðingurinn hr. Addison segir svo um þessa gömlu kirkju: „í þetta viðurstyggilega fangelsi voru þeir færðir, sem óhlýðnuð-

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.