Heima er bezt - 01.01.1954, Blaðsíða 35

Heima er bezt - 01.01.1954, Blaðsíða 35
Nr. 1 Heima er bezt 31 Stórmerk nýjung frá Gefjuni: Grilon-Gefjunargarn Ullarverksmiðjunni Gefjuni hefur nú eftir umfangsmiklar tilraunir tekizt að framleiða nýja tegund af garni, stórum betri og fullkomnari en hér hefur þekkzt áður. Garn þetta er íslenzkt ullargarn blandað svissneska undraefn- inu GRILON, sem hefur alla kosti nylon og tekur við ullarlitum að auki. Þetta nýja GRILON-GEFJUNARGARN hefur alla kosti hinnar ágætu, íslenzku ull- ar, en kosti GRILON að auki. Þessir kostir GRILON gera garnið miklu sterk- ara en ella og auk þess verulega mýkra. Allir þeir, sem notað hafa Gefjunar- garn, munu reyna þetta nýja garn af forvitni og eftirvæntingu, og það mun standast prófraunina. Það mun tryggja sterkari og mýkri prjónavörur og kon- ur munu hafa ánægju af að prjóna úr þvi. GRILON-GEFJUNARGARNIÐ er mýkra og miklu sterkara en ann- að íáanlegt garn. — Fjórtán litir þegar fyrirliggjandi. GRILON-GEFJUNARGARNIÐ fæst hjá öllum kaupfélögum, Gefjun-Iðuni Kirkjustræti, Reykjavík, og ýmsum verzlunum. Ullarverksmiðjan GEFJUN

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.