Heima er bezt - 01.01.1954, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 01.01.1954, Blaðsíða 10
6 Heima er bezt Nr. 1 Kristján Jónsson frá Garðsstöðum: Ur stjórnmálasögu Islands Nokkrar hugleiðingar Mannlegt líf er jafnan háð meiri og minni tilviljun. ■— Þótt frjálsræðið sé í orði kveðnu viðurkennt og viljinn til að velja og hafna látinn óheftur í etnkamálum manna, að því er iýtur að makavali, sem jafnan verður einna afdrifaríkastur þáttur í lífi velflestra, og einnig ákvörðun um starf eða stöðu, svo tveir mikilvægir þættir úr einkalífinu Séu nefndir, þá ræð- ur fríviljinn ekki ávallt. í þessum efnum og ótalmörg- um öðrum, er það oft tilviljun eln, aðra stundina utanaðkom- andi atvik eða jafnvel óskiljan- leg öfl, sem skipa mannskepn- unni allt aðra stefnu en hún haföi sjálfri sér fyrirhugað. Hvort sem menn aðhyllast svo- nefnda forlagakenningu, að meira eða minna leyti, þá verður ekki gengið fram hjá þessum staðreyndum. Saga þjóðanna er háð svip- uðum tilviljunum. Örsmá atvik geta þar stundum ráðið geysi- miklu um örlög heillar þjóðar, og einatt án þess fyrirsvarsmenn þeirra fái þar við ráðið. Mörg dæmi úr veraldarsögunni stað- festa þetta, og ekki síður úr sögu þjóðar vorrar. Hinir fyrri sagnaritarar vorir og skáld voru flestir rammir forlagatrúarmenn; leggja þeir einatt áherzlu á að gera þær sögur að uppistöðu frásagnar sinnar, þar sem óafvitandi at- vik, stundum smá, leiða til ör- lagaríkra atburða. Segja má, að sex atburðir séu afdrifamestir í stjórnmálasögu íslands síðastliðna öld. Allir marka þeir tímamót. Þeir eru: Þjóðfundurinn 1851. Stjórnarskráin 1874. Heimast j órnin 1904. Millilandanefndin og uppkast- ið 1908. Síðari millilandanefndin í Reykjavík, 1918, fæddi af sér fullveldið. Síðast kemur svo lýðveldið siglandi 1944, að vísu eftir pönt- un, en ekki vorum við þó að öllu sjálfráðir um þann mikla atburð. Aðrar þjóðir skópu oss hér ör- lögin. Fyrst er að nefna þjóðfundinn 1851, Hversu hefði sjálfstjórnar- mál vort skipazt, ef Jón Sigurðs- son hefði eigi á réttum tíma bor- ið fram hin djörfu mótmæli sín? Að vísu höfðu ýmsir þjóðfuhd- arfulltrúa lýst andúð sinni á innlimunarfrumvarpi dönsku stj órnarinnar, og svar konungs- fulltrúa við þeim aðfinnslum var fyrirvaralaus tilkynning um, að þjóðfundinum yrði slitið, og hann lét forseta slíta fundinum tafarlaust. En þá heyrðist hið sí- gilda og snjalla svar Jóns Sig- urðssonar, er honum hafði ver- ið meinað að taka til máls: „Ég mótmæli í nafni konungs og þjóðarinnar þeirri lögleysu, sem hér er höfð í frammi.“ Við þetta þokaðist fylking hinna þjóðræknu og sóknharð- ari fulltrúa saman í þéttan varn- armúr og þeir tóku einum munni undir mótmæli foringj- ans: „Vér mótmælum allir.“ Þótt árangur yrði enginn í bili af mótmælum þjóðfundarfull- trúanna, þá var hér skorin upp herör, sem entist þjóðinni í ára- tugi, minnti forystumenn þjóð- arinnar á að ganga aldrei að neinni svikasætt við Dani, halda fast við forn réttindi landsins, sem líka voru túlkuð af slíkum lærdómi, ritsnilld og skörungs- skap næstu áratugina af Jóni Sigurðssyni, að slíks munu ekki dæmi í sögu neinnar þjóðar ann- arrar. Þá er það stjórnarskráin 1874. Hún kom nokkuð óvænt og í öðru formi en þjóðarforingjar vorir höfðu hugsað sér. Mestum óhug olli, að tilvitnunin í stöðu- lögin frá 1871, sem ríkisþing Dana hafði sett gegn mótmælum Alþingis og íslendinga yfirleitt var tekin upp í stjórnarskrána. En er stjórnarskráin kom til framkvæmda, sannfærðist þó meginþorri landsmanna um, að hér var betur farið en heima setið, þrátt fyrir ýmsar ávant- anir. Löggjafarvald, þótt tak- markað væri, sem landið öðlað- ist, og fjárveitingarvald ennþá mikiisverðara, skapaði þjóðinni aiveg ný stjórnmálaviðhorf. Með þessari stjórnarskrá var vísir að sérríki sett á stofn, þótt vanmáttugt væri og bundið í báða skó af yfirdrottnan Dana. Næsta skrefið var innlenda ráðherrastjórnin, er sett var á laggirnar í ársbyrjun 1904, 30 árum eftir þjóðhátíðarstjórnar- skrána. — Hún fæddist eftir langa hríð og harða. Upp úr 1880 var þegar farið að hreyfa breytingum á stjórnar- skránni, enda hafði í rauninni verið gefið fyrirheit um það af dönsku stjórninni, að stjórnar- skráin frá 1874 skyldi endur- skoðuð um það áratug frá setn- ingu hennar. Sú stefna, sem lengstum er haldið fram á þess- um baráttuárum, var svonefnd landsstjóra-hugmynd,sem Bene- dikt Sveinsson var frumkvöðull að. — Stj órnarskrárfrumvörp um þetta efni voru samþykkt af Alþingi fjórum eða fimm sinn- um árin 1885—94, en ávallt synjað staðfestingar af konungi. — Þetta var ákaflega þreytandi barátta. Þegar til baka er litið, má raunar þykja betur að Benedizk- an varð ekki að lögum. — Það var gert ráð fyrir landsstjóra konungs eða jarli, sem hefði ráð- gjafa, tvo til þrjá, sér við hlið, en lítt eða ekki var greitt úr á- greiningnum um sameiginlegu málin. Það kom líka í ljós af um- mælum ýmissa þingmanna síð- ari árin, að þeir greiddu stjórn- arskrárfrumv. (Benedizkunni) atkvæði, þótt þeir væru óánægð- ir með frumvarpið, í því skyni að knýja íslandsráðherrann til að koma að einhverju á móts við Alþingi með nýtt frumvarp. — Dráttur varð þó á því. Danska

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.