Heima er bezt - 01.08.1954, Blaðsíða 3

Heima er bezt - 01.08.1954, Blaðsíða 3
Nr. 8 Heima er bezt 227 Jóhannes Friðlaugsson, rithöfundur: Viðburðaríkur vetrardagur Laust fyrir 1870 bjó bóndi sá á Birningsstöðum í Laxárdal, er Árni hét Magnússon. Hann bjó síðar • í Rauðuskriðu og var við þann bæ kenndur. Árni var fjár- margur og þótti sýna nokkra hörku í að halda fé sínu til beit- ar, sem ekki var óalgengt á þeim tíma. Þá var hjá honum sauðamað- ur, unglingspiltur, Bergvin Þórð- arson, er síðar bjó á Brekku í Aðaldal, og er hann heimildar- maður að eftirfarandi frásögn. Einn var sá gripur í búi Árna bónda, sem ekki þurfti að búa við harðrétti. Var það hestur, bleikur að lit, reiðhestur hinn bezti. Var Árni hestamaður góð- ur og hafði ást mikla á Bleik. Mátti enginn maður koma á bak honum, nema Árni sjálfur. Og hvað mikið sem við lá, var Bleik- ur aldrei snertur til neins nema þegar Árni þurfti að nota hann. Var hesturinn heldur illa þokk- aður á heimilinu meðal vinnu- fólksins, því þegar aðrir hestar voru í notkun, t. d. við heyflutn- ing á sumrin, dansaði Bleikur innan um hestana, sleit taum- ana og setti niður heybagga. Var þá ekki laust við, að heimflutn- ingsmenn, sem oftast voru lið- léttingar, létu bölbænum rigna yfir þann bleika og bæðu honum ófarnaðar, fyrir þann óleik, sem hann gerði þeim, en þeir sjálfir máttu ganga með hverja ferð allan daginn. Það ár, sem saga þessi gerð- ist, hafði Árni Magnússon 3 vinnumenn. Var einn sauðamað- ur, annar ærmaður, en sá þriðji átti að gæta lamba og kúa, en bóndi sjálfur mun hafa hirt hest- ana. Sauðamaðurinn var Bergvin Þórðarson, sem áður er nefndur. Var hann nýfermdur og óharðn- aður og varla fær um að fylgja sauðunum fast til beitar eins og þá var venja að gera. Einn vetrardag fór Bergvin til sauðahúss árla morguns eins og venja hans var. Stóðu sauðahús- ijiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii | Þær gerast nú færri sög- i i urnar um átök manna við I | stórhríðarbylji og vetrar- i i gadd, enda er nú ekki eins | I hart sótt til vetrarbeitar | i með fénað og áður var. i i Beitarhús eru víðast lögð i | níður og sauðir engir til | 1 lengur. í þessari frásögn i i greinir Jóhannes Friðlaugs- | i son, rithöfundur og kenn- i i ari í Haga í Aðaldal í Suð- i 1 ur-Þingeyjarsýslu, frá við- f i ureign manna á einum bæ i i við Vetur konung einn stór- \ f hríðardag seint á 19. öld. | mmmmmmmmmmmmmmmmimmmmmmmmm in norðan við bæinn og var nokk- ur spölur milli húsanna og bæj- arins. Dimmt var í lofti, en hægviðri. Lét Bergvin út sauðina og rak þá til beitar austur yfir Laxá, sem var á ísi, og yfir í Kast- hvammsbrekkur. Hafði Árni fengið beitarleyfi hjá bóndanum í Kasthvammi. Eru brekkurnar brattar mjög, en beitisælar, og var í þetta sinn góð jörð í brekk- unum. Meðal sauðanna var forustu- sauður einn grár að lit, mikil vit- skepna og hin bezta forustukind. En þennan morgun brá svo við, að Gráni vildi ekki fara frá hús- unum, eða á undan sauðunum, eins og hann var vanur. Átti sauðamaður lengi í stríði við hann, og gat að lokum komið honum með hinum sauðunum til beitar. Þótti sauðamanni undar- legt háttalag hans, því að hann hafði jafnan verið auðsveipur og góður í rekstri. Ekki tók betra við þegar sauðirnir fóru að beita sér, því að þá tók Gráni sér stöðu neðarlega í brekkunum og varn- aði sauðunum að fara ofar í brekkurnar, eins og þeir voru jafnan vanir að gera. Ekki greip Gráni í jörð, en var á rölti ofan við sauðina og reyndi að stjaka þeim niður á við jafnótt og þeir leituðu upp eftir. Skildi Bergvin ekkert í háttalagi Grána, en taldi, að þetta mundu vera ein- hverjar kenjar í sauðnum. Leið nú fram eftir deginum og dimmdi frekar í lofti þegar á daginn leið og tók þá að snjóa í logni. Hélt Bergvin sig neðan við sauðina um daginn, og sat löng- um undir kletti einum niður við ána, en hraun er beggja megin árinnar á þessum slóðum. Las hann í Passíusálmunum, því að hann hafði þá jafnan með sér, þegar hann stóð yfir sauðunum. Mun móðir hans hafa lagt svo fyrir hann, en hún var vinnu- kona á Birningsstöðum. Allt í einu heyrði Bergvin þyt mikinn í lofti, og skipti engum togum, að skollin var á iðulaus norðan stórhríð. Var hann þá fljótur að stinga Passíusálmun- um í barm sér og tók að svipast um eftir sauðunum. En hann þurfti ekki langt að leita þeirra, því að Gráni var kominn með all- an hópinn niður úr brekkunum og niður á hraunjaðarinn við ána. Lagði Gráni þegar á ána; var hún ekki mjög hál, því að snjór var víðast ofan á ísnum. En þó slitnaði hópurinn í sundur á ánni, og hvarf Gráni út í iðuna með nokkra sauði með sér, vest- ur yfir ána. Leizt nú sauðamanni ekki á blikuna og taldi vonlaust, að hann kæmi sauðunum til húsa, fyrst Gráni var farinn. Reyndi hann samt að halda sauðunum saman og tókst hon- um að lokum að koma þeim öll- um vestur yfir ána. Varð hann vonbetri með heimferðina, þeg- ar hann sá, að þar beið Gráni með félaga sína, en lagði þegar af stað, þegar Bergvin kom með hópinn. Lét hann Grána alveg ráða ferðum, enda átti Bergvin fullt í fangi með að halda sauð- unum saman og láta þá bág- rækustu ekki slitna aftan úr hópnum. Var hríðin svo dimm, að ekki grillti út úr augunum, og veðurhæðin svo mikil, að varla var hægt að ráða sér. Gráni gætti þess vandlega að

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.