Heima er bezt - 01.08.1954, Side 13

Heima er bezt - 01.08.1954, Side 13
Nr. 8 Heima er bezt 237 FRÁ LIÐINNI TÍÐ Flestir, sem leið eiga austur yfir fja.ll nú á dögum, þekkja Kolviðarhól, reisulega burstabæinn, sem blasir við, þegar komið er af Svínahrauni að hlíðum Hellisheiðar. Áður fyrr mun þó Kolviðarhóll hafa verið meir í huga ferðamanna en nú, því að þá var hann næsta byggt ból við heiðina að vestan og sjálfsagður áningar- eða næturstaður gesta og gangandi. Var þá oft þröngt í húsum á Hólnum, og margur náði þeim áningarstað harla feg- inn, hvort sem hann kom frá Reykjavík eða austan yfir Hellisheiði. Hélzt þetta lengi fram eftir, jafnvel fram á bílaöld, einkum á vetrum, unz skíða- skálinn í Hveradölum tók að mestu við gestanauðinni. Síðustu árin hefur lítill búskapur verið á Kolviðarhóli, en íþróttafélag mun hafa haft þar bækistöð til vetraríþrótta. Nú er þar autt að sjá, en staðarlegt heim að líta. Hóllinn má muna sinn fífil fegri. en á Miðhópi Sturla. Gæti ég ættfært báða, en sleppi því hér. Jens hafði verið póstur. Alltaf riðum við Bjössi fet fyr- ir fet. Allar ár voru í flóði, og spurðum við aldrei um vöð, enda var ég þaulvanur að sundríða stórvötn, þar sem ég hafði marg- þvælzt um alla Austfirði og Hérað, — og Gráni synti eins og selur. Hlutgengur i Hjálpræðis- herinn. Lítið var til skemmtunar á þessu ferðalagi. Eina bók hafði ég þó með í förinni, annars var allt mitt dót sent með skipi frá Reykjavík til Sauðárkróks. Bók þessi var söngbók og sálmabók Hjálpræðishersins. Hana hafði ég keypt syðra um veturinn, því að ég sótti oft hjálpræðishers- samkomur, ekki af trúarlegum ástæðum, heldur til að hlusta á söng þeirra, sem var í flestum tilfellum prýðilegur. Lærði ég flest lög þeirra og marga sálma og kann að minnsta kosti lögin enn þann dag í dag. Er ég því hlutgengur á hvaða hjálpræðis- herssamkomu sem væri. Síðustu dagana, sem ég var í Reykjavík, var ég byrjaður á að snúa sálm- unum í veraldlegri ljóð, og hélt ég því verki áfram á bakinu á Grána, og sungum við Bjössi. Ekki alls fyrir löngu hef ég heyrt suma þessa sálma sungna (ein- stök vers) eins og ég sneri þeim þarna á leiðinni, en hvernig þeir hafa borizt út, veit ég ekki. Frá Miðhópi fórum við eftir ágæta gistingu, en þó talsvert viðburðaríka, þótt ekki verði hér frá greint frekar, og var næsti áfangi Blönduós. Þar fengum við ágætar viðtökur hjá föður- bróður Bjössa, Hjálmari trésmið, og hef ég víst notið Bjössa þar. Á Blönduósi náði ég í brenni- vínsflösku, en litið var hún not- uð þann dag. Um kvöldið fórum við að Æsustöðum í Langadal og gistum þar. Daginn eftir héldum við að Víðimýri, og var þá póst- urinn þar fyrir, er við komum, og Þorvaldur í óðaönn að af- greiða hann. — Þarna skildum við Bjössi, og hélt hann áfram með póstinum til Akureyrar, tæmdum við áður flöskuna, sem að vísu var langt komið úr áður. Ég settist síðan inn í stofu og beið ráðstöfunar Þorvaldar og hafði ekki augun af karlinum, því að mér þótti hann merkileg- ur. Þegar póstur var farinn, fór karl að frétta um hagi mína. Sagði ég honum eins og var um ferðir mínar og ég held ævisög- una alla, svona í lausum drátt- um. Karl spyr mig, hvort ég sé ekki svangur. Jú, auðvitað var ég það. Stuttu síðar fékk ég nóg- an og góðan mat, og borðaði Þorvaldur með mér. Að því loknu fékk karl sér í pípu, og var hún afarlöng með glerhaus, lítið styttri en eigandinn, sem var hár maður. Þorvaldur segist þá hafa ákveðið að láta fylgja mér á hestum hér út sveitina, þar til ég fengi hest og íylgdarmann til Sauðárkróks. Ekki hafði Popp beðið hann slíks, en Þorvaldur sagðist ekki kunna við að láta dauðþreyttan mann úr öðrum landsfjórðungi fara gangandi eftir slíku hrossahéraði sem Skagafjörður væri. Stuttu síðar voru heim komnir óþreyttir hestar, en fylgdarmað- ur minn var Steingrímur, sonur Þorvaldar, nú búsettur á Sauð- árkróki, en þá unglingur heima hjá föður sínum. Þegar ég kveð Þorvald, spyr ég hann, hvað all- ur þessi greiði kosti. Karl segir, að hann kosti ekki neitt, en spyr jafnframt, hvort ég sé ekki peningalaus. Jú, ég var það. Snarast þá Þorvaldur inn og kemur aftur að vörmu spori með tíu krónur og segir, að ég skuli fá þetta að láni hjá sér og borga sér bara, þegar hann komi næst á Krókinn. Talaði karl mikið um, að slæmt væri að vera pen- ingalaus í ókunnu plássi. Við Steingrímur héldum nú af stað og riðum greitt. Kom hann á flesta eða alla bæi þarna út Langholtið og bað um hest og fylgdarmann fyrir mig til Sauð- árkróks. En engan fékk hann

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.