Heima er bezt - 01.08.1954, Page 15

Heima er bezt - 01.08.1954, Page 15
Nr. 8 Heima er bezt 239 Lítið sandsteinsbrýni með rúnaletri seg- ir sögu um ferð Gotlendinga til Islands Stutt Gotlandsferð með Njáli víkingi Ég sit í biðsal á Bromma- flugvelli við Stokkhólm og bið. Regnið streymir úr loftinu, og flugförinni til Gotlands hefur verið frestað um eina klukku- stund. Ég stytti stundirnar við að renna augum yfir síð- degisblöðin og festi hugann við frásögn af einhverjum garðyrkjumanni úr Smálöndum. Sá hefur sem sé tekið sér fyrir hendur að finna gullskip Valde- mars konungs, sem hélt heim- leiðis frá ránum á Gotlandi um miðja fjórtándu öld en sökk suð- ur af Stóru-Karlsey undan suð- urodda Gotlands. Af því að ferð minni er nú heitið til Gotlands, les ég frásögnina, þótt yfir henni sé allmikill lausungar- og ævin- týrabragur. Garðyrkj umaðurinn hefur bú- ið skútu vel og fengið til kafara og önnur botnrannsóknartæki. Hann ætlar að hafa bækistöð í Klintehavn á Gotlandi og halda þaðan á „miðin“. Með í förinni eru kvikmyndamenn frá Ev- rópu og Ameríku, nokkrir blaða- menn og fleiri undarlegir geml- ingar. Garðyrkjumaðurinn seg- ist vera orðinn dauðleiður á því að leita gulls í moldinni árang- urslaust og vilji því halda á vot- ar slóðir fullviss um að gullskip Valdemars finnist, þótt margir hafi horfið tómhentir heim úr slíkri leit síðustu aldirnar. Það er sem sé engin ný bóla að gera út leiðangur til að leita að gull- skipi Valdemars konungs. Njáll Víkingur í Gotlandsflugi. Og sem ég er að leggja úr höfn með garðyrkj umanninum í frá- sögninni, er kallað, að farþegar skuli stíga í flugvélina til Got- lands. Þetta er tveggja hreyfla Douglas-flugvél, alveg eins og þær sem fljúga til Akureyrar, og ég get ekki stillt mig um að brosa, þegar ég sé, að hún ber nafnið Njáll víkingur. Skyldi Njál karl hinn forvitra og skegg- lausa hafa grunað, að sú kæmi tíð, að honum yrði gefið víkings- Æskan gengur á stefnumót i gömlum bog- hvelfingum. Hvað er púsund ára stein- múr á borð við einn kosst Skarðar boga- súlur gamalla kirkna veita œskunni hlíf og skjól. nafn og látinn sigla himnahöf í gammslíki til Gotlands. Slíkur forvitri mun hann naumast hafa verið, og íslendingurinn hlýtur að heilsa þessum nýja Njáli með góðlátlegu brosi, og honum finnst, að Njáll hljóti að brosa líka, því að þarna eiga þeir tveir einir svolítið leyndarmál sam- eiginlegt. Skemmstu leíð yfir sundið. Á örskammri stundu vippar Njáll víkingur sér upp í sólskin- ið fyrir ofan rigningarsúldina, stefnir suður á bóginn yfir landi. Hér gildir sú varúðarráðstöfun síðan Rússar réðust á sænsku flugvélarnar rétt norðan við Gotland fyrir tveim árum, að flugvélarnar skuli ekki fljúga beina stefnu frá Stokkhólmi til Gotlands, heldur fyrst yfir landi, en síðan beint út skemmstu leið yfir sundið. Með því móti er minni hætta á, að þær fari óvart Visby-múrinn stendur enn mjög litt liaggaður eftir þúsund' ár eða meira. Turnarnir gnæfa hinir reisulegustu, þó margir endurbyggðir á siðari öldum. Gróðurinn vefst um steininn. Hér sést norðurmúr borsarinnar.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.