Heima er bezt - 01.08.1954, Page 26

Heima er bezt - 01.08.1954, Page 26
250 Heima er bezt Nr. 8 Hann sagSi fátt og Geirmundur yrti heldur ekki á hann. — Jú, hreindýrin voru þarna í nándinni. Vind- urinn stóð úr réttri átt. Þetta leit ekki illa út. Tutt- ugu til þrjátíu dýr kannske. — En byssan mín er ónothæf, sagði Geirmundur dálítið snúðugt. — Mín líka, svaraði Jens í sama tón. — En þú talaðir um gildru, skaut Ingólfur inn í. — Já, já, vertu bara rólegur-------- Þá er Jens hafði hitað reynitrésstofn einn yfir eldinum svo að hann var orðinn beygjanlegur, læddust þeir gætilega inn í gegnum þröngan dal. Hann var nærri því eins og hlið, en breikkaði eftir því sem nær dró dalbotninum. í dalnum var fullt af stórum klettum, sem höfðu hrunið úr hlíð- unum. Ef þeim skyldi nú takast að reka flokkinn ofan í dalinn, þá------ — Þá getum við legið á brúninni og rotað dýrin með steinkasti, sagði Ingólfur ákafur. — O, ekki lízt mér á það, sagði Jens. Hreindýrin ganga ekki svo hæglega í gildruna, geturðu reitt þig á. Og ef hópurinn hefur orðið hræddur og kem- ur á fleygiferð niður í skarðið hérna, reynir hann að komast upp hlíðina en hleypur ekki beint inn í stórgrýtið. Og einasta leiðin upp úr dalnum er að fara upp klettahrygginn þarna, sem nær alla leið upp á brún. Og þar á gildran að vera. Hryggurinn var eins og upphækkaður vegur nærri upp á brúnina. Neðst var hann breiður og flatur en mjókkaði eftir því sem ofar dró og efst hvarf hann inn í skaflana, sem slúttu fram yfir brúnina. Miðja vega átti gildran að vera. Jens stakk rótarenda trésins inn í glufu í klettinum, svo að það lokaði leiðinni eins og bóma, einn metri á hæð. Nú tóku þeir allir á og sveigðu tréð, svo að toppurinn náði inn að hamrinum. Þar festu þeir krónuna um steinnibbu. Reipið bundu þeir við krónuna. Þegar hreindýrahópurinn kæmi hlaup- andi, myndu þau fremstu steypast niður skaflinn og festast í reipinu. Myndu þeir þá geta unnið á þeim. Geirmundur skalf af ótta þegar honum skildist, hvernig Jens ætlaði að fara að þessu. Ingólfur lá á brúninni og starði niður á þennan hættulega dýraboga. — Jæja, þá verðum við að hefjast handa, sagði Jens. Tveir okkar læðast suður fyrir og fara að öllu sem gætilegast. Þeir styggi hópinn og sveigi hann í áttina hingað. Hinn þriðji verður að passa reipið og kippa bómunni burt, þegar síðasta dýrið er komið fram hjá. Hann leit á drenginn. — Þú passar reipið, sagði hann. Orðin voru eins og þau væru höggvin í stein. Það var engin leið önnur. Það kom kökkur í hálsinn á drengnum, hann draup höfði, sagði ekki eitt orð. — Og við báðir, sagði Jens við Geirmund, við læðumst fyrir hópinn------- í sömu andrá kemur atvik fyrir. Klaufir mylja skarann, horn og fætur rekast á. -----Sem grá alda kemur hreindýrahópurinn æð- andi gegnum skarðið, kroppur við kropp, hornin eins og lifandi skógur. Snjórinn stendur eins og reykur umhverfis hópinn. Hraðinn eykst og eykst. Mennirnir þrír á brúninni vörpuðu sér niður í snjóinn og störðu á þennan hafsjó af mat. Þeir skulfu, fundu engin orð. Hópurinn hafði fælzt við eitthvað og kom nú einmitt þá sömu leið, sem þeir ætluðu að reka hann. Hinn stóri hópur nemur staðar niðri í skarðinu. Steinarnir og stórgrýtisurðin lokar leiðinni. Hætt- an getur leynst bak við stórgrýtið. Forustuhreinn- inn, stór og sterkur tarfur, snýr við og hleypur upp í skarðið og hópurinn eltir. Tarfurinn lætur sem hann sjái ekki djúpið. Vindurinn er á eftir honum og hann virðist þefa hættu í nánd. — Togaðu í reipið! hvíslar Geirmundur um leið og tarfurinn fer fram hjá. Hann dregur andann ótt og títt. Ingólfur hefur kropið inn að Jens og held- ur fast í skinntreyjuna hans. En Jens virðist taka þessu öllu rólega; hann heldur um reipið. Dýr eftir dýr fara framhjá og hlaupa lengra upp í skarðið, sem beygir nú meðfram hamraveggn- um. Hópurinn er líkastur grárri móðu, sem streym- ir upp á móti. Andi dýranna stendur eins og þoka kringum höfuð þeirra. Tarfurinn á undan en hættan bak við hópinn. Áfram, áfram------ — Dragðu reipið að þér! hvæsir Geirmundur inn í eyrað á Jens. Jens lítur til hliðar. Andlit hans er eins og meitl- að í stein og svitinn bogar af honum. Hann reynir að brosa, en brosið verður aðeins að kipringi á vör- unum. — Hæðnisbros! hugsar Geirmundur. Þú ert alltaf eins og pelabarn, og þú ert hræddur eins og stelpa, en hann liggur þarna með reipið og er karlmaður! Og hlær að þér----------. Á sama augnabliki og síðasta hreindýrið nær reynitrésboganum, steypist tarfurinn út yfir snjó- hengjuna. Dýrin steypast eins og skriða fram af, sum tvö saman, fleiri í einum hóp, því að alltaf er rekið á eftir þeim af hópnum á eftir, enginn veit neitt fyrr en klaufir þeirra renna á hálum ísnum og allt fer á fleygiferð og engin björg ná- lægt------. Fimm dýr sjá hættuna og standa skjálfandi á klettasyllunni. Síðasta dýrið er tarfur með stóran hornbúnað. Hann er orðinn forustuhreinn; hann skilur allt í einu hættuna, sem framundan er. Hann snýr snöggt við og hleypur niður hlíðina, hleypur fram hjá reynitrénu, gildrunni. —------- Það var engu líkara en að slanga stæði stíf í loftinu frá trénu og upp að svellhengjunni, þar sem mennirnir lágu — reipið slöngvaðist út í loftið, hitti tarfinn og næsta dýr og sópaði þeim ofan í djúpið. Hin þrjú fóru sömu leiðina.------

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.