Heima er bezt - 01.08.1954, Qupperneq 27

Heima er bezt - 01.08.1954, Qupperneq 27
Nr. 8 Heima er bezt 251 I nokkrar mínútur hafði verið dómadagshávaði. Nú varð allt kyrrt, ekkert hljóð, ekkert dýr. Bóman stóð beint út frá hamraveggnum og sveiflaðist upp og niður. Geirmundur Stóð strax á fætur og ætlaði að hoppa niður á sylluna, en Jens greip í handlegg- inn á honum. — Bíddu dálitla stund! Fleiri koma á eftir. Hann lét Ingólf halda í reipið meðan hann stökk niður og sveigði tréð niður svo að það lokaði fyrir einstigið. Síðan gekk hann upp á brúnina og settist niður og beið. — Hreindýrin hafa styggst, en hvað hefur styggt þau? Frá brúninni gátu þeir ekki séð neðsta hluta syllunnar, en engu að síður var eins og þá grun- aði, að þar væri eitthvað óvenjulegt á ferð. Ing- ólfi virtist í svip sem hann heyrði marr í snjónum, en það var stinningsvindur, svo að erfitt var að hlusta. Þeir höfðu ekki augun af staðnum, þar sem syllan beygðist um horn í hamraveggnum. Snjór- inn fauk yfir hjarnið og myndaði smáfannir kringum þá. í fjöllunum í suðri heyrðu þeir lang- dregin gól, en það var of langt burtu, til þess að það hefði getað styggt hreindýrahópinn. — Þarna! segir drengurinn. — Þarna kemur það, sem styggði þau! Og nú kom orsökin i Ijós. Þetta, sem hafði gert hreindýrin alveg tryllt. Nú var það á syllunni. Kom að gildrunni. Drottinn minn! í svörtu pilsi, með grátt sjal, hvíta vettlinga og rauða skotthúfu. Geirþrúður! Mennirnir urðu utan við sig. Eftirvæntingin og óttinn breyttist í hlátur — þeir hlógu af þessari ó- væntu sjón, þangað til þeir voru að því komnir að springa. — Ég veit ekki, sagði Geirmundur, kannske ætt- um við að sleppa henni fram hjá okkur? — Auðvitað! sagði Ingólfur. — Nú, sagði Jens hlæjandi, ég er ekki svo viss úm það! Geirþrúður hafði fylgt hreindýraslóðinni. Hún hafði ætlað að ná mönnunum, en hafði villst of langt í suður. Þá er hún sneri við, hafði hreinhóp- urinn orðið var við nálægð hennar. Sjálf hafði hún ekki séð eitt einasta dýr, en fylgdi hún slóðinni, myndi hún fyrr eða síðar hitta mennina, hafði hún ályktað. Henni fannst það dálítið óskemmtilegt að klífa upp hlíðina, en þar sem hreindýrin komust, kæmist hún sennilega líka, hugsaði hún. — Nei, nei, þetta er ekki óhætt, hvíslar Geir- mundur. Ef reynitréð skyldi nú losna af sjálfu sér? Það er nóg ef hún bara hreyfir við því, þá sveiflast það ofan á hana. Jens var einnig mjög uggandi. Hann lagðist á kné, eins og hann ætlaði að hrópa á hana, en gat ekk- ert sagt. Skelfingarsvipur kom á andlit hans. — Það verður að ganga eins og verkast vill, hvísl- aði hann. Hinir stóðu upp til að sjá, hvað hann átti við — og stóðu eins og steingerðir. Lengra niðri á syllunni var eitthvað á hreyfingu. Eitthvað grátt, sem þræðir í spor hennar! Tveir soltnir úlfar hafa verið á eftir hreindýrahópnum. En þessi svarta og rauða vera? Þeir læðast fast meðfram hamrinum. — Við — við verðum að hræða þá. Við veltum steinum niður! hvæsir Geirmundur. — Þei! hvíslar Jens. Geirþrúður sér ekkert óvenjulegt. Hún sér ekki reipið sem liggur upp hamrana og heldur ekki reyni- tréð, sem hahgir þarna eins og kylfa dauðans, til- búið að sópa öllu kviku ofan í djúpið. Hún sér að- eins hreindýrasporin. Ný spor — þeir geta ekki ver- ið langt undan. Og hægt og rólega fer hún fram hjá dauðanum, sem situr um hana. En hún nemur staðar. Hvaða leið á hún að fara? Skarðið verður æ mjórra. Getur þetta verið rétt? Hún lítur aftur fyrir sig-----og hljóðar upp yfir sig. Hún ætlar að hlaupa, en angistin lamar hana svo að hún kemst ekki úr sporunum. Hún baðar höndunum hjálparlaust út í loftið og veifar ein- hverju burt frá sér, eins og það séu draugar. Úlfarnir læðast nær. Hungrið rekur þá áfram, enda þótt þeir séu skjálfandi af ótta. Hún ætlar að æpa, en það er eins og hálsinn sé lokaður. — Þá gerist nokkuð óvænt. Jens kippir í reipið og rétt á eftir fellur reynitréð á móti úlfunum og sóp- ar þeim út af syllunni. Þeir hvirflast út í loftið eins og tvö svört strik og falla niður í urðina hér- umbil samtímis. Brothljóð heyrist, þegar kroppar þeirra malast í urðinni. Geirmundur hljóp á móti konu sinni. Hún lá á snjónum, en gat aðeins greint hann áður en hún missti meðvitundina. XVI. Að afhallandi degi kom einkennileg lest upp hinn eyðilega Einidal. Geirmundur í Króki gekk fremstur. Tómhentur. Á eftir honum koma flestir hinna nauðstöddu í sveitinni. Húsmennirnir. Ey- steinn í Einihlíð ásamt dóttur sinni. Þau draga eldiviðarsleða. Þarna er Arendt á Ytribæ með skíðasleða. Og Pétur á Klukkuhæð, Óli Tovmoen með Karenu dóttur sinni. Og svo er Þorleifur gamli með konu sinni, og margir fleiri. Allra síðast er Guðlaug gamla hans Guðmundar blinda. Allir eru með tóma sleða og ganga þögulir og hæglátir, eins og þeir væru á leiðinni til kirkju. Hjá Króki beygir ferðafólkið upp í birkiskóginn og gengur í sneiðingum upp hlíðarnar. Geirþrúður hefur nú slegizt í hópinn. Hún gengur við hlið Guðlaugar og hjálpar henni að draga sleðann. Skar- inn brotnar undir fótum þeirra svo að marrar í, og það ískrar í sleðameiðunum. — Ég get varla trúað, að það sé satt, hvíslar Guðlaug. — Ja, það er næstum því kraftaverk. Hefði ég ekki séð það sjálf, þá — sagði Geirþrúður. — Þrjátíu og tvö hreindýr, segir Geirmundur. — Ja-á, eitthvað nálægt því. Þau lágu í kös, svo að það var erfitt að telja þau. Guðlaug gengur þögul dálitla stund. Hún lítur öðru hverju útundan sér til Geirþrúðar. — Það er undarlegt að hugsa sér svo mikinn mat í einni hrúgu. Geirþrúður svarar ekki. Hún spyrnir fótum við

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.