Heima er bezt - 01.08.1954, Side 29

Heima er bezt - 01.08.1954, Side 29
Nr. 8 Heima er bezt 253 Skyggnst um . . . Framh. af bls. 232. fánastengur í miðbænum og við Tjarnargötuna. Hannes Hafstein bjó þá í stóru húsi á Melunum, er Valhöll hét, og þar var forsæt- isráðherra Dana ætlað að gista, meðan hann dveldist í Reykj avík, en konungur og fylgdarlið hans skyldi hafa aðsetur í Mennta- skólanum. Síðar um daginn (29. júlí) vorum við fengnir til þess að vinna við ýmis konar minni háttar lagfæringum og breyting- um í Valhöll, bústað Hannesar Hafstein. Unnum við þar stanz- laust alla nóttina. Hannes fylgd- ist vel með öllu, smáu og stóru, og sagði fyrir, hvernig hvað eina skyldi vera. Þegar við hættum vinnu um morguninn, borgaði hann okkur tíu krónur hverjum. Þótti okkur það vel borgað. Af öllum þeim merku mönn- um, sem ég sá og kynntist í Reykjavík á þessum árum, er Hannes Hafstein mér einna minnisstæðastur. Hann var mik- ið glæsimenni, fríður sýnum, mikill að vallarsýn og rammur að afli. Hann bar og höfuð og herðar yfir flesta samtíðarmenn sína hvað andlega yfirburði snerti, enda var hann virtur og dáður af öllum, sem kynntust honum, jafnt samherjum sem andstæðingum á stjórnmálasvið- inu. Hann var vel til foringja fallinn, og má það teljast mikil hamingja lands og þjóðar, að þessi víðsýni hugsjóna- og gáfu- maður skyldi verða fyrsti inn- lendi ráðherrann. Daginn eftir, 30. júlí, fengu allir frí frá störfum. Söfnuðust bæjarbúar þá saman á götum bæjarins og niðri við höfn, prúð- búnir og í hátíðarskapi, til þess að vera sjónarvottar að því, er konungur og ríkisþingsmenn og aðrir gestir gengju á land. Al- þingismenn tóku á móti ríkis- þingsmönnum ofan við bryggj- una og fylgdu þeim að Hótel Reykjavík og Hótel fsland, en þar skyldu þeir gista. Eins og áður segir, hafði kon- ungur og nánasta fylgdarlið hans bústað í Menntaskólanum. Yfir hliðið, sem gengið var um upp til skólans, var reistur bogi mik- ill og veglegur, vafinn lyngflétt- um og blómum skreyttur, með kórónu efst. Eftir hádegi þennan dag (30. júlí) gekk konungur frá skólan- um til Alþingishússins, en mót- tökuathöfn fór fram í sal neðri deildar. Voru þar saman komnir ríkisþingsmenn og aðrir erlendir gestir, alþingismenn, bæjarstjórn og innlendir gestir, blaðamenn o. fl. Fór þar fram söngur og ræðuhöld. Hélt Hannes Hafstein aðalræðuna fyrir konungi og hinum erlendu gestum, en kon- ungur svaraði með ræðu fyrir íslandi. Hinn 1. ágúst hélt konungur og föruneyti hans til Þingvalla, en 2. ágúst var þjóðhátíð haldin þar að viðstöddu fjölmenni. Voru þá ræðuhöld og söngur og fjöl- menn veizla haldin um kvöldið. Daginn eftir hélt konungur til Gullfoss og Geysis og síðar aust- ur í sveitir, allt að Þjórsártúni. 7. ágúst kom svo konungur og fylgdarlið hans úr austurförinni. Var veður hið bezta alla þessa daga, sólskin og bjartviðri, og voru hinir erlendu gestir ánægð- ir með förina og stórlega hrifnir af náttúrufegurð landsins. Friðrik konungur var mjög al- þýðlegur maður og blátt áfram í viðmóti við hvern sem var, jafnt æðri sem lægri. Gaf hann sig oft á tal við fólk, sem hann mætti á förnum vegi, og spjallaði við það góða stund, en konungur skildi íslenzku allvel og gat jafnvel talað málið dálítið. Dag nokkurn mætti ég konungi og prinsinum á götu í miðbænum. Var ég þá, ásamt fleirum, að aka timbri á vagni. Vék konungur úr vegi fyr- ir okkur, en um leið og hann gekk framhjá, var gluggi á næsta húsi opnaður og gömul kona leit út. Er hún sá konunginn á götunni, kallaði hún: „Guð blessi konung- inn.“ Friðrik konungur nam staðar við húsið og fór að spjalla við gömlu konuna. Ekki heyrð- um við, hvað þeim fór á milli, því að við héldum áfram ferð okkar. Öðru sinni var konungur staddur austur í bæ. Gaf hann sig þar á tal við bónda nokkurn austan úr sveitum og ræddi lengi við hann um landsins gagn og nauðsynjar. Hinn 9. ágúst hélt konungur og fylgdarlið hans svo frá Reykjavík á tveimur skipum vestur og norður um land, með viðkomu á ísafirði, Akureyri og Seyðisfirði, en þaðan lét konung- ur í haf heim til Danmerkur. Þótti konungsheimsóknin hafa tekizt giftusamlega. — Svo fluttist þú frá Reykja- vík til Flateyjar á Breiðafirði? Já; vorið 1908 varð nokkur samdráttur í byggingarmáium Reykjavíkur og því lítið um vinnu þar í þeirri grein um tíma. Réðst ég þá um vorið til Magnús- ar Sæbjörnssonar, læknis í Flat- ey á Breiðafirði. Skyldi ég stækka og lagfæra íbúðarhús hans. Ætlunin var upphaflega, en það fór á annan veg, því að ég ílentist þar vestra og var bú- settur í Flatey í 45 ár, en það er önnur saga. Þorvaldur Sæmundsson. Húsmæðraskóli . . . Framh. af bls. 226. Borgarhrauns, en suður til Hafnafjalls, og allt það land, er vatnsföll deila til sjávar. Hann flutti um vorið eftir skipið suður til fjarðarins og inn í vog þann, er næstur var því, er Kveld-Úlfur hafði til lands komið, og setti bæ þar og kallaði að Borg, en fjörðinn Borgarfjörð og svo héraðið upp frá kenndu þeir við fjörðinn.“ Myndin sýnir Borg á Mýrum í dag. Enn er þar reisulegt heim að líta, þótt kannske sé þar ekki lengur hjartastaður hins mikla héraðs, og nokkuð mætti þar að vinna til að halda við fornri reisn. Hugmyndir um það munu nú vera á döfinni, enda hefur þegar nokkuð verið að unnið til að halda við minningu þeirra feðga, Kveld-Ulfs, Skalla-Gríms og Egils. — (Ljósm. Guðni Þórðarson).

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.