Heima er bezt - 01.03.1955, Qupperneq 5

Heima er bezt - 01.03.1955, Qupperneq 5
Nr. 3 Heima er bezt 69 Jón Skíði: Móðurminning á andvöku in í frillujífi. Arnbjörg, kona hans, var lengi heilsulítil og rúm- læg hin síðustu ár. Oft var þeim Ingibjörgu og Odöi refsað, en þau skildu ekki að heldur að fullu. Þegar Arnbjörg andaðist, gekk Oddur svo að eiga Ingibjörgu þessa, og eftir lát hans bjó hún á Borgarlæk um hríð með Jó- hannesi syni sínum. — Þegar Jó- hannes kemst á fermingaraldur er farið að skrifa hann Oddsson. Þessir unglingar lögðu lag sitt saman og frömdu innbrot og rán á Fannlaugarstöðum hjá Sigurði bónda, en þar hefur þeim félög- um þótt hagkvæmt að bera nið- ur og kann þar að hafa valdið kunnugleiki Jóns á heimilinu. Brutu þeir upp útikofa hjá Sig- urði bónda og stálu þar pening- um og matvælum. Var þetta stærsta afbrot Jóns, en við fleira var hann kenndur. Voru þeir dæmdir í 3X27 vandarhagga refsingu hvor 2. des. 1850, en ekki var hegningin á þá lögð þá. Árið 1855 er Jón Bergþórsson vinnumaður á Selá, að því er segir í kirkjubókinni, en í mann- talsbókinni er hann talinn á Kleif.3) Má vera, að hann hafi verið að hálfu sitt á hvorum bæ. Var nú sem oftar matarlítið á Skaga og veiði stundum, er þess var nokkur kostur. Bændur á Fram-Skaga hjuggu vakir á ís- inn framundan svonefndu Ás- nefi og lögðu lagvaði. Hinn 7. marz þetta ár hafði veiðzt óvenju vel, urðu þeir bændur seint fyrir um kvöldið að koma í land veið- inni. Morguninn eftir er enn far- ið á ísinn, og var þá ætlunin að sækja það, sem eftir hafði orð- ið kvöldið fyrir. Veður hafði breytzt um nóttina. Hann var orðinn hvass á sunnan „og kom- in bezta hláka“, segir í veður- skýrslum úr Skagafirði frá þess- um tíma. Fór Jón út á ísinn með sleðagrind og hugðist draga í land hákarl, sem eftir hafði orð- ið þar kvöldið áður. Fylgdi hon- um hundur hans. Meðan Jón er að búa sig til ferðar í land aft- ur, lónaði ísinn sundur og rak óðfluga til hafs, og hefur ekki spurzt til hans síðan. Sást til hans úti við hafsbrún, meðan i) Jón var ýmist í Gönguskörðunum eða úti á Skaganum, næstu sveit. Mynd þín mamma muninn geymir. í tómsins auðn tregi þreyir. En því er ég fár, er finn ég gjörla, að ég á auð þann er enginn fær grandað. Ég minnist þín þó móðan streymi. í kyrrð hinzta kvölds skal kall mitt hrópa á þig, eins og þrá mín á þessari stundu leitar hins liðna, er þú leiddir mig ungan fyrstu fálmkenndu sporin til framtíðar minnar. bjart var, í sjónauka og hljóp hann þá aftur og fram um ísinn. Hundurinn, sem hafði fylgt hon- um, komst í land á Skaga. Segja sumar samtíma heimildir, að hann hafi komið að Víkum á Skaga sex dægrum síðar. Ekkert var gert til að reyna að bjarga Jóni, enda þóttu engin tök á því, er því óvíst, hve lengi hann hefur lifað á ísbreiðunni, en ætla má, að kuldinn hafi þó fljótlega séð fyrir honum, því að ólíklegt er, að hann hafi verið skjóllega búinn. Daginn eftir að þetta bar við, er veðurfari við Skagafjörð innanverðan lýst svo: „Suðvestan hvass, frost.“ Þann 10. marz er sama veður, en þann 11. „þokubelgingur og kuldi,“ og sama veður þann 12. marz. Ekki er með öllu ósennilegt, að Jóni hafi eitthvað treinzt líf á þess- ari dauðasiglingu, einkum er hægt að geta sér þess til, ef há- karlinn og dót hans allt hefur fylgt honum eftir á ísnum, en ekki er annars getið en svo hafi verið. Og ef það er rétt, að rakki hans hafi komið í land sex dægr- um síðar, en sú heimild er frá séra Pétri Guðmundssyni, sem var nákunnugur á þessum slóð- Finn ég hönd þína mamma minnast við vanga. Man ég bros þitt er bjóstu mér, barninu þínu, athvarf — frá öllu er grætti, af ástúð þíns hjarta. Þá vissi ég ei, að þú ,áttir oft örðuga daga. Þín ævileið laut þeim lögum að leiða og hugga. Er ég við andvöku stríði með æsku að baki, , og lít yfir liðinn tima, er það ljósið þitt ,mamma er veitir mér frið, og þá finn ég að enn biður þú bænimar þínar yfir beðinum mínum. Hvert sem að leiðin mín liggur sé ég ljósið þitt, mamma. um, bendir það óneitanlega til þess, að Jóni hafi enzt líf lengur en daginn. Séra Þorkell Bjarna- son lætur þess getið, að fólk hafi talið, að hér hafi Jóni í koll kom- ið slæm hegðun: „Voru hin svip- legu afdrif hans álitin dómur guðs fyrir oflæti og óguðlega hegðun,“ segir prestur. En yfirvöldin voru seinheppin hér eins og stundum fyrr, því að Jón lézt, áður en því varð í verk komið að láta hann taka út hegningu þá, er honum hafði dæmd verið 1850, en síðan hafði Jón fundizt sekur um fleira. Jóhannes, félagi Jóns, lagði lag sitt við Sæmund nokkurn og komst enn í þjófnaðarmál, stal trippi, sauðum, matvælum og peningum ásamt með Sæmundi þessum, sem var umkomuleys- ingi á líkan hátt og Jóhannes. Þær urðu margar slysfarirnar á Skaga á 19. öldinni, svo marg- ar, að furðu gegnir, því að sum árin fórst fjöldi manna, ýmist í sjó eða varð úti. Sú saga verður ekki rakin hér, aðeins í fám orð- um sagt frá dauða Jóhannesar. Sigurður bóndi Jónsson á Hvalnesi á Skaga átti bát þann, er Hafrenningur hét, og gerður

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.