Heima er bezt - 01.03.1955, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.03.1955, Blaðsíða 13
Nr. 3 Heima er bezt 77 Upp úr þjóðhátíðinni fóru menn að hugsa um að stofna banka í landinu. Tryggvi Gunnarsson var lengi einn af bankastjórum Landbankans, og einn af áhugamestu framkvæmdamönnum þjóðarinnar. Myndin sýnir bankann í byggingu. hljóðfæri, en „Fylla“ tók undir með fallbyssuskotum. Að því búnu var gengið til tjalda og sezt að góðu hófi. Voru þar haldnar margar skálaræður og ýmislegt skemmtilegt haft um hönd. Að veizlunni lokinni var enn haldið til skemmtisvæðisins og hófust kappreiðar. Voru veitt verðlaun og hlaut Jón Jónssoo frá Munkaþverá hin fyrstu. Eft - ir það fóru fram glímur og hlauy Jón Ólafsson frá Seljahlíð verð- Iaun. En síðast var hafinn dans og hljóðfærasláttur og stóð hann allt til morguns. Lauk hátíðinni með því, að „Fylla“ skaut 21 fallbyssuskoti. Fór hátíðin fram með ágætum og var talið, að rúmlega 2000 manns hafi sótt hana. Þjóðhátlð Svarfdœla. Hún var haldin 3. ágúst á sléttri og fagurri grund fyrir neðan Hofsá í Svarfaðardal. Stóðu fyrir henni þeir Sófónías Halldórsson stúdent og Jóhann Jónsson bóndi á Ytra-Hvarfi. Hátíð þessi fór fram með nokkuð öðru sniði en aðrar og þótti um margt bera af að því, hversu þjóðleg hún var, sérkennileg og skemmtileg. Var hún nær ein- göngu sótt úr tveim hreppum, margbýlum að vísu, en þó var talið, að þar hefði verið saman- komið hálft sjötta hundrað manna. Tel ég samkomunni bezt lýst með orðréttri samtíma frásögn: „Þar voru reist tjöld mörg, og eitt þeirra mest, það var 24 álna langt og 6 álna breitt. Skammt þaðan var ræðustóll reistur, sveipaður hvítu líni. Þegar um morguninn fór fólk að drífa að, og um hádegi var þar saman- kominn mikill mannfjöldi. Þá var byrjuð hátíðin; voru fánar dregnir upp og klukkum hringt. Þá skipuðu menn sér í fjórsettar raðir, hver sókn sér, og hófu há- tíðargöngu. Fyrstir gengu Stærri-Árskógssóknarmenn, en fyrir þeim gekk merkismaður með stöng, ,og hékk þar á hvít blæja með rauðum krossi í miðju; næst þeim gengu Valla- sóknarmenn, bar merkismaður þeirra stöng með grænni blæju og var fálki á dreginn; þá komu Urðarsóknarmenn og var fyrir þeim borin hvít blæja með fálka- mynd; þá gengu Tjarnarsóknar- menn, en fyrir þeim var borin rauð blæja með fálka á; þá komu síðastir Upsasóknarmenn, og bar merkismaður þeirra stöng fyrir þeim með himinblárri blæju. Þá er fólkið hóf göngu sína, hætti hringingin, og byrjuðu hljóð- færaleikar, og var leikið meðan gengið var. Fólkið nam staðar hjá ræðustólnum, og skipaði sér í hálfhring kringum hann, en merkismennirnir héldu uppi merkjum sínum. Þá var sálmur sunginn og að því búnu haldnar ræður. Fyrstu ræðuna hélt Hjör- leifur prestur Guttormsson frá Tjörn, en þá Páll prestur Jóns- son frá Völlum, og þá Sófónías stúdent Halldórsson frá Brekku tvær. Milli þess, er ræðurnar voru fluttar, var sungið, leikið á hljóðfæri og skotið. Þá flutti Þorkell Þorsteinsson frá Uppsöl- um enn tölu og Jónas Jónsson frá Brekku kvæði. Að því búnu var aftur sunginn sálmur og skotið á eftir. Varð nú hlé á um stund og gengu menn til tjaldanna að fá sér hressingu. Eftir það var byrjað að mæla fyrir skálum. Fyrst var minni íslands, þá minni konungs, þá minni dalsins, þá landshöfðingj a, þá Jóns Sig- urðssonar, þá allra merkustu manna landsins að fornu og nýju, þá Þorsteins Svarfaðar, þá Klaufa, fomhetju dalsins, þá gamalla manna og þá ungra o. s. frv. Síðan var sungið um hríð. Eftir það stigu menn dans á af- girtu svæði þar á grundinni, en er menn höfðu dansað nokkra stund, hófust glímur, og glímdu menn lengi af miklu kappi unz dimma tók. En er hálfdimmt var orðið, slógu menn eldi í viðarköst mik- inn, er borinn hafði verið sam- an þar á vellinum, og gjörðu stóra brennu. Og er brennan var þrotin og almyrkt orðið, voru teknir upp álfaleikar. Fyrir ofan grundina er klettagil stórt og foss í. Ofan úr gili þessu undan fossinum komu nú ljósálfar tveir niður á völlinn, og höfðu stökur nokkrar fyrir munni sér, sær- andi burtu svart myrkur en lað- andi fram ljós. Síðan hurfu þeir aftur upp í gilið. Nú var kyrrt og hljótt um hríð. Þá heyrðu menn að lítilli stundu liðinni söng mikinn uppi í gilinu, fyrst í fjarska, en síðan færðist hann smámsaman nær og nær. Sjá menn hvar hópur huldumanna

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.