Heima er bezt - 01.03.1955, Síða 10

Heima er bezt - 01.03.1955, Síða 10
74 Heima er bezt Nr. 3 ekki eins einfalt og fljótmyndað fyrirbæri eins og sumir vilja vera láta. Ást við fyrstu sýn, sem skrifað er svo fagurlega um í ástarsögum, er eklci til, hins- vegar geta piltur og stúlka orð- ið stórhrifin hvort af öðru við fyrstu sýn, en það, sem þar er á ferðinni, er erotík en ekki ást. Hitt er svo annað mál, að ero- tíkinni getur bæzt liðskostur smám saman þannig, að hrifn- ing fyrstu kynna breytist í traust ástarsamband. Má þá benda á, að vinátta og virðing, traust og trúnaður, sameigin- legir vinir og sameiginlegar minningar eru miklu traustari bönd en hrifning stundar- innar, sem getur verið fyrsti vís- irinn að lífshamingju manna, en einnig fyrsta villuvarðan á vandrataðri leið. í þessu sam- bandi getum við minnst ákveð- ins atriðis úr okkar eigin menn- ingarsögu. Eins og við vitum öll, var það siður höfðingja til forna að gifta saman börn sín, og voru þau eða að minnsta kosti dæturnar lítt til ráða spurðar, nema sérstakir skör- ungar væru eins og Þorgerður Egilsdóttir og Hallgerður Lang- brók. Þegar efnt var til hjú- skapar á þennan hátt voru ýms skilyrði, sem máli skipta, í góðu lagi. Foreldrar ungu hjónanna voru yfirleitt vinir og mjög af sama sauðahúsi, efnamenn báðu til handa sonum sínum dætra efnamanna. Félagslega voru því hamingj uskilyrðin hin ákjósan- legustu, enda er oft komizt svo að orði í sögunum, „Tókust með þeim góðar ástir“. Nú er ekki því að leyna, að þessi aðferð orkar tvímælis, því vel gat verið að ungmennin hefðu ratað aðrar leiðir upp á eigin spýtur en foreldrunum líkaði, og var þá ráðstöfun foreldranna vitanlega ekki giftusamleg til mikils ár- angurs. Hinsvegar hefur sú að- ferð, að gera erotíkina að einka- ratkonu, sína galla. Leggja hjón lund saman? Hugsanlegt er að bæði piltur- inn og stúlkan, sem ástfangin verða hvort í öðru, hafi óvenju- lega sterkan kynþokka, ef svo er, vill oft gleymast að athuga, hvort líklegt megi teljast, að þau leggi lund saman, og þótt þau stigi vel á legg í hjóna- bandinu fyrsta kastið, getur fljótlega farið að bera á því að rasað hefur verið fyrir ráð fram. Siðir og venjur, áhuga- mál, umgengnishættir, vinaval og margt fleira getur verið svo ólíkt, að lítt hugsanlegt sé að samræma það. Við gætum ef til vill hugsað okkur hjón, sem hefja hjónaband á erotískum grundvelli einum, í svipaðri að- stöðu eins og ef þau stæðu á palli einum miklum, sem aðeins hvíldi á einni, en að vísu stæði- legri, stoð. Ef þau fara hyggi- lega að og hreyfa sig aðeins á miðjum pallinum og þá með gætni, unz þau hafa haft tæki- færi til að afla sér fleiri styrkra stoða, getur allt farið vel. Álp- ist þau hinsvegar út á yztu barma pallsins með miklu fóta- sparki, er mjög hætt við, að pallurinn geti hrunið og það svo snögglega, að þeim sem á hon- um standa sé hætta búin. Eng- inn efi er á því, að oft byggir nútímafólk á erotíkinni einni saman, þegar það gengur í hjónaband, sífjölgandi hjóna- skilnaðir tala greinilegu máli um það, að ekki hefur tekizt að treysta hjónabandið með nógu mörgum stoðum. Þegar athugað er, hvaða áhrif brostin heimili hafa á börnin, er full ástæða til þess að gefa undirbúningi undir hjónaband meiri gaum en gert hefur verið. Sáralítil þekking fólks á hinum ýmsu öflum, sem bærast í mannssál- inni, hefur vafalaust komið mörgum í koll. í skólum lands- ins er talað við börn og ungl- inga um fjöll í Asíu og fljót í Ameríku, um tannafjölda í dýr- um, sem ég þekki ekki nöfn á og læt mig engu skipta hvort eru til eða ekki. En leiðtogar æsk- unnar ræða harla lítið við hana um öfl þau, sem búa í henni sjálfri, þótt vitneskja um þau, göfgun þeirra eða eðlilega út- rás eftir atvikum geti haft úrslitaþýðingu hvað lífsham- ingju þeirra snertir. Þekking og skilningur á tilfinningalífi mannsins skiptir sennilega enn- þá meira máli en þekking á greind hans. Mun ég ræða þessi atriði nán- ar í niðurlagi greinarinnar. Samkvæmt kenningum Shand beinist öll andleg starfsemi að því, fyrst ósjálfrátt og síðan sjálfrátt að mynda skipulag. Við sáum síðast í sambandi við geð- stefnuna ást hvernig hún safn- aði saman tilfinningum og kenndum til þess að verða sem sterkust og öruggust. Shand talar um sex tilfinn- ingar og skýrði ég að nokkru sjónarmið hans varðandi eina þeirra, gleðina. Við skulum nú kynnast skoðunum Shands á sorginni örlítið nánar. Hver einasta undirstæð hvöt hvort sem hún er háð frumtil- finningu eða ekki, er háð ótta - reiði - gleði - sorgar kerfinu á þann hátt, að gruni okkur eyði- leggingu hennar vekur það ótta, sé truflun fyrirsjáanleg, vekur það reiði, sé fullnæging í vænd- um vekur það gleði en sé eyði- legging hvatarinnar framundan vekur það sorg. Þunglyndi vekur ótta nema því aðeins, að sorgin sé svo sár að einstaklingurinn geti ekki hugsað sér aðra sorg meiri, þá útilokar hún óttann. Undir venjulegum kringum- stæðum vekur eyðilegging á bæði hvöt, ósk og geðstefnu sorg. Niðurl. í næsta hefti. Smælki Vill ekkert eiga á hœttu. Presturinn: — Hvers vegna ertu alveg hættur að sækja kirkju, Ólafur minn? Ólafur: — Það eru nú þrjár á- stæður til þess, prestur minn. Fyrir það fyrsta líkar mér bölv- anlega við ræðurnar þínar, og í öðru lagi líkar mér fjandalega við svipinn á þér, þegar þú ert í stólnum, og í þriðja lagi var það við messu hjá þér, sem ég hitti konuna mína í fyrsta skipti. —o— Þrátt fyrir há fjöll og regin- djúp höf er yfirborð jarðarinnar ákaflega jafnt. Ef maður hugsar sér jörðina minnkaða niður í 30 sm. að þvermáli, myndi yfirborð hennar vera sléttara en yfirborð biljardkúlu.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.