Heima er bezt - 01.03.1955, Síða 28

Heima er bezt - 01.03.1955, Síða 28
92 Heiha kr bkzt Nr. 3 Verzlunarhættir fyrir 100 árum. Verzlunarmál. „Allur almenningu^jhér syðra verður nú að sæta þyngri kjör- um í matvörukaupum við kaup- menn vora hér í suður-kaup- stöðunum, er fengu kom-að- flutninga í haust, eftir það kornið var fallið svo mjög í Dan- mörku, að það var selt þar og keypt almennt á 6 rd., heldur en sannfrétt er úr öðrum kaup- stöðum á landinu, þar sem korn þetta hefur aðfluzt í haust, og heldur en sanngimi stendur til. Bæði í Múlasýslunum, á Akur- eyri og á Skagaströnd, var korn- ið, sem í haust kom, sett niður í verði til rd., bankabygg til 12— Það er mýkra fyrir þig að setjast hérna á hnéð á mér.“ „Á hnéð á þér? Ég þori það ekki. H ú n gæti komið fram! “ „Nei, það er varla hætt við þvi, h ú n hlýtur að una sér vel hjá elskunum sinum.“ Og hann tók utan um hana og setti hana á kné sér. „Hérna, jóðlaðu þetta á með- an, ég keypti það handa þér.“ „Handa mér? Og þetta er upp- áhalds súkkulaðið mitt!“ „Heldurðu að ég viti ekki, hvað kvenfólkinu kemur bezt?“ Rétt í þessu stóð h ú n fyrir framan þau. „Ási, hvað ertu að gera?“ „Ég er nú bara að borða, ég fékk ekki að hafa frið til þess áðan.“ „Já, en hvað ertu að daðra við stúlkuna?“ „Hún situr nú bara þarna og borðar súkkulaðið, sem ég keypti handa henni.“ „En ég hefði aldrel trúað, að þú gerðir þetta!“ Kjökrar. „Að þú skulir geta gert þetta!“ „Ekki er henni alveg sama," tautaði Ási niður í bringuna á sér. „Og nú hef ég ekkert gaman að samsætinu. Ekki neitt! Það er nú verst!“ sagði hún. — Og maðurinn konunnar sinnar hélt áfram að borða brauð og drekka mjólk. Huld. 12y2 rd. Vér vitum allir, að það er algengt fyrir kaupmönnum að hœkka í verði kornmat þann, sem þeir eiga óseldan hér, en þótt þeir hafi keypt það korn með vægu verði og selt að því skapi framan af sumrinu, undir eins og frézt hefur frá útlönd- um, að kornið væri þar hækkað í verði. Svona var það hér í fyrra haust, reyndar að mestu leyti aðeins í orði kveðnu, af því flestir kaupmenn vorir vóru þá kornlausir. Væri þetta ekki alsiða hjá kaupmönnum, sem vér sjáum þó ekki að sé á neinni sanngirni byggt, þá væri það alls ekki tiltökumál þó ekki setti þeir nú niður kornmat þann, er þeir áttu fyrndan, þegar ódýra kom- ið kom í haust; því korn það er þeir keyptu og fluttu hingað í vor, gátu þeir í rauninni ekki selt vægar en á rd., nema með tilfinnanlegum skaða sínum, og á meðan óséð var hvemig ís- lenzka varan myndi ganga þeim út. En nú, úr því þeir fengu með haustskipum vissu fyrir því, að íslenzka varan seldist mæta vel, þá var því meiri sanngirnis- ástæða fyrir þá, til að setja nið- ur verðið á korninu, einkum því sem nú fluttist og keypt var á 6 rd., sem hún var minni, já alls engin fyrir þá í fyrra og að und- anförnu að hækka í verði það kom um 2 dali og meira, sem þeir gátu sér að skaðlausu selt með sama verði og áður. — Það er nú einkum eftirtektarverð verzlun- araðferð stórkaupmanns P. C. Knudtzons í þessu efni. Hann sendi nú í haust aðeins rúmar 500 tunnur matvöru til þessara 3 verzlana sinna, sem hann á í Reykjavík, Hafnarfirði og Kefla- vík, — meðal þessara matvæla voru og baunir, sem miklu eru nær því, að vera svínafæða en manna, — og lætur hann nú selja hinum mörgu fátæklingum, sem við verzlun hans eru bundnir og verða að sæta lagi að fá skeffu og skeffu, jafnótt og þeir eignast fyrir henni, þenna kornmat á 12 rd., er hann hefur keypt á 6 rd eður minna. Aftur er það vel skiljanlegt, hvers vegna verzlanir Knudtzons hér syðra bjóði ekki þetta korn, er þeim var sent i haust, með vægu verði; eigandinn sendi að- eins 500 tunnur matvæla, og var verzlunin hér í Reykjavik þar af í skuld um 75 tunnur. Þannig urðu ekki eftir nema rúmar 400 tunnur handa öllum 3 verzlun- unum og er auðráðið að slíkar birgðir eru sem ekkert handa öllum þeim fjölda, sem bæði var búið að lofa korni fyrir innlagða vöru, og sem neyð og heimska bindur til viðskipta við slíkan skiptavin; því auðséð er að ekki er sent nema sem allra minnst að varð, til þess að neyðin yrði að þrýsta að hinum snauða, að kaupa það við hvoða óverði sem eigandanum þóknaðist að setja upp á það. Ef slík verzlunaraðferð getur ekki opnað augun á viðskipta- vinum Knudtzons, þá verða þeir að njóta vel viðskipta við hann; en hann hefur nú heiðurinn af því sjálfur, að nota sér neyð hinna fátæku með því að selja þeim 3—4 dölum dýrara en hon- um er skaðlaust, það korn, sem auminginn má til að kaupa til að svipta sig og sina hinum illa sulti.“ (Þjóðólfur). (Ég set hér svo til í heild hina frægu ádeilugrein, sem birtist í desemberblaði Þjóðólfs 1854, og vakti á sínum tíma geysilega at- hygli að ég ekki segi úlfaþyt meðal landsmanna. Allt vestur í Dölum og víðar um land var hún kölluð „þessi voðalega grein“ og var víst að margir ótt- uðust að hún gæti haft hættu- legar afleiðingar. Blaðið Ingólf- ur, er Þjóðólfur segir að kalli sig stjórnarblað, birti grein, þar sem Knudtzon stórkaupm. er borinn lofi, m. a. fyrir það hve fljótt og vel hann hafi brugðið við eitt sinn, er kornvöruskortur var hér á landi. Skal ekki fjölyrt um þetta, en greinin lýsir vel við- skiptaástandinu hér fyrir einni öld og gæti verið fróðleg til sam- anburðar þeim ,er hornast út í verzlunarhætti nú til dags. — Jóhann Bjarnason.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.