Heima er bezt - 01.03.1956, Síða 5
Friðrik byrjaði að tefla 11 ára að aldri. Tók hann
þá þátt í fjölskák við Baldur Möller. Síðan hefir
skákíþróttin verið hugðarefni hans, og hann rækt
hana að staðaldri. En þótt hann hafi iðkað íþrótt
sína af kappi, þá stundaði hann jafnframt nám í
Menntaskólanum í Reykjavík, og lauk þaðan stú-
dentsprófi 1955. Er það í sjálfu sér ekki lítið afrek,
að ljúka erfiðu skólanámi samtímis því, sem hann
kemst í fremstu röð skákmanna á Norðurlöndum
að minnsta kosti, þar sem sú íþrótt krefst bæði
mikils tíma og andlegrar áreynslu.
Friðrik hefir á þessum árum tekið þátt í fjölda
kappmóta. Hér heima hefir hann þó ekki teflt síð-
an 1953 fyrr en í vetur. Hann hefir keppt tvisvar
um skákmeistaratitil Norðurlanda, tvisvar á Ólym-
píumótum, í Finnlandi og Hollandi, einu sinni
austur í Prag og fjórum sinnum alls í Englandi,
þar af tvisvar á Hastingsmótum. Á öllum þessum
mótum hefir hann getið sér hinn bezta orðstír, og
sýnt sig vera snjallan skákmann og vaxandi í
íþróttinni. Hastingsmótið í vetur telur hann hina
hörðustu raun, er hann hefir komizt í. En afrek
hans þar var einnig hið glæsilegasta. Innan skamms
tekur hann þátt í tveimur mótum. Keppa rússneskir
skákmeistarar á öðru þeirra, en hitt er landakeppni
meðal stúdenta.
Friðrik Ólafsson er enn kornungur, svo að kalla
má, að hann sé einungis að hefja feril sinn á skák-
brautinni. Óvenjumiklar vonir hljóta að vera við
hann tengdar, og víst er það, að hann hefir þegar
unnið hug og hjarta þjóðar sinnar, og margar
árnaðaróskir fylgja hinum geðfellda, yfirlætislausa
skáksnillingi, hvar sem liann leggur leiðir sínar til
þess að afla sjálfum sér frama og þjóð sinni sæmdar.
Ljósmynd:
Tryggvi Haraldsson.
MYNDASKÝRIN GAR
Yzt til vinstri: Friðrik teflir við 10 meistaraflokksmenn á
Akureyri (ljósm. Kristján Hallgrímsson).
Efst til hægri: Friðrik gefur eiginhandaráritun sína á Ol-
ympiuskákmótinu í Hollandi.
í miðju til hægri: Frá einviginu við Pilnik.