Heima er bezt - 01.03.1956, Síða 7

Heima er bezt - 01.03.1956, Síða 7
ar liggja húsbændurnir í rúminu vikum sam- an á vetrum og tefla skák og kotru; verða vinnuhjú og börn að bera þeim mat og drykk á meðan, svo og annast önnur heimilisstörf." A þessa lund segist frá einum elzta ferðabókarhöf- undi, sem um ísland hefir ritað, en það var Þjóð- verjinn Gories Peerse. Rit hans urn ísland var prentað í Hamborg 1561. Saga þessi gekk síðan aftur í dálítið breyttum myndum í öllum þorra frásagna af Islandi og íslendingum, allt fram á 18. öld. En jafnframt var þar viðbætt ýmsum lofsyrð- um um snilli Islendinga í þessari íþrótt. Gories Peerse var að vísu ýkinn í meira lagi, þótt næsti eftirmaður hans í frásögnum frá íslandi, Dithmar Blefken, færi ef til vill enn gálauslegar með sannleikann. En þó að svo sé, og saga þessi hafi augljósan lygasögublæ, má þó ætla, að einhver fót- ur hafi verið fyrir henni, þ. e. sá, að höfundi hafi verið kunnugt um, að íslendingar stunduðu þessar listir af nokkru kappi. Ekki er kunnugt, hvenær skáktafl hefir borizt fyrst hingað til lands. Jón Aðils telur í Gullöld Islendinga, að það hafi fyrst verið á 13. öld, og fullvíst er, að þess er ekki getið fyrr í öruggum heimildum, því að ekkert verður ráðið af ummæl- um um töfl í eldri sögum, því að kunnugt er, að menn iðkuðu ýmis önnur töfl, og mun hneftaflið hafa verið algengast. Hinsvegar mun mega telja fullvíst, að skáktafl hafi verið kunnugt á Norður- löndum allmiklu fyrr, eins og sjá má af eftirfar- andi sögnum. Hin elzta frásögn um skáktafl í íslenzkum forn- ritum er í Heimskringlu Snorra Sturlusonar. Segist Snorra svo frá tildrögunum að drápi Úlfs jarls Þor- gilssonar, mágs Knúts hins ríka. Úlfur hafði búið konungi veizlu í Hróarskeldu haustið 1026; var það einn dag, að konungur var fámálugur, og bauð jarl honum þá að lei'ka að skáktafli. „En er þeir léku, þá lék konungur fingurbrjót mikinn; þá skækði jarl af honum riddara. Konungur bar aftur tafl hans og segir, að hann skyldi annað leika. Jarl reiddist og skant niður taflborðinu, stóð upp og gekk í brott. — Konungur mælti: „Rennur þú nú Úlfur inn ragi?“ Jarl sneri aftur við dyrnar og mælti: „Lengra mynd- ir þú renna í Ánni helgu, ef þú kæmir því við, kallaðir þú eigi þá Úlf inn raga, er ég lagði til að hjálpa þér, er Svíar börðu yður sem hunda.“ Gekk jarl þá út og fór til svefns. En áður um sumarið hafði Úlfur borgið konungi, er hann var nauðug- lega staddur í bardaga í Ánni helgu í Svíþjóð. Kon- ungur reiddist mjög, og lét hann drepa jarl þegar næsta morgun. Enda þótt deila um skáktaflið sé látin ráða hér úrslitum um þessa atburði, verður að minnast þess, að miklar greinir höfðu áður orð- ið með konungi og jarli. Þá segir frá því í Knýtlinga sögu, að Valdimar I. Knútsson, Danakonungur, sæti að skáktafli, er frændi hans, Sveinn svíðandi, réðst að honum með svikum í Hróarskeldu árið 1157. í báðum þessum frásögnum er taflleikurinn tengdur örlagaríkum atburðum. Sögurnar eru að vísu skráðar allmiklu seinna, en atburðir þessir gerðust, en sennilegt er, að arfsögn hafi geymst um svo mikil tíðindi, og víst er að minnsta kosti, að sagnaritararnir hafa verið þess fullvissir, að skáktafl hafi verið iðkað meðal höfðingja á þeim tíma, er sögurnar gerð- ust. Einkum er sögn Snorra merkileg, því að auk þess, sem hún bendir til vitneskju hans um, að skák hafi verið tefld í Danmörku þegar á 11. öld, þá sýnir hún einnig, að hann hefir sjálfur vitað nokkur skil á taflinu. Ekki er mönnum nú kunn- ugt við hvað er átt með orðtækinu að „leika fingur- brjót“. Orðabókarhöfundurinn Fritzner þýðir það einungis með „fejltræk“, þ. e. glapleik, og Ólafur Davíðsson er þar engu fróðari. Má vel vera, að það sé rétt þýtt, en hinsvegar gæti verið um einhvern sérstakan glapleik að ræða, sem Snorra hefir verið kunnugt um, en hvort sem heldur er, bendir orða- tiltækið til þess, að sá, er ritaði, hafi verið kunnugur taflmáli, og þá um leið leiknum sjálfum. í Noregi er skáktafls fyrst getið árið 1238, í sögu Arons Hjörleifssonar. Þar segir frá því, er Þórði kakala Sighvatssyni barst fregnin um Örlygsstaða- bardaga og lát föður hans og bræðra, þá hafi hann setið að skáktafli með Hrana Koðránssyni. Um þær sömu mundir er skáktafls fyrst getið á íslandi, í Þorgils sögu skarða. Það gerðist árið 1241, að þeir urðu ósáttir út af tafli Þorgils, og Sámur, frændi Gissurar Þorvaldssonar. Var Þorgils þá 15 ára að aldri og haldinn í gislingu hjá Gissuri í Myndimar sýna íslenzka skákmenn úr Þjóðminjasafni, gerða úr tönn eða hval- beini. Þjóðminjavörður, Kristján Eldjárn, segir að þeir beri allir gamlan svip, jafnvel miðaldalegan, og enginn sé að líkindum yngri en frá 17. öld. Heima er bezt 59

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.