Heima er bezt - 01.03.1956, Side 9

Heima er bezt - 01.03.1956, Side 9
Nr. 3 Heima ---er bezt 61 Frá 7.one-mótinu i Prag 1953. Friðrik ólafsson teflir við ungverska stórmeistarann Szabo, sem varð annar á mótinu. Sænski stórmeistarinn St&hlberg gengur fram hjá borðinu. ingum og eignaskrám einstaklinga og máldögum kirkna fram undir siðaskipti, en öllu lengra er út- gáfu Fombréfasafnsins ekki komið. Tæplega verð- ur þó af þessum skjölum ráðið, að taflið.hafi verið algengt, því að miklu eru þeir gjörningarnir og skrárnar fleiri, þar sem tafls er ekki við getið, en hitt er Ijóst, að talið hefir það verið til verðmæta. Merkileg heimild er í Búalögum, tveimur af hinum eldri gerðum þeirra, sem ætlað er að séu frá 15. öld eða byrjun 16. aldar. í eldri skránni er það metið 12 álna virði að kenna skák, en 9 álnir í yngri skránni. En verðlag er lægra þá, því að smjörfjórð- ungurinn (5 kg) er metinn á 10 álnir í fyrri skránni en 8 álnir í þeirri seinni. Geta menn dálítið ráðið af þessu, kvað það liefir kostað í þann tíma að læra skák, sennilega þó varla meira en mannganginn. En auðsætt er af þessu, að nokkurs hefir þótt um það vert að læra þessa áþrótt, en gera má þó ráð fyrir, að naumlega hafi aðrir en höfðingjar og efna- menn leyft sér þann munað. Frá 16. og 17. öld eru nokkrar vísur nafngreindra skálda, sem sýna ótvírætt, að skáktafl hefir verið um hönd haft til skennntanar. Kunnust er vísa Jóns biskups Arasonar frá því um 1530, er hann kvað einn vetur, er menn voru komnir til hans, og hann þóttist ei hafa mjöð eða mungát sínum gestum að veita: Til hefi’ eg tafl með spilum tölur, sem leggi og völur, skák með sköfnum hrókum skjótt og kotru hornótta, hörpu heldur snarpa hreysta með girnis neistum, fón með fögrum sóni fengið til lykla og strengi. Sjá má af þessu, að við eitthvað gátu gestir á Hóla- stað skemmt sér um þessar mundit. Meira en öld síðar yrkir síra Stefán Ólafsson í Vallanesi taflvísur sínar, og eru þessar þar á meðal:

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.