Heima er bezt - 01.03.1956, Page 11

Heima er bezt - 01.03.1956, Page 11
Frá ólympiuskákmótinu i Hollandi 1954. Islendingar eru að tefla við Argentinumenn. Friðrik er að tefla við stórmeistararin Najdorf, en Guðmundur S. Guðmundsson, sem situr við hliðina á Friðiik, er að tefla við Bolbochan. Kunningi islenzkra skákmanna Pilnik siendur fyrir aftan Najdrof. inni hér á landi, og þar sem það er ein hin elzta lýsing á þessum hlutum frá íslandi, er hún tekin hér orðrétt að mestu: „Skáktafl hafa fslendingar mikið iðkað frá fornu fari, og ennþá hittast þar ágætir skák- menn. Einkum hefir mikið orð farið af mönn- um vestanlands í því efni, og það engu síður bændum en fyrirmönnum. íslendingar fylgja sömu meginskákreglum og gert er erlendis, með örfáum undantekningum, en þeir lialda öllum hinum fornu dönsku og norsku nöfn- um og talsháttum, er tafl þetta varða. Heiti einstakra manna eru þessi; konungur, frú eða drottning, biskup, riddari og hrókur. Þá eru og peðin. Talað er um að skáka og máta. Stanz og jafntefli er það kallað, þegar enginn úrslitasigur er unninn, og báðir geta talizt jafnir. Þegar annar teflandinn getur ekkert ifært nema kónginn, sem hann þó ekki er skyldugur til að færa nema honum sé skákað, og hann er þá ekki mátaður um leið, er leikn- um lokið, og livorugum teflandanum er talinn sigur, en þetta er talið vottur vankunnáttu þess, sem stanzinum hefir valdið. Bert (þ. e. sama og nakið) er minnsti vinningurinn kallaður. Hon- um er svo háttað, að þá hefir annar teflandinn misst alla sína rnenn, en kóngur hans þó ekki mát. Ef kóngnum er skákað um leið og hann missir síðasta manninn, er það stóra bert, en annars litla bert. Heimamát, peðrífur og blóðsótt eru mestu vinning- arnir, en þeim til stærstrar hneisu, sem tapar. Heimamát er það kallað, þegar kóngurinn er mát- aður fyrsta sinn, sem honum er skákað, og hann hefir aldrei verið færður áður. Peð-rífur er mát með peði, en blóðsótt mát með kóngspeði, þegar kóngurinn hefir enn ekki verið færður. Næst þess- um mátnm er útkomumát, en telst þó ekki til skammarmáts eins og hin. Það er mát með peði í sama leik og því er leikið út, eða í sama leik og því er komið upp, og það verður að fullkomnum manni. Ófullkomnasti vinningur er frúarmát. Mesti vinningur er nífalt mát. Margfaldara mát er sjald- gæft. Erlendis er einfalt mát látið vera leikslok, en á íslandi leitast hver við að hafa mátið svo marg- falt, sem honum er unnt. Þó verður hver, sem mát- ar, að hafa komið tafli sínu svo fyrir við fyrsta mátið að hvert mátið reki annað, því að hvorki má hann leika öðrum leikjum milli mátanna, né kóngurinn, sem verið er að máta, fá færi á að komast undan. En meðan á mátunum stendur, getur hin minnsta yf- irsjón valdið því að taflið tapist. Góðir taflmenn geta mátað hinn sexföldu eða sjö- földu máti, þótt hann sé allsnjalE . . . Stundum er leyft að hafa biskup til aðstoð- ár, því að sigurvegarinn telur það hættu- minnsta manninn, en sigurinn enn glæsi- legri, ef kóngurinn er ekki einn. . . . Fleiri skákreglur eru til á íslandi, en þetta eru hinar réttu, elztu og algengustu. Þær regl- ur, sem einfaldari eru, léttari og lausari í reipum, virðast vera fundnar upp í seinni tíð.“ Þetta er lýsing Eggerts en þess getur hann, að alloft hljótist illindi út af tafli, og telur hann einkum hin margföldu mát igefa tilefni þess. Frá ólympíuskákmótinu i Hollandi 1954. — Yngstu keppendur mótsins, talið frá vinstri: Ingi R. Jóhannsson, Friðrik ólafsson, argentinski stórmeistarinn Pannó, og loks Larsen hinn danski. Heima er bezt 63

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.