Heima er bezt - 01.03.1956, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.03.1956, Blaðsíða 13
Að ofan: Kjálkaverskofi við Kisu á Gnúpverja- afrétti. Til hægri: Niðurgrafinn fjallakofi í Arnardal á Möðrudalsörœfum. V FJALLAKOFAR Víðs vegar um óbyggðir og afrétti landsins eru fjallakofarnir. Þeir standa þarna ein- manalegir og auðir, nema eina eða tvær nætur á haustin, eða ef einhverjir ferðalangar leita þar náttbóls yfir sumarið. En marga haustnóttina er þar glatt á hjalla, þótt hvorki sé hátt til lofts né vítt til veggja. Og mörgum þreyttum eftirleitarmanni hafa kofarnir veitt kærkomið skjól, og ef til vill hafa þeir borgið þó nokkrum mannslífum, ef öll væri saga þeirra rakin. Ekki er mér kunnugt, hversu langt er síðan tekið var að reisa kofa þessa, en allgamlir munu sumir þeirra vera. Eldri eru þó líklega sæluhúsin við fjall- vegi, sem að minnsta kosti fyrrum, voru í engu reisulegri en kofar leitarmanna. Löngum hafa þess- ir kofar verið af vanefnum gerðir, líkt og annar húsakostur landsmanna var fram á þessa öld. Hinir elztu þeirra voru borghlaðnir, þ. e. hringlaga og hlaðnir saman í toppinn, líkt og snjóhús eskimóa. Slíkir kofar eru enn uppi standandi á fáeinum stöð- um, t. d. í Gljúfurleit við Þjórsá og í Landmanna- laugum. Álíka gamlir, eða ef til vill enn eldri og frumstæðari, eru hinir niðurgröfnu kofar; þeir voru grafnir niður í þurrt hólbarð, reft yfir gryfjuna, og inngangur gegnum gat á þakinu, sem oft var lukt Framhald á bls. 89. Til vinstri: Kofi á afrétti Skagfirðinga. Að neðan: Borghlaðinn fjallakofi i Gljúfur- leit við Þjórsá.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.