Heima er bezt - 01.03.1956, Side 17

Heima er bezt - 01.03.1956, Side 17
Til hægri: Skarfaklettur, vestan vert við Skor. Að neðan: Séð yfir Skor úr vestri. SKOR VIÐ BREIÐAFJÖRÐ F’áir munu þeir íslendingar vera, sem ekki kannast við nafnið Skor. Hinzta sigling Egg- erts Ólafssonar og snilldarkvæði séra Matthí- asar um þann atburð, hafa gert nafnið eftirminni- legt og ódauðlegt í Jiuga þjóðarinnar. En livað og livar er þessi Skor? Milli Barðastrandar og Rauðasands gengur fjall- lendi mikið í sjó fram. Vfðast hvar er þar sæbratt með háum hamrabeltum og snarbröttum skriðum. Vestarlega í hlíð þessari er dálítil hvilft, með grös- ugum brekkum og lítilsháttar undirlendi, sem allt er grasi vafið, enda er þarna skýlt, og bletturinn hlær við sól. Þarna eru tóttarbrot nokkur, enda var þar bær og verstöð allt fram á 18. öld. Snjólétt er þar með afbrigðum, og beit bæði mikil og góð, þótt ekki sé víðáttumikið land til lieyöflunar. Lending er þar allgóð; er lrenni þannig háttað, að mjótt gjögur skerst þar inn milli tveggja liamraveggja; heitir þar Skorarvogur, og er hann sennilega Skorin, sem bærinn, og síðar umhverfið allt, hefir dregið nafn af. Ekki kvað þó vera unnt að setja báta á land upp úr vognum, nema með miklum erfiðis- munum. Skorin var fyrrum áfangastaður sjóróðra- manna úr Breiðafjarðareyjum og víðar að, sem þarna áttu leið um, enda er langt til næstu lend- inga. Hefir hún vafalítið verið mörgum kærkominn lrvíldarstaður, enda var svo um hana kveðið: Ó, hve farsæl ertu, Skor, öllum, sem þar búa. Hefirðu bæði haust og vor hrundið margra lúa. En tíðförulast hefir mönnum orðið um þessar slóð- ir á þeim tíma árs. Á landi er erfitt að komast í Skor. Liggur leiðin um tæpa sneiðinga framan í snarbröttum skriðum; er það að vísu lrættulaus leið á sumardegi, en eng- inn væri öfundsverður að fara þar um á vetrum, þegar svellalög eru í skriðunum. Hlýlegt og friðsælt er í Skor á sólbjörtum sumar- dögum, en: Ef þrútið er loft og þungur sjór og þokudrungað vor, þá heyrirðu ennþá harmaljóð, i sem hljóma frá kaldri Skor. Heima er bezt 69

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.