Heima er bezt - 01.03.1956, Blaðsíða 22

Heima er bezt - 01.03.1956, Blaðsíða 22
Séð heim að Litluvöllum og Stóruvöllum i Bárðardal. Litluvellir til vinstri. Fjall- ið i baks'ýn er Vallnafjall. Fyrsti áfangi Tómasar var yfir Vallnafjall, eins og í ferðasögunni segir, en er fjallinu sleppir, er komið niður að Sörlastöðum, sern er fremsti bcer i Fnjóskadal. FERÐ TIL SUÐURLANDS OG DVÖL AÐ STÓRAHOFI VETURINN 1920-21 eftir Tómas Sigurtryggvason FERÐIN SUÐUR egar ég var orðinn 29 ára, hafði ég hvergi dvalið nema í Bárðardal. En sumarið 1920 var és ráðinn vetrarmaður næsta vetur til Guðmundar Þorbjarnarsonar á Stóra- Hofi á Rangárvöllum. Og hinn 20. sept. það haust lagði ég af stað frá heimili mínu, Hall- dórsstöðum í Bárðardal. Þá var enginn sími um dalinn, og vissu menn óglöggt um skipa'ferðir, en með skipi ætlaði ég frá Akureyri til Reykja- víkur. Var ég ríðandi og teymdi hest með dóti mínu og fleiri flutningi og fór sem leið liggur, lagði á Vallnafjall frá Stóru-Völlum. Sú leið er brött, svo að ég gekk stundum með hestinum, og hafði ég oft farið þessa leið áður en nú fannst mér hún eitthvað með erfiðara móti, eins og dalurinn togaði í mig. Þegar óg kem upp á brúnina, ‘fer ég af baki og lít yfir dalinn. Skjálfandafljót liðast eftir dalnum, tært á þessum tíma árs. Meðfram því er mórönd, sem brúnni slikju slær á af sölnandi fjalladrapalauf- um. Þá taka við sléttar grundir og græn tún. Brekkurnar eru rósóttar af grænum, gulum og sölnandi skógarviðarlaufum. Á geirunum á milli una sér hjarðir í haga, hross og sauðfé. Kirkjan stendur á hólnum, sem víða sést að. Þegar ég hef tekið þessa mynd dalsins sem 74 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.