Heima er bezt - 01.03.1956, Page 24

Heima er bezt - 01.03.1956, Page 24
Nr. 3 Gróðrarstöðin á Akureyri. Séð yfir „Leirurnar“ eöa ,,Vaðlana“ sunnan við Ak- ureyrarbæ. Fjallið er Vaðla- heiði. — Skarðið lengst til vinstri er Bildsárskarð, þar sem Tómas fór yfir og kom niður að Kauþangi. rúm var svo sem ekkert, svo að ekki var að tala um nema lestarpláss, og tók ég því. Hitti ég þá Þórð Flóventsson frá Svartárkoti, sem kunnugur var víða, og biður hann mig fyrir hrút á skipinu suður, og ætlar að láta heypoka fylgja hon- ur í lestinni. En þegar í lestina kemur, er hrútur- inn þar fyrir, en heypokinn hvergi, svo að ég fór í land til að hitta mann þann, sem ætlaði að láta heyið. Hitti ég liann á götu úti og var hann þá orðinn all-kenndur. Tók hann mér illa og sagði mér að fara fram í skip, heyið kæmi. En svo fór, að aldrei kom heypokinn. En svo vildi til, að í lestinni var nóg af heyi. Vildi ég þó ógjarnan af því taka. Fór ég nú til yfirmanns skipsins og tjáði honum ástæður mínar með hrút og hey. Sagði hann mér þá, að ég skyldi bara gefa honum af heyinu í lestinni, þetta munaði engu. Hinn L október kl. 5]/2 lagði skipið frá bryggju á Akureyri, og við komum til Sauðárkróks kl. 4 f. h. 2. október, höfðum þá aðeins komið við á Siglufirði. Á Sauðárkróki gafst tækifæri til að stíga á land og hitta kunningja. Þá kom skipið aðeins við á Hofsós, en kl. 10 aðkvöldi sama dags komum við til Blöndu- óss. Alltaf var logn og blíðuveður. Eg var einn í lestinni, þegar lagt var af stað, en svo bættust við farþegar á hverri höfn alla leið til Isafjarðar, þá var orðið fullskipað í lestinni. Þann 3. komum við í Hólmavík. Þar var lítill stanz, aðeins fyrir far- þega. Nú var farið að þrengjast í lestinni og gekk á ýmsu. Menn kíttu, ruddust á um plássið, sumir sjó- veikir, sumstaðar selt upp og rifið niður hey og sett yfir. Sumir höfðu ílát að æla í. Voru þá hjálplegir menn að hella úr dollunum og stumra yfir sjúkum. Ekki þótti loftið alltaf gott. Lítið virtist hugsað um öryggi og líðan farþeganna, því að á ísafirði bættist enn fjöldi manns við, og mér var sagt, að margt af því hefði ekki haft nokkum annan verustað en þilfarið. Þrengslin voru nú orðin svo mikil í lest- inni, að varla var hægt að stíga niður fæti milli fólksins, þegar gengið var um. Hugsaði ég um það, hvílíkt ábyrgðarleysi væri að taka svo marga farþega. Hvernig hefði farið, ef verulegt óveður hefði gert, svo að loka hefði þurft lestinni? Komið var til ísafjarðar kl. 7]/, f. h. þann 4. Þar þótti mér fögur og merkileg innsigling og hrikaleg fjöll um kring. Lagt var af stað sama dag kl. 12 á hádegi frá Isafirði. Ég hafði verið lítið sjóveikur á leiðinni, en las- inn af innflúenzu. Og allt hafði gengið vel, að ég hygg af því að alltaf var gott í sjóinn. Hinn 5. komum við um morguninn til Reykja- víkur kl. hálf átta. Á bryggju hitti ég Jón, bróður minn, sem kunnugur var orðinn í Reykjavík, og hjálpaði hann mér með hrútinn í áfangastað og gekk vel að losna við hann. í Reykjavík dvaldi ég til hins 9., hitti fólk, sem ég þekkti, skoðaði forngripasafnið, skoðaði mig urn 76 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.