Heima er bezt - 01.03.1956, Page 31

Heima er bezt - 01.03.1956, Page 31
Ulan við námuna, sem kölluð var Græna ófreskjan. Bóndi i Colorado, er hejir lagt fyrir sig úraníumnámu- gröft, athugar hnullung af dýr- mœtu málmgrýti. Heima ---er bezt 83 ari víðáttumiklu auðn eru svo illfærir, að þar hafa aldrei verið gerðar landmælingar. Á svæði, sem eru stærri en Delaware, hefir hvítur maður aldrei stigið fæti. Geysistór landsvæði eru aðeins auðir blettir á landakortinu. Að útjöðrum hásléttunnar undan- teknum, er þarna enginn talsími, enginn ritsími, ekkert rafmagn, engar vatnsveitur eða frárennsli, engin íshús, engin sjúkrahús, engir læknar og engir steinlagðir vegir. í útjöðrunum eru borgir á víð og dreif, á miðri hásléttunni ein lítil byggð fáeinir af- skekktir sveitabæir hingað og þangað og svo nokkr- ir moldarkofar, þar sem Indíánar búa. Þetta geysi mikla landsvæði lítur að mestu út, eins og listamað- ur mundi geta hugsað sér löngu útbrunna plánetu. En þar er alls staðar úraníum, frumefnið, sem notað er til þess að framleiða kjarnorku. Nokkrir græningjar hafa verið það heppnir að finna svo mik- ið magn, að þeir hafa orðið margfaldir milljónamær- ingar. Nokkur þúsund manns hafa orðið stórauðug- ir. Svo er aftur á móti fjöldinn allur, sem hefir tapað öllu, sem þeir áttu. Kjarnorkunefnd Bandaríkjanna hefir umsjón með þessari skipulagslausu leit, lætur fólki í té landkort og alls konar fróðleik, og ábyrg- ist að kaupa úraníum hæsta verði og greiða uppbæt- ur allt fram til ársins 1962. Fram að þessu, hafa ver- ið greiddar fimm og hálf milljón dollara í uppbætur einar saman, og er þá ekki talið það, sem greitt hefir verið fyrir sjálft málmgrýtið. Skiptist þetta á milli 3.500 manns, en af þeim hafa um það bil hundrað fengið 35.000 dollara hver, og eru það hæstu upp- bætur, sem greiddar eru. Þegar allt er um garð geng- ið, er lítill vafi á því, að þetta úraníumæði mun gefa mun rneira af sér, en nokkur önnur sambærileg leit að fjársjóðum í sögu Ameríku. Þetta var nú leikvöllurinn, sem við höfðum valið til þess að skemmta okkur á í fríinu. Er við nálguðumst hásléttuna frá vestri, fórum við brátt að heyra talað um úraníum. í Loa í Utah gistum við hjá manni, Lavor Brown að nafni, sem liafði fjögur lítil herbergi til leigu ferðafólki. Hann hafði fundið úraníum, stofnað hlutafélag, og nam hlutaféð 300.000 dollurum. Nágranni hans, Ruther- ford Tanner, sem hefir nnnið erfiðisvinnu alla sína æfi, á nú sjálfur úraníumnámu og er hluthafi í nokkrum öðrum, ásamt Norman syni sínum, og nokkrum vinum og ættingjum. Sýsluskrifarinn frú Norma Blacburn, er önnum kafin við að færa inn námugrafararéttindi — fjögur til fimm hundruð á dag, þegar mest er um að vera — og maðurinn henn- ar, Rawlins, fann úraníum einn sunnudagsmorgun, og var það 17.000 dollarar að verðmæti. Fyrstu gagnlegu upplýsingarnar fengum við hjá mögrum og skorpnum manni, sem við ókum fram á, þar sem hann var að matbúa flesk og baunir úti fyrir tveimur tjöldum við rykugan veginn. Þetta var Redd Christensen, og hafði hann verið atvinnubíl- stjóri ií Salt Lake City, þangað til hann einn frídag- inn sinn ók út.að útjaðri hásléttunnar, fann úraní- um, og sagðist hann hafa góðar vonir um að geta haft upp úr því 6.000 dollara á dag, þegar námu- gröfturinn hæfist fyrir alvöru. Á meðan vann hann þarna, ásamt Chris syni sínum, tíu ára drenghnokka, og höfðu þeir feðgar kátan hvolp sér til skemmtun- ar. Eg spurði Christensen, hvar hann fyndi úraní- um. „í Shinarump,“ sagði hann. Ég hváði. ,,I Shinarump,“ endurtók hann með mestu þolin- mæði. „Einmitt það,“ sagði ég. „Og hvar getum við fundið þetta — þetta — ?“ „Shinarump," sagði Christensen. „Það er alls staðar hérna í klettaborgunum. „Og hvernig getum við þekkt það?“ spurði ég í mesta sakleysi. Hann horfði íhugull á mig um stund og sagði svo seinlega. „Ég býst við, að bezta leiðin sé að leita að því.“ Reed Christensen, leigu b ilstjórin n heppni, og Chris sonur hans, rann- saka nárnuna, sern þeir búast við að muni gefa af sér úranium fyrir 6000 dollara á dag

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.