Heima er bezt - 01.03.1956, Síða 32

Heima er bezt - 01.03.1956, Síða 32
84 Heima Nr. 3 --------------------------------er bezt---------------------------- Er við gengum til baka að bílnum, heyrði ég, að konan mín var að tauta eitthvað fyrir munni sér, og spurði ég hana, hvað hún væri að segja. „Shinarump,“ sagði hún. Það var ekki fyrr en nokkru seinna, að við feng- um að vita, að Shinarump er ein af þeim jarðmynd- unum, þar sem úraníum er iðulega að finna. í hamraveggjum er það stundum eins og þunn lög af grábrúnum sandsteini. Eftir að við fengum að vita, hvað það var, fannst okkur við sjá það í öllum hömr- um og hólum, og hver veit, nema svo hafi verið. Á þessu svæði er venjulega lagt upp á hásléttuna frá smáþorpi, sem heitir Fruita. Ef ég hefði deplað augunum, er ég ók eftir veginum mundi ég aldrei hafa séð þorpið — fáein hús í hvammi undir granít- kletti, sem gnæfði við himin. Okkur til mikillar undrunar, var þarna gistihús með nútíma þægind- um. Gestgjafarnir voru vingjarnleg, miðaldra hjón, Emma og Arohie Bird. „Eg sé, að þið munuð vera að leggja upp í úraní- umleit," sagði Bird, um leið og hann bar matinn á borð fyrir okkur. „Það er nú hugmyndin,“ sagði ég. „Hvar getum við fundið úraníum?" Bird hló. „Á hverjum degi spyrja svona fimmtíu manns mig þessarar spurningar,“ svaraði hann. „Ef ég vissi það, mundi ég sjálfur halda beina leið þang- að.“ Hann leit út um gluggann og rak augun í bíl- skrjóðinn okkar. Svo hristi hann höfuðið og varð nú raunalegur á svipinn. „Ég vona, að þið komist gegn um Gjána,“ sagði hann, eins og hann væri í miklum vafa um það. „Vegurinn er slæmur . . . . “ Þau hjónin fylgdu okkur út að bílnum. Um leið og við vorum í þann veginn að leggja af stað, spurði ég: „Hvar er þessi Gjá?“ Bird benti þangað, sem vegurinn hvarf milli tveggja kletta. „Það er ekkert um að villast," sagði hann. „Veg- urinn liggur eftir Gjánni, og þegar þér einu sinni eruð komin inn í hana, eru engin tök á að snúa við.“ Við ókum eftir Gjánni, sem var tólf mílur á lengd, en virtist vera miklu lengri. Á báðar hliðar voru þverhníptir klettaveggir, og víða svo þröngt, að naumast var rúm fyrir bílskrjóðinn. Ég starði beint fram, því að ég mátti ekki líta af veginum, sem víða var grýttur. Konan mín starði upp á hamraveggina. Taffy virti okkur fyrir sér eins og hann hefði gaman af þessu öllu saman, en svo fór hann að geispa, og innan skamms var hann stein- sofnaður. Er við komum út úr Gjánni, vorum við að lok- um komin inn á hið raunverulega „úraníumsvæði" tilkomumikla víðáttu, glampandi í sólarbrunan- um. Til hægri lágu kolsvartir, hnöttóttir hnull- ungar, á stærð við tunnu, eins og hraunslettur hefðu fallið þarna til jarðar á þeim tíma, er jörðin var að kólna. Til vinstri risu gráir öskugígar, drauga- legir eins og hringfjöllin á tunglinu. Við námum staðar á lágum ás og vorum að velta því fvrir okk- ur, hvar við ættum að hefja leitina, þegar hárauður jeppi ók þarna á okkur — eini bíllinn, sem við sá- um þann daginn — og út úr honum sté hávaxinn maður í kúrekabúningi. Hann kynnti sig, sagðist heita Lurt Knee, hafa áður verið bóndi, en væri nú úraníumnámumaður, og það var ekki það til, sem hann ekki vissi um úraníum. Hann sagði, að úraníum hefði upprunalega gos- ið upp úr glóandi iðrum jarðarinnar, meðan hún var að myndast, og setzt að í sprungum og göngum, er hún kólnaði. Áður en sögur hófust, barst það einnig með úthafsstraumum, ám og regni og settist að á syllum, í trjábolum og dýrabeinum, þar sem nú má finna það í fjórum litum — svart, gult, grænt og brúnt. „Úraníið í námunni minni er grænt,“ sagði hann. „Torbernit. Ég kalla námuna Grænu ófreskj- una.“ „Ég þigg það á hvaða lit sem er,“ sagði ég. „En hvar getum við fundið það?“ „í Shinarump,“ sagði Knee. „Moencopi. Chinle. Svo að segja, hvar sem er.“ „Ég kannast nú við Shinarump," sagði ég. „En hvernig er það með þetta Moencopi? Og Chinle?" „Fullt af því í Chinle," sagði Knee. Næstu spurningar mínar hafa víst verið heldur einfeldnislegar. Knee tók ofan hattinn og þurrkaði sér um ennið. Hann sneri sér að konu minni og sagði: „Það var ánægjulegt að hitta yður, frú.“ Hann gaf mér hornauga um leið og hann fór aftur upp í jeppann. „Þið gætuð reynt í liamraborgunum þarna,“ sagði hann um leið og hann ók af stað. Það var ekki fyrr en löngu seinna, að ég komst að því, að Moencopi og Chinle eru, eins og Shinarump, jarðmyndanir, þar sem hægt er að finna úraníum. Hamraborgirnar, sem Knee hafði bent okkur á, virtust vera á að gizka mílu vegar í burtu. Enginn

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.