Heima er bezt - 01.03.1956, Side 34

Heima er bezt - 01.03.1956, Side 34
86 Heima Nr. 3 --------------------------------er hezt---------------------------- „Það hljóta að vera einhverjir Indíánakrakkar, sem leika sér hérna í klettaborginni,“ sagði hún. „Þau eru búin að byggja allra snotrustu kastala úr steini, allt í kring um hana.“ „Ég held, að þú ættir ekki að vera að hugsa um leiki barna,“ sagði ég. „Við skulum koma okkur að því að afmarka svæðið.“ „Þau hafa meira að segja sett litlar fánastengur upp á kastalann,“ sagði hún. Hjartað kipptist til í brjósti mér. „Hvar sástu þetta?“ spurði ég. „Einn er á bak við runnann þarna,“ sagði hún og benti þangað. „Annar er þarna niðri í gilinu.“ Já, þú hefir gizkað á það. Þetta voru vörður, sem úraníumleitarmenn höfðu hlaðið. Öll hamraborgin var á afmörkuðu svæði og hafði verið það í marg- ar vikur. Við höfðum fundið auðæfi — sem einhver annar átti tilkall til. Við komumst oftar í uppnám á hinum ólíkleg- ustu stöðum. Það var síðla dags, í steikjandi hita, og bílskrjóðurinn var að því kominn að springa, námum við staðar í skugganum af -bergbrún, sem slútti fram, til þess að kæla vélina. Taffy þaut af stað til að veiða eðlur. Eftir stundarkorn kom hann hreýkinn til baka og lagði það, sem hann hafði fundið, við fætur okkar. Það var lítil, grá skel, æva- forn og brothætt, og á henni voru einkennilegir, sterkgulir flekkir. „Þetta lítur út fyrir að vera ostruskel,“ sagði ég hæðnislega. „Það eru ekki nema þúsund mílur út að hafinu. Mátuleg skemmtiganga fyrir hrausta og fjöruga ostru. En það er bara það, að þessi ostra hefir ekki verið hraust. Hún hefir dáið úr mýra- köldu. Líttu á gulu flekkina á henni.“ Konan mín var ekki sein að átta sig. „Gulir,“ sagði hún. „Úranium er gult. Heldur þú, að ....?“ Ég gerði henni það svona rétt til geðs að setja Geiger-teljarann í gang og beina honum að skel- inni. Og það byrjaði að smella í Geiger-teljaranum, eins og hann væri orðinn snarvitlaus. „Hvar fanstu skelina?" spurði ég Taffy og reyndi að hafa hemil á röddinni. Hann settist og klóraði sér hugsi í eyranu. „Svona nú,“ sagði ég ákveðinn. „Vertu ekki að draga mig lengur á þessu. Hvar fannstu hana?“ Taffy laut höfði og leit ástúðlega upp á mig. „Það er enginn tírni til neinna fleðu- láta núna,“ sagði ég hastur í bragði. „Farðu og sæktu aðra skel!“ „Það þýðir ekkert að tala til hans í svona höstug- um tón,“ sagði konan mín. „Aumingja Taffy fær minnimáttarkennd af þessum látum í þér.“ Hún kraup á kné og hvíslaði blíðuorðum í eyru hunds- ins. Seppi reis ánægður á fætur, teygði úr sér, horfði íbygginn út að sjóndeildarhringnum — og settist aftur. „Við skulum halda af stað,“ sagði ég óþolinmóð- ur. „Við finnum það sjálf.“ Það bar ekki á öðru. Við fundum það eftir þriggja mínútna göngu. í gilbarmi fundum við skeljalag, mörg hundruð fet á lengd og nokkur fet á þykkt — skeljar í miljónatali. Við löbbuðum mörgum sinnum fram og aftur eftir skeljalaginu og rannsökuðum það með Geiger-teljaranum, stund- um hvað eftir annað, en víðast hvar heyrðust aðeins fáir smellir. Það var enginn vafi á því, að það var úraníum í skeljalaginu, en bersýnilega ekki nóg til þess, að námugröftur borgaði sig. Nokkrum vikum seinna átti ég tal um þenna fund við jarðfræðing, er vann hjá Kjarnorkunefnd Bandaríkjamanna. Hann kannaðist við þenna stað. „Hann hefir blekkt margan manninn,“ sagði hann. „Konan mín hélt, að þetta væru ostruskeljar,“ sagði ég með umburðarlyndi, en þóttist samt góð- ur, að hafa komið þessu að. „Ostrur, hér úti í eyði- mörkinni. Hvaða skeljar eru þetta annars?" „Ostruskeljar," svaraði jarðfræðingurinn. Endur fyrir löngu var þetta hafsbotn.“ Nokkrum dögum eftir að við fundum ostru- skeljalagið, fundum við lítið eitt af úraníum í jarð- falli, þar sem 80 feta löng beinagrind af risaeðlu lá. Svo algengt er að finna risaeðlubein hingað og þangað á hásléttunni, að úraníumleitarmenn líta naumast við þeim. Þessi heljarstóra beinagrind fannst næstum því alveg heil. Vísindaleiðangurs- menn höfðu grafið hana upp fyrir skömmu. Fyrir forvitnis sakir, rannsökuðum við grýttan jarðveg- inn, þar sem þessi risaskepna hafði legið um þús- undir ára. Grjótið var geislavirkt, en þó ekki mikið. „Hvers vegna getum við ekki fundið úraníum,“ spurði konan mín, „jafnvel risaeðlur geta það?“ Dag nokkurn, um sólsetur, skröltum við inn í höfuðborgina á miðri hásléttunni — Hanksville í Útah. íbúarnir eru áttatíu talsins, og við fengum leigt eina herbergið, sem laust var í þorpinu. Gas- ljós var í herberginu, en því fylgdu önnur nýtízku þægindi — áfast snyrtiherbergi, með litlum steypi- baðsklefa í horninu. Niðamyrkur var í klefanum. „O, Jivað ég hlakka til að komast í bað!“ sagði konan mín.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.