Heima er bezt - 01.03.1956, Side 36

Heima er bezt - 01.03.1956, Side 36
88 Heima Nr. 3 --------------------------------er bezt---------------------------- námugröft á fleiri stöðum, sem spá góðu. Fram að þessu hafa Navajo-Indíánarnir fengið greiddar milljónir dollara fyrir úraníum. Fyrir þetta fé hafa þeir byggt góða skóla og sjúkrahús, keypt nýjustu gerðir landbúnaðarvéla, og þessi mikli auður hefir losað margar ættkvíslar undan oki eymdar og hung- ursneyðar, sem hefir þjáð þær í marga mannsaldra. Ef til vill var óheppnasti úraníumleitarmaður- inn, sem við hittum, Harlon W. Bement, forstjóri Flugmálaráðs Utah-fylkis. Hann flaug með okkur heilan dag fram og aftur yfir hásléttuna, yfir svæði, sem hvítir menn hafa aldrei fótum stigið. Einu sinni flaug hann lágt yfir eyðilegt svæði, þar sem sjá mátti stutta flugbraut. „Þarna var það, sem minnstu munaði, að ég yrði ríkur,“ sagði hann og brosti mæðulega. Nokkrum mánuðum áður hafði honum og frænda hans, Frank Kelsey, frá Salt Lake City, tek- izt að lenda þarna lítilli flugvél, og höfðu þeir í hyggju að leita þarna að úraníum. Þegar þeir voru búnir að vinna að því í fjóra daga að höggva kjarr, til þess að búa til litla flugbraut, svo að flugvélin gæti aftur hafið sig á loft, voru þeir orðnir of þreytt- ir og hungraðir til að geta gert annað en lauslegar athuganir. Geiger-teljararnir þeirra bentu á mikla geislaverkun, en þeir ákváðu að fljúga heim og sækja birgðir, áður en þeir gerðu tilkall til svæðis- ins. Til allrar óhamingju fyrir þá, sást flugbrautin mjög greinilega úr loftinu, og laðaði að sér aðra úraníumleitarmenn, sem höfðu flugvélar til að komast sem víðast. Þegar Bement og Kelsey komu til baka, voru aðrar flugvélar lentar á flugbraut- inni þeirra, og búið að afmarka skika í allar áttir, á margra mílna svæði. „Og mér var sagt, að í vikunni, sem leið, hafi nokkrir skikar verið seldir fyrir fimm milljónir dollara,“ sagði Bement ólundarlega. Sá staður, sem við heimsóttum, er mest leynd var yfir, var fimmtíu og fimm ekra afgirt svæði, en á því stóðu skrifstofubyggingar Kjarnorkunefndar- innar í Grand Junction í Colorado, og er það mið- stöð úraníumöflunarinnar. Verðir festu auðkenni- leg merki á brjóst okkar og fylgdu okkur síðan til framkvæmdastjórans, Sheldon P. Wimpfen. Hann var hávaxinn, þrekmikill, hreinskilinn og furðan- lega ungur maður, sem ásamt 1.200 aðstoðarmönn- um, ber ábyrgð á því, að nægilegt magn úraníum berist frá hásléttunni og nærliggjandi svæðum. Wimpfen sagði okkur, að hann fengi nú úraníum- grýti frá Kaliforníu, Nevada, Wyoming, Washing- ton, Texas og Suður-Dakota, auk þeirra fjögurra fylkja, sem hásléttan teygði sig inn í, og svæði þau, þar sem úraníum fyndist, færðust stöðugt út, eins og gárar á vatni, ef steini er kastað út í tjörn. Um það bil þrjú þúsundir vongóðra úraníumleitar- manna streymdu á mánuði hverjum inn í upplýs- ingaskrifstofuna á Grand Junction. Konan mín horfði á hann vonaraugum. „Segið þér þeim, hvar þeir geti fundið úraníum?" spurði hún. Wimpfen tottaði pípuna sína. „Ég segi þeim,“ svaraði hann, „að Kjarnorkunefndin hafi þá skoðun á málinu, að mest af því úraníum, sem auðvelt sé að komast að, væri þegar fundið, og eftir því úr- aníum, sem mundi finnast í framtíðinni, yrði senni- lega að bora ofan í hamraborgirnar, í stað þess að labba í kringum þær með Geiger-teljara. Og til þess að bora, þarf dýrar vélar.“ „Dregur það kjarkinn úr fólkinu?“ spurði ég. Wimpfen brosti. „Nei, það lætur það ekki á sig fá,“ svaraði hann. Nú erum við komin aftur heim, þar sem engar köngulær angra okkur í steypibaðinu, og hæðirnar eru ekki þverhníptar, en einhvern veginn finnst okkur lífið heldur viðburðalítið. Þegar ég tek lest- ina klukkan rúmlega átta á morgnana og treðst inn í daunillan reykingaklefann, man ég þá dýrlegu sjón, er fyrstu geislar morgunsólarinnar skinu á klettaborgirnar, og hve hressandi það var að anda djúpt að sér tæru lofti, er ég vaknaði á bedda mín- um undir berum himni. Og ég man einnig æðið, sem greip okkur, þegar við héldum, að við hefðum fundið fjársjóð. Ekki vissi ég, hvernig dúfunni minni leið, fyrr en hérna um kvöldið, þegar ég var að leggja saman mánaðarreikningana. Hún truflaði mig með angist- arveini og heimtaði að fá að lesa fyrir mig auglýs- ingu í dagblaði. „Það er alveg dásamleg útsala á loðkápum hjá Magnin,“ sagði hún. „Farðu þangað með Geiger-teljarann,“ hreytti ég út úr mér, „og vittu hvort þú getur ekki fengið kápu í skiptum fyrir hann.“ „Nei,“ sagði hún mjög ákveðin. „Ég er búin að sjá það, að ég þarf ekki að fá neina nýja kápu í haust. Við skulum halda í Geiger-teljarann. Kann- ske við getum farið aftur upp á hásléttuna næsta vor. Hvernig lízt þér á það?“ „Elskan mín,“ sagði ég með ákefð. „Mér lízt mæta vel á það.“

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.