Heima er bezt - 01.03.1956, Blaðsíða 38

Heima er bezt - 01.03.1956, Blaðsíða 38
Hér birtist annar Þegar Cindy féll i yfirlið, sd Hank morðglampa i augum Hilliards. — „Hreyfðu þig ekki,“ hrópaði hann. ÞRÍR hluti af hinni spennandi framhaldssögu OBOÐNIR GESTIR F'Wrðu þarna inn, Robish," sagði Glenn Griff- in, „og fylgstn með, hvað gerist fyrir framan húsið.“ Robish leit af henni, hlýddi skipuninni og gekk inn í dagstofuna og lét sig fallast þar ofan í djúpa stólinn, sem sneri að nokkru að gluggunum á fram- hliðinni. Hann dró djúpt andann. Bakdyrnar opn- uðust og lokuðust aftur. Nú voru þeir allir þrír inni í húsinu, og bifreiðin falin í skýli Hilliards. „Sjáið þér nú til,“ sagði Glenn og beindi máli sínu til húsmóður, „sjáið þér nú til, nú þurfum við að síma, þér og ég. Ég vona, að þér hafið ekkert á móti því. Og ég þykist vita, að þér munið fara nærri um, hvað gerist, ef þér segið eitthvað grunsamlegt. En ef svo er ekki, þá er rétt fyrir yður að taka eftir því, sem ég segi. Við ætlum að vera hérna. Við höf- um enga löngun til að gera nokkurum mein og allra sízt börnunum. En þegar snáðinn, sem á hjól- hestinn, sem er hérna úti, kemur heim. .. .“ „Hvað ætlist þér til, að ég geri?“ spurði Elenóra. Glenn Griffin brosti aftur. „Sko til, hyggin, lítil frú. Ég ætla aðeins að vona, að fjölskyldan öll sé jafnhyggin og þér, frú Hilliard.“ Frúin studdi sig við símaborðið og hlustaði á vafningalausar fyrirskipanir hans, sem gefnar voru með lágri, viðfeldinni röddu. Því næst tók hún upp heyrnartólið, sneri skífunni og tók þá fyrst eftir eftir JOSEPH HAYES í þýbingu Kristmundar Bjarnasonar greinilegum, blóðugum tannaförum á handarbak- inu. Hún valdi sér númerið, sem fyrir hana var lagt. Það var símanúmer í Pittsburgh í Pennsyl- vaníu.... „Pittsburgh!“ Jessi Webb stóð bölvandi upp frá skrifborði sínu, eftir að hafa rætt við Carson frá sambandslögreglunni, sem einnig lét málið til sín taka. „Þeir hafa komizt á slóð Helenar Lamar.“ Tom Winston, sem heyrði á rödd hans, hve von- svikinn hann var og miður sín, er hann sagði þessar fréttir, sneri sér ekki við, þar sem hann sat við skrifborð sitt. „Náðu þeir henni?“ „Hún hélt á braut fyrir klukkustund síðan. Hvers vegna? Það veit enginn. Henni skaut upp allt í einu, og svo hvarf hún aftur. Þeir eru alltaf að yfirheyra starfslið gistihússins, og þeir telja ástæðu til að æt'la, að ekki hafi verið hringt í hana. Að minnsta kosti ekki í gistihúsinu. Hún er líka 90 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.