Heima er bezt - 01.02.1958, Qupperneq 2

Heima er bezt - 01.02.1958, Qupperneq 2
Öðru hverju heyrum vér landi voru gefna þá eink- unn, að það sé á mörkum hins byggilega heims. Og í hátíðarræðu fyrir alþjóð 1. des. sl. hafði dr. Sigurður Nordal þau ummæli um landið. Ég fæ ekki varizt því, að hverju sinni, er ég heyri þessi ummæli um Island, þá hnykkir mér við, líkt og skvett væri á mig kaldri vatns- gusu. Enda þótt þau séu viðhöfð sem eggjan, þá er fullvíst, að þau orka miklu fremur í gagnstæða átt. Þau falla vel í geð þeirra manna, sem allt hafa á hornum sér og sífellt eru neikvæðir um allt og alla. Ummæli þessi eiga bezt heima í heimsósómum og kvörtunar- ræðum liðinna alda, þau sómdu sér prýðilega í munni þeirra, sem mest hvöttu menn til að flýja land í harð- indaköflum síðustu aldar, en í umræðum vor nútíma- manna á miðri 20. öld eiga þau ekki heima, jafnvel þótt í góðum huga sé gert. Þau eru steingervingur í máli voru og hugsun og til þess eins fallin, að skapa óánægju og vonleysi, þegar á móti blæs. Ef til vill áttu þau rétt á sér á liðnum öldum en ekki lengur. Einhver kann nú að segja sem svo, að ekki hafi landið flutzt til á hnettinum, enn skoli öldur íshafsins um norðurströnd þess, og vér eigum við að búa sömu nátt- úru og fyrr. Hafþök af ísi séu enn í norðurhöfum, og ekki séu glóðir Heklu og Laka kulnaðar. Engu verður neitað af þessu. Það skal og viðurkennt, að vér höfum átt við betra árferði að búa síðustu 3—4 áratugina en um marsfar undanfarnar aldir, og vér vitum ekki, hvort slík gæði muni haldast. En þó svo færi, að aftur brygði til kaldari veðráttu, líkt og var á 18. og jafnvel 19. öld, þá skulum vér hafa hugfast, að mörk hins byggilega heims hafa færzt út. Vald mannsins yfir gæðum náttúr- unnar hefur aukizt, og varnir hans gegn hvers kyns á- föllum styrkzt svo stórlega, að þar er ekki um nokkurn samjöfnuð að ræða við liðna tíma. Ef vér skoðum málið til hlítar, eru þau lönd furðu- mörg, þar sem þjóðirnar verða í sífellu að verjast áföll- um af hendi þeirrar náttúru, sem þær búa við. Ekki mun nokkurt ár líða svo, að vér heyrum ekki um vatns- flóð, fellibylji, landskjálfta eða ofþurrka, sem leggja heilar byggðir og borgir í auðn, svipta tugþúsundir manna heimilum sínum og firra fjölda manns lífi og eignum. Og þetta gerist í þeim löndum, sem engum mundi hvarfla í hug að segja, að væru á mörkum hins byggilega heims. Miklu fremur væru þau talin til góð- landanna. En þótt óhöppin dynji yfir, hefur tækni nú- tímans, ásamt félagslegri þróun og samtakamætti, gert kleift að reisa að nýju, það sem lagt var í rústir, og brátt eru sárin gróin á ný. Ef vér skyggnumst um í vorri eigin sögu, hefur hið sama gerzt, enda þótt vér værum öldum saman varnar- lausastir allra varnarlausra til að mæta þungum höggum óblíðrar náttúru. Þjóðin lifði af, þótt nærri væri höggv- ið, og meira að segja glataði aldrei menningu sinni. En tímarnir hafa breytzt. Sameinað átak þjóðarinnar og aukin tækni og þekking hefur gert oss kleift að koma við vörnum, þar sem áður var opið skarð og ófullt, þó að ðnn skorti allmjög á að vér höfum fengið þau tæki og þekkingu, sem til er fullkomnast. Þannig höfum vér færzt fjær endimörkum hins byggilega heims, þótt land vort hafi ekki breytzt. Fiskimið vor eru auðug, en vér þurfum ekki að bíða þess, að fiskurinn gangi upp í landsteina, til þess að afla hans, heldur sækjum hann til djúpmiða, og með ári hverju bætum vér við þekk- ingu vora á Hfnaðarháttum hans og göngum, til þess síðar að gera oss kleift að fylgja honum eftir, en jafn- framt haga veiðinni eftir þoli stofnsins. Og sífellt þok- umst vér í þá átt að gera oss aflann verðmætari en áður var, svo að sama magn fiskjar skapi oss meiri verðmæti. Land vort á ótæmandi orkulindir vatnsafls og jarð- hita. Enn er í fullu fjöri fjöldi þeirra manna, sem fyrstir sáu þessar orkulindir hagnýttar þjóð vorri til hagsbóta, og til þess að gera landið byggilegra en áður. Og með hverju árinu sem líður hagnýtum vér meira af þessum sístreymandi lindum orku og auðs. Og síðast en ekki sízt, vér eigum frjósama mold og víðar lendur, sem bíða þess eins að verða hagnýttar til ræktunar. Þótt sú staðreynd sé viðurkennd, er því títt svarað, að ræktun vor sé og hljóti að vera einhæf. Satt er það að vísu, en vert er að hafa í huga þá staðrevnd, að aukin þekking manna á náttúruvísindum hefur skap- að möguleika til að framleiða ný afbrigði yrkiplantna, sem vaxið geta við öll önnur skilyrði en fyrr var kunn- ugt. Með þeim hætti hefur akurlendi jarðarinnar færzt út. Ræktun ýmissa korntegunda hefur þokað drjúgum lengra norður á bóginn sakir þess, að nú hafa fenyizt afbrigði, sem ná að þroska fræ sín á styttra og svalara sumri en hin eldri þeirra gerðu. Og vitanlega hefur hið sama gerzt með fjölmargar aðrar plöntur en kornteg- undirnar. Það er því engin fjarstæða að gera sér vonir um það, að oss megi takast að auka fjölbreytni í rækt- unarframleiðslu vorri. Með kunnáttu og kostgæfni má 40 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.