Heima er bezt - 01.02.1958, Blaðsíða 4

Heima er bezt - 01.02.1958, Blaðsíða 4
BJORGVIN GUÐMUNDSSON tónskálcl egar ég réðst til prestsþjónustu vestur um haf árið 1928, bað einn af kennurum mínum, hinn ljúfi og elskulegi kirkjuhöfðingi Sigurður P. Sívertsen vígslubiskup, mig fyrir kveðju til fermingarbarns síns í Winnipeg. Kveðjan var til Björg- vins Guðmundssonar tónskálds, og hafði ég þá aldrei fyrr heyrt hans getið. „Blessaður Björgvin, hann var alltaf svo góður. Og svo eru lögin hans svo falleg. Hann ætti að koma heim til íslands.“ Einmitt þannig fórust prófessor Sívertsen orð, og ég man, hvernig góðmennskan ljómaði af svip hins göfuga öldungs, er hann sagði þetta. Mér komu í hug ummælin úr Jakobsbréfi: Kröftug bæn réttláts manns megnar mikils. Þessi ósk rættist líka fyrr en varði. Ekki hafði ég hugmynd um það þá, hvort ég myndi nokkru sinni sjá þennan Björgvin, en þó höguðu atvik- in því svo, að ég kynntist honum tiltölulega fljótt eftir að vestur kom, og komum við brátt til að eiga allmikið saman að sælda, einkum eftir að hann tók við organ- leikarastarfi og söngstjórn við Sambandskirkju. Varð ég þess brátt var, að þar var munur að mannsliðinu. Söngpallur kirkjunnar fylltist þegar í stað, og varð þar öflugur kór. Get ég ekki hugsað mér áhugasamari og upplagðari kirkjuorganista en Björgvin var á þessum árum,-og það var eins og hann smitaði alla með lífs- þrótti sínum. Söngurinn var vel æfður og prýðilegur, og Björgvin var sífellt með hugann við að semja ýmsa helgisöngva, er hann lét flytja í kirkjunni við hátíðleg tækifæri. Samvinnu okkar við Sambandssöfnuð minnist ég með einskærri ánægju og alls þess, sem við höfum átt saman að sælda síðan. Frá því að Björgvin fluttist til Akureyrar árið 1931 og tók þar við söngkennslu við tvær menntastofnanir, hef- ur nafn hans verið á hvers manns vörum um land allt. Kemur margt til þess að hann verður mönnum hug- stæður. Fyrst og fremst hefur hann verið elskaður og dáður fyrir tónsmíðar sínar, sem hlotið hafa miklar vinsældir meðal þjóðarinnar. Hann hefur haldið uppi sönglífi og verið tilþrifamikill söngstjóri eins fjölmenn- asta söngflokks, sem starfað hefur á Akureyri. Með kjarnyrtum ritsmíðum sínum hefur hann vakið athygli. En auk alls þessa er hann mjög sérkennilegur persónu- leiki, óvenjuorðheppinn og skemmtilegur, þegar vel liggur á honum. Brýtur hann þá heilann um hin sundur- leitustu efni og er gæddur frjórri og frumlegri athug- unargáfu. Mörg hnyttinyrði hans eru landfræg. Þess hef ég orðið var, að ýmsir nemendur hans í Menntaskólanum hafa elskað hann mjög umfram aðra menn. Stafar þetta sennilega ekki af því, að hann sé svo natinn við kennsluna, því að annað hentar honum betur en kennslustagl, heldur af hinu, að þeir hafa gert sér það ljóst, að þarna er á ferðinni svo sérkennilegur og frum- gáfaður maður, að sjaldgæft er að kynnast hans líkum nemá fáum á öld. Það er því óvenjuleg lífsreynsla að kynnast slíkum mönnum með kostum þeirra og van- köntum. Jafnvel vankantarnir gera svipmót þeirra enn ógleymanlegra. Það mætti segja um Björgvin líkt og Bjarni skáld Thorarensen sagði um vin sinn, Odd lækni Hjaltalín, að hann væri eins og hreinn demant í ryðgaðri jámum- gerð. Björgvin hefur aldrei tamið sér neina uppgerðar- kurteisi og kemur ávallt til dyranna eins og hann er klæddur. En við vini sína er hann frábærlega einlægur og hreinskilinn. Og er það nú ekki í rauninni sannasta kurteisin? Björgvin Guðmundsson fæddist að Rjúpnafelli í Vopnafirði 26. apríl 1891. Foreldrar hans voru Guð- mundur Jónsson bóndi þar og kona hans, Anna Mar- grét Þorsteinsdóttir frá Glúmsstöðum í Fljótsdal. Hafði hún flutzt ung mær úr Fljótsdalnum til föðurbróður síns og konu hans, er bjuggu á Merki á Jökuldal, en hörfað með þeim hjónum austur í Vopnafjörð undan öskufallinu, sem varð af Dyngjufjallagosinu árið 1875. Hún var af ætt Þorsteins jökuls á Brú, en sá ættleggur var vel að sér gerr og hamrammur, enda sagður vera kominn af Guðbjarti flóka, galdrapresti í Laufási, sem orti dansa og kvað við raust. Ætt föður hans má rekja til Möðruvallapresta og séra Ólafs Guðmundssonar, sálmaskálds á Sauðanesi. Eru þeir Björgvin og Jón Árna- son bankastjóri bræðrasynir. Annars er mér ekki kunnugt um listagáfur í ætt Björgvins hið næsta honum, nema faðir hans mun hafa verið mjög söngvinn og lagvís. En auðvitað er það ekk- ert að marka. Slíkar gáfur geta legið í láginni, þar sem engin tækifæri eru til listiðkunar, og allir eiga fullt í fangi með að bjarga lífinu. Á uppvaxtarárum Björgvins lá Vopnafjörður mjög utan við alfaraveg og var eins og veröld fyrir sig. Sími var ekki lagður þangað fyrr en 1906, og segir Björgvin í Minningum sínum, að svo 42 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.