Heima er bezt - 01.02.1958, Síða 18

Heima er bezt - 01.02.1958, Síða 18
PÆTTIR ÚR VESTURVEGI eftir Steindór Steindórsson frá Hlö&um SÍÐASTI ÁFANGINN. Sunnar enn. egar ég kom út í Yosemite Lodge á miðviku- dagsmorgun 21. nóv. brá mér í brún. Jörð var ^ alhvít af hélu. Fossarnir uppi í hlíðinni, er að *- vísu höfðu áður verið með klakaskörum, voru nú botnfrosnir og lognhyljirnir í ánni stállagðir. Vetur var sýnilega á næstu grösum, þó veðrið hefði leikið við mig þessa tvo daga, sem ég dvaldist þarna í fjallabyggð- unum. Lagt var af stað kl. 8 að morgni. Bílstjórinn var hinn sami og áður, en farþegar sýnu fleiri, enginn þó af sam- ferðamönnunum uppeftir. Ekkert bar til tíðinda á leið- inni niður til Merced, en þar settist ég í járnbrautar- lest á ný suður til Bakersfield. Suður Jóakimsdalinn, var landið lengi með sömu ummerkjum og áður var lýst, skiptust þar á aldingarð- ar og vínekrur, en eftir því er sunnar dró, varð meira um kaktusa og pálmatré í görðum. En hvarvetna, þar sem áveitulöndum sleppti, var sviðin auðn til að sjá. Voru skilin furðulega skörp. Annarsvegar iðgræn áveitulönd, en hinsvegar auðnin með sviðnum grastopp- um og smárunnum, en hvarvetna skein í gulgráan sand- inn. En snögglega sáust nýstárleg akurlendi til beggja handa. Voru ekrurnar móleitar til að sjá, en hvarvetna skein í fannhvíta skúfa. Hér var komið í baðmullar- hérað. Gat ég ekki að því gert, að helzt minntu baðm- ullarekrurnar mig á íslenzkan brokflóa, þegar fífutopp- arnir eru að gægjast fram. Uppskeran stóð nú yfir. *» W **« •»**«% m *« M *»* **-*>**■ **4 *» » *« »*» ** <> «* *<» «.**«**«( >» ** Pershing-torg i Los Angeles. Sums staðar tíndu menn baðmullartoppana með hönd- unum, en annars staðar voru uppskeruvélar í gangi, dregnar af dráttarvélum. Hvarvetna voru hrúgur af baðmull við akrana, rétt eins og ullarbingir á kvíabóli um rúningstímann, og víða voru hreinsistöðvar, þar sem allt var fullt af baðmull, og á hverri járnbrautar- stöð voru endalausir staflar af baðmullarsekkjum og böggum. Eigi alllangt norðan við Bakersfield voru nautaréttir miklar og girðingar umhverfis. Voru þar svo stórar nautgripahjarðir, að helzt minntu þær mig á réttasöfn í fyrstu göngum, og þó jafnvel enn meiri fyrirferðar. Lestin fór eigi lengra en til Bakersfield. Þaðan var ekið í langferðabílum, það sem eftir var leiðarinnar til Los Angeles. Tók það 4 klukkustundir, án þess numið væri staðar, en þröngt var í bílnum og hitasvækja. Þótti mér þetta einn leiðinlegasti spölur, er ég ferðaðist í Ameríku. Suður úr Jóakimsdal er ekið gegnum þröngt fjalla- skarð. Mjög virtist þar hrjóstugt, og skriðuhætta mikil. Voru allvíða skriðuvarnir fram með veginum. Engin byggð sást þar við veginn, nema benzínstöðvar og bílaviðgerðir. Þegar suður kemur úr fjöllunum, opnast sýn yfir víðáttumikla sléttu, sem Los Angeles stendur á. En lítið sást að þessu sinni fyrir mistri. Brátt tók byggðin að þéttast. Þorp tók við af þorpi og stutt á milli. Inn í Los Angeles liggur leiðin gegnum North- Hollywood. Er það eitthvert hið ljótasta þorp, sem ég hef séð. Alla vega kofar, skúrar og braggar, sem virtist vera hrúgað upp af því rusli einu, sem hendinni var næst, þar sem það eitt hefði ráðið húsagerðinni, hverskonar og hve mikið spýtnarusl eða bárujárnsbúta hver og einn hefði átt kost á. En allt var þetta þakið auglýsingum í æpandi litum, og ekki mun heldur ljós- auglýsingarnar skorta þar við aðalgötuna, þegar kvelda tekur. Þegar inn kom í meginborgina, var bílamergðin svo mikil, að mjög tafðist för okkar, og varð ég harla feginn, er við loks komum á endastöð nálægt borgar- miðju. / Los Angeles. Los Angeles er fræg fyrir sólskin og heiðríkju. Þótt skammt sé til strandar, eru þokurnar, sem svo oft legg- ur inn að San Francisco, óþekkt fyrirbæri hér. Um- hverfis borgina má heita að landið sé eyðimörk, þar sem ekki er veitt á vatni. 56 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.