Heima er bezt - 01.02.1958, Side 21

Heima er bezt - 01.02.1958, Side 21
HVAÐ UNGUR NEMUR - ÞÁTTUR RITSTJÓRI: ÆSKUNNAR STEFÁN JÓNSSON ----------------------------------------------- NÁMSTJÓRI VARIZT HÆTTURNAR! Áhættan á götunni. Y R i r fimmtíu árum hefði engum dottið í hug að tala um lífshættu í umferðinni í Reykjavík eða öðrum kaupstöðum á Islandi. Þá var ekkert að óttast á sléttri götunni. Eina áhættan var helzt, ef hópar ríðandi manna fóru geyst um bæinn, enda var bannað að ríða hart eftir götunum. Nú má segja að enginn sé öruggur um líf sitt í um- ferðinni, og á það jafnt við um fótgangandi fólk og þá, sem í bílum aka. Vegna sívaxandi vanda í sambandi við aukna umferð, hefur orðið að setja mjög strangar regl- ur um alla umferð og hver, sem ekki kann umferðar- reglurnar eða brýtur þær af fávizku eða kæruleysi, er í stöðugri lífshættu. Bílaárekstrar eru mjög tíðir, og oft er ekið á vegfarendur á götunni. Börnin á aldrinum tveggja til sex ára verða oftast fyrir bílum og þar næst aldrað fólk. Unglingar á aldrinum 12—17 ára verða þó mjög sjaldan fyrir bifreiðum, og sama má segja um full- orðið fólk á bezta aldri. Þetta sannar það, að eina slysa- vörn fótgangandi manns í umferðinni er vakandi at- hygli og kunnátta í umferðarreglum. í fjölmenninu er margt gert til að reyna að forða slvsunum, en þó eru þau allt of tíð. Er það sorgarsaga nútímans, hve slysin hafa aultizt við aukna tækni og batnandi samgöngur. Ég ætla ekki í þessum þætti að ræða sérstaklega slysa- hættuna í fjölmenninu, heldur miklu fremur að minna á, hvað ber að varast út um byggðir landsins. Fyrst ætla ég þó að segja sögu, sem gerðist í litlu kauptúni langt frá Reykjavík fyrir 10—12 árum. Ég veit, að sagan er sönn, því að ég kom þar sama kvöldið og þetta gerðist. — En sagan er svona: Stór vörubifreið var að aka út kolum. Þegar bif- reiðarstjórinn kom að húsinu, þar sem hann átti að af- henda kolin, þá „bakkaði“ hann bifreiðinni heim undir kjallaradyr á bakhlið hússins. Við húsgaflinn var skúr með flötu þaki. Hópur af krökkum, sex til tíu ára, var að leika sér rétt hjá húsinu, þegar bíllinn kom. Þykkur snjóskafl lá þétt upp að skúrnum. Á meðan verið var að bera kolin af bílnum inn í kjallarann, þutu krakk- arnir eftir snjóskaflinum og upp á þakið á skúrnum. Þar stóðu þau, meðan verið var að bera inn kolapokana. Bifreiðarstjórinn snaraðist svo inn í bílinn og ætlar samstundis að aka af stað, en bíllinn var tregur í gang og komst því ekki strax af stað. Bifreiðarpallurinn var þétt upp við skúrinn og var aðeins lítið eitt lægri. Börn- unum dettur allt í einu í hug að stelast út á bílinn. Sjö börn stökkva af skúrnum niður á pall bifreiðarinnar, og samstundis ekur bifreiðarstjórinn af stað, og hefur hann enga hugmynd um, að börnin hafi stokkið ofan á pallinn. Allt gengur vel meðan gatan er bein. Bílstjórinn ekur fremur hratt, þar sem hann veit ekki annað, en bifreiðin sé mannlaus. Allt í einu þverbeygir hann fyrir húshorn. Við þennan sling, sem kom á bílinn, fleygð- ust öll börnin út af bílpallinum. Sjónarvottur, sem sagði mér frá þessu, sagði að sér hefði brugðið svo, að hon- um hálfdimmdi fyrir augum. Þegar hann svo leit upp, lágu börnin öll í hrúgu á götunni. Það var ömurleg sjón. — En oft rætist betur úr en á horfist. Það undra- verða kraftaverk skeði, að aðeins eitt barnið meiddist nokkuð, en þó ekki hættulega, en hin sluppu með skrámur og marbletti. Allir lofuðu Guð fyrir, að ekki varð meira að, en mest var gleði foreldranna, sem þótt- ust hafa heimt börn sín.úr helju. En nú spyr ég: Hver átti sökina? Ekki átti bifreiðar- stjórinn sökina. Hann vissi ekkert um börnin á pallin- um. Nei, sökin var þarna eingöngu hjá börnunum sjálf- um. Það er ætíð hættulegt að standa aftan á palli vörubif- reiðar, ef engar grindur eru, en það er bein lífshætta, ef bifreiðarstjórinn veit ekki um það. Veit ég mörg dæmi um það, að slíkt hefur orðið að tjóni. Ég vil vara öll ungmenni við að hætta lífi sínu á þennan hátt. Aðra svipaða sögu get ég sagt, sem ég varð sjálfur sjónarvottur að. Strætisvagn var að síga af stað úr á- fangastað. Þrír stálpaðir drengir biðu færis aftan við strætisvagninn, og um leið og vagninn hreyfðist úr stað, gripu þeir aftan undir yfirbygginguna á vagn- inum, krupu niður og létu vagninn draga sig. Rétt á Heima er bezt 59

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.