Heima er bezt - 01.05.1958, Blaðsíða 18

Heima er bezt - 01.05.1958, Blaðsíða 18
HVAÐ UNGUR NEMUR - ÞÁTTUR RITSTJÓRI: ÆSKUNNAR STEFÁN JÓNSSON ---------------------------- NÁMSTJÓRI SUMARMÁL 1v e r g i á byggðu bóli á fyrsti sumardagur önnur eins ítök í þjóðlífinu og á íslandi. Hann er fagnaðar- og vona-dagur. Um alda- raðir munu hafa gilt fastar venjur um helgi- hald dagsins. Þær venjur eru nú, með breyttum lífs- háttum, að falla úr gildi smátt og smátt, en í stað þeirra, sem falla í glevmsku, myndast aðrar nýjar. f fjölmenn- inu í kaupstöðum og kauptúnum er fyrsti sumardagur nú rétt nefndur barnadagur. Hefur sumardagurinn Telpa í íslenzkum þjóðbúningi fagnar sumri. fyrsti um nokkra áratugi eingöngu verið helgaður íslenzkri æsku. í Reykjavík eru hátíðahöld á fyrsta sumardag öll á vegum æskulýðs, og í skemmtistöðum höfuðborgarinn- ar eru flest öll skemmtiatriði framkvæmd af börnum innan fermingaraldurs. Börnin leika í leikatriðum, syngja, lesa upp, dansa, sýna fimleika, leika einleik á hljóðfæri o. fl. Yfirleitt eru slíkar skemmtanir vel sótt- ar bæði í Reykjavík og annars staðar á landinu. A fyrsta sumardag koma mjög mörg börn í fyrsta skipti fram fyrir áheyrendur í fullsetnum salarkynn- um samkomuhúsanna. Mörg börnin hafa lagt mikið á sig við æfingar og undirbúning, og vafalaust er hjart- sláttur þeirra örari en venjulega og roði í kinnum, er þau stíga sín fyrstu skref fram á leiksviðið. Sum koma þarna, ef til vill aldrei aftur, en mörg þeirra verða þar síðar tíðir gestir. I þessum hópi eru vissulega tilvon- andi listamenn íslenzku þjóðarinnar. Allir frægir lista- menn, hafa eitt sinn verið óþekkt börn, sem aðeins nánustu vandamenn þekktu. Ef til vill hefur móður- augað glöggt komið auga á listamannsefnið, þótt ekki hafi verið haft hátt um það. Hlutverk barnsins á fyrsta sumardag hefur ýmist glætt vonimar um frægðardaga og framtíð listamanns, eða slökkt þær. í þessum fjölmenna hópi, um allt fs- land, sem koma fram á leiksvið fyrsta sumardag, eru vafalaust börn, sem á næstu tveimur áratugum verða þekktir leikarar, söngvarar eða upplesarar. Sum verða þjóðfræg skáld og myndlistarmenn, — og önnur list- rænir hljóðfæraleikarar og tónskáld. í þessum lítt þekkta hópi barna felast drengir og stúlkur, sem síðar verða af verkum sínum kunn um allt ísland og víðar. En hvað er þá um hinn hópinn, sem ekki kemur fram á leiksviðið, en nýtur þess að vera áheyrandi og áhorf- andi? Sá hópur er vitanlega miklu stærri. Eru þar engir duldir listamenn? Jú, vissulega. Hæfileikar margra ung- menna vakna ekki fyrr en á unglingsárum og mörg list- ræn böm em svo hlédræg, að varla er hægt að fá þau til að koma fram fyrir áheyrendur. Listamannseðlið blundar í brjósti þeirra bama, og hefur enn ekki feng- ið útrás.... Engin vissa er fyrir því, að bezta listamannsefnið eða 164 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.