Heima er bezt - 01.07.1958, Side 11

Heima er bezt - 01.07.1958, Side 11
svipað áður lýstu dráttarneti, upp fyrir klettana og dráttarsvæðið í ánni og leggja það uppgert í fjöruna. Þá var gengið niður fyrir dráttarsvæðið, setzt á hestbak og riðið út í ána með annan togendann, en landmaður hélt í hinn. Var fyrst riðið þvert út í ána nokkurn spöl, en síðan gegn straum upp undir áðurnefnda klöpp í ánni, og staðnæmzt þar. Á þessari leið er grýttur botn og vatnsdýpi venjulega á miðjar síður hests, stundum dýpra. Þurfti því valda hesta við þessa drætti, sem og við önnur ferðalög á hestum á þessum slóðum, fótvissa og rólega, og gekk oft illa að fá óvana hesta til þess að standa rótlausa á meðan netið var dregið fram, einkum þegar kalt var, og svo aftur að vaða rösklega til baka án þess að hnjóta. Bæri út af með þetta eða ef önnur mistök urðu hjá dráttarmönnum, fór allur árangur út um þúfur. Jafnframt því, sem reiðmaðurinn þokaðist upp eftir ánni, færði landmaður sig í áttina að netinu og hélt toginu strengdu yfir vatninu. Þegar að netinu kom og hinn maðurinn hafði numið staðar, var taugin bundin í klóna og kippt lauslega í togið til merkis um, að tímabært væri að draga fram netið, en áðurnefndur klettur í ánni byrgði sýn milli mannanna. Þegar sá, sem dró fram netið, var kominn með klóna að hestinum, rak hann upp óp, til merkis fyrir landmann að sleppa netinu og hlaupa af stað, sneri hestinum við í snatri, barði fótastokkinn og reyndi að koma hestinum svo hratt áfram, sem auðið var, til þess að komast á undan netinu, sem rak mjög hratt undan straumnum, og ná landi á líkum stað og farið var út í ána, áður en netið var komið svo neðarlega. Á meðan þessu fór fram, gaf landmaður eftir netið, um leið og hann heyrði hrópið, og hljóp allt hvað af tók yfir plankana og klappirnar, í kapphlaupi við netið, stökk ofan af einni klöppinni og átti, ef vel gekk, að vera kominn niður að landtöku- staðnum jafn snemma reiðmanninum, þar sem þeir kipptu netinu á land og réðust á veiðina, ef einhver var. Eins og með ádráttinn á prömmunum, sem áður var Öll kvislin, sem lögnin er i, og girðingin. lýst, stóð árangurinn eða féll með lipurð og samtökum veiðimannanna, ásamt hæfni hestsins, sem notaður var, væri annars um nokkurn fisk að ræða á dráttarsvæðinu. Oft bar líka ýmislegt út af, svo að lítið varð úr veiði af þeim sökum, t. d. að hesturinn hnaut eða varð of seinn af öðrum orsökum og lenti jafnvel í netinu, en alvar- legast var samt, ef landmaður féll út af plankanum, sem kom fyrir og gat orðið hættulegt, en var sem betur fór aðeins notað til athlægis en ekki til beinnar ásökunar. Ekki þótti þó nein upphefð að því. Aðal-veiðitækin þama voru þá hinar svonefndu laxa- kistur og veiðin nefnd kistuveiði. Skal nú hér á eftir leitazt við að lýsa þeim sem nánast, ásamt öllum útbún- aði við þær, aðferð við frágang á þeim og veiði. Kistan var gerð þannig, að negldir vom saman þrír þríhyrningar úr borðum, 3 cm þykkum, 10—12 cm breiðum og 2—2.2 m löngum, og röðum borðanna snúið upp og niður. Þá voru gerðar þrjár stoðir þrístrendar, fremur grannar, sem féllu innan í horn þríhyrninganna, og um 2 m langar, þær reistar upp lóðrétt og þríhym- ingarnir negldir á stoðirnar, einn efst, annar í miðju og þriðji neðst. Þá voru negldir rimlar lóðrétt á þríhym- ingana úr borðum, 3 cm þykkum, 5—6 cm breiðum og jafnháum stoðunum og með ca. 5 cm millibili. Var þá kominn þrístrendur rimlahólkur. Þá var negldur botn úr 3 cm þykkum borðum innan í hólkinn, ofan á neðsta þríhyrninginn, en ofan á þann efsta var svo þiljað með sams konar borðum, en 3—4 þeirra voru ónegld niður, en tengd saman með okum og höfð á hjörum sem hurð ofan á kistunni, til þess að komast ofan í hana og ná í veiðina. Á einni hlið kistunnar, þeirri er undan straumi skyldi vita í vatninu, þegar sett var niður, var rimlalaust op fyrir miðju, þar sem laxinum var ætlað að fara inn um, og með sérstökum útbúnaði. Á annarri hvorri hlið kistunnar, er í straum vissi, voru nokkrir rimlar ónegldir Kistulögn á neðri stað í Kistukvisl, séð ofan frá. Heima er bezt 229

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.