Heima er bezt - 01.07.1958, Side 15

Heima er bezt - 01.07.1958, Side 15
ÁSGEIRSSON: J Ó H . inu L • akobínu Jakobsdóttur er áður getið í „Heima er bezt“ í sambandi við frásögn, er heitir: Hvað var í göngunum? Og þá var hún á fimmta ári, en nú er hún 56 ára að aldri. — Hún ólst upp, eins og áður er frá sagt, hjá Gísla Jóhannssyni og Olínu Guð- jónsdóttur, er bjuggu í Pálsseli í Laxárdal í byrjun 20. aldar. Það mun hafa verið árið 1941, sem J'akobína sá sýn þá, er hér verður frá sagt. Hún var þá stödd í eldhús- inu heima hjá sér á Ásvallagötu 57 í Reykjavík. Ólína, fóstra Jakobínu, var þá dáin fyrir mörgum arum. Óli Hjartarson, eldri sonur Jakobínu, átti þá að ferm- ast um vorið. Jakobína segir, að sýn þessa hafi borið fyrir sig á björtum degi. Segir hún, að fóstra sín hafi komið inn í eldhúsið, og hafi hún litið út eins og er hún var á lífi, að öðru leyti en því, að hún hafi verið glaðlegri og léttara yfir henni. En hún átti við mikla vanheilsu að stríða mestan hluta ævinnar. Og segir Jakobína, að hún hafi þá talað til sín þessum orðum: „Elsku barnið mitt. Þú skalt ekki vera að setja það fyrir þig, þótt þú getir ekki haft það allt eins og þú hefðir óskað við ferming- una, því það er allt svo sára lítils virði.“ Jakobína ætlar þá að segja eitthvað við hana, en þá er hún horfin sjónum hennar. En í sama bili virðist Jakobínu, sem húsveggirnir séu horfnir, og hún sér upp í stjömubjartan himin. Og sér hún þá, að fimm stjörn- ur hrapa niður í suðvesturhom stofunnar. Þar var legu- bekkur, og svaf Óli, sonur hennar, venjulega í honum. Lengri varð sýnin ekki í það sinn. En nákvæmlega fimm árum síðar, 16. júní, kl. 12 á miðnætti, er Jakobína ein heima í húsinu en er þó ekki háttuð. Syfjar hana mjög, og dregur úr henni allan mátt, svo að hún kemur sér ekki úr fötum, heldur kastar sér upp í legubekk þar í stofunni. Virðist henni þá, sem hún sjái út á götu, og sér hún Óla son sinn standa þar upp við bílinn sinn. En hann var þá nýlega búinn að kaupa vörubíl. Og var hann í vinnufötum, en allur út ataður í moid. En þar sem Óli stóð, sýndist henni vanta stórt stykki í bílpallinn. Sér hún þá, að skammt frá Óla stendur maður, sem hún þekkti, og var það Alexander Valentínusson smiður. Segist Jakobína þá tala til hans og spyrja hann að því, hvort hann geti nú ekki hjálpað honum Óla að gera við bílinn, en það sagðist Alexander ekki geta. Kl. 1 um nóttina þetta sama kvöld er komið með Óla Hjartarson til Reykjavíkur austan af Þingvöllum stór- slasaðan, nær dauða en lífi. Hafði hann þá hrapað í Al- mannagjá og komið niður á mosató á milli tveggja steina í stórgrýtisurð. Og varð það honum til lífs. Að endingu skal þess getið, að Jakobína sagðist hafa haft ýmsar áhyggjur fyrir ferminguna, af vissum ástæð- um. Og segist hún því alltaf síðan setja sýnir þessar í samband við slys Óla og atvinnumissi, sem endaði með því, að hann varð að selja bílinn, þótt hann síðar kæm- ist til sæmilegrar heilsu. Frásögn þessi er tekin eftir Jakobínu sjálfri af þeim, er þetta ritar. PÁLL GÍSLASON: SÖGN AÐ AUSTAN Svo bar til á bæ einum í afskekktri sveit á Austur- landi um miðja síðastliðna öld, að niðurseta ein gömul mjög gerðist máttlítil er líða tók á harðan vetur, og þótti líklegt að hennar dagar væru brátt taldir. í þann tíð þótti það brýn nauðsyn að fólk fengi prestsþjónustu fyrir andlátið og virðast niðursetningar hafa átt þar sama rétt og aðrir. Einn morgun snemma í vondri færð og hríðarmuggu var röskasti vinnumaðurinn dubbaður upp og sendur að sækja prestinn. Vinnumaður hefur hraðan á og kemur um miðjan dag á prestssetrið og býr prestur sig í skyndi og halda þeir síðan af stað. Þegar þeir eru um það bil komnir á miðja leið, man prestur eftir því að hann hefur gleymt messuvíninu heima, og biður vinnumann nú að snúa við og sækja það. Það aftekur vinnumaður með öllu, segir að annar vinnumaður á sínu heimili muni eiga brennivínslögg í kút og muni það gjöra sama gagn. „Já heillin,“ segir prestur, „ég get notað það.“ Um kvöldið koma þeir á bæ kerlu, og að fengnu brennivíni vinnumanns, gengur prestur á fund hennar, þar sem hún kúrði í bóli sínu í frambaðstofu utar frá palli. Fremur hann þar sína þjónustu og sparar ekki vínið, biður hana síðan vel að fara — og aldrei aftur koma líklega. Að þessu loknu er presti boðið til hjóna- húss og veittur beini, situr hann síðan á tali við bónd- ann um stund. Eitt sinn, er húsfreyju ber að, spyr prest- ur: „Æ, hvernig líður blessuðum aumingjanum?“ — „Minnztu ekki á það, Fúsi bróðir, hún er sezt upp á pall og farin að syngja.“ Presturinn hét Sigfús og var bróðir húsfreyju. Heima. er bezt 233

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.