Heima er bezt - 01.07.1958, Side 21

Heima er bezt - 01.07.1958, Side 21
En hvernig stendur þá á þessu keilulaga fjalli þama fremst á nesinu? — Vafalaust hefur það vakið athygli fornmanna og þá sérstaklega snæhettan, samanber nafn- ið Snjófell. — En sannleikurinn er sá, að Snæfellsjökull er gamalt, kulnað eldfjall, myndað á sama hátt og Hekla á Rangárvöllum. Frá Snæfellsjökli hefur í fyrndinni runnið gífurlega mikið af hraunum, sem þekja mikið af nesinu framan undir jöldinum. Merkasta fornsöguhetjan, sem talað er um „undir jöldi“ er Bárður Snæfellsáss. í sögu hans er sagt, að hann hafi verið að hálfu tröll og að hálfu maður. Hann var bjartur á hörund og fríður sýnum eins og mennsk- ur maður, en jötunn að vexti og afli, heiftrækinn og geðillur, eins og versta tröll. Þegar aldur færðist yfir Bárð, vildi hann ekki vera með öðm fólki, en fór ein- förum og bjó í helli. Var það trú manna, að hann „dæi í jökulinn“. Það er: að hann lifði í jöklinum eftir dauða sinn og hjálpaði stundum mönnum í sjávarháska og annarri lífshættu, og því var hann nefndur Snæfellsáss, sem merkir eiginlega Snæfellsgoði. Munnmæli herma, að Bárður hafi látið gull og ger- semar í kistu stóra og falið hana í annarri jökulþúfunni, en aðrir segja að hann hafi falið hana í kletti, er Bárðar- kista nefnist. Er sagt, að Bárður hafi mælt svo um, að kistuna skyldi enginn eignast, nema sá 12 vetra sveinn, sem kjark hefði til að klífa jökulinn einn og leita kist- unnar. En þau vandkvæði voru á, að til þess að slíkt gæti tekizt fyrir piltinum, þurfti hann meðal annars að hafa lifað eingöngu á kögglamerg og kaplamjólk allt frá barnsaldri. Og auk þess mátti hann aldrei hafa í kirkju komið og ekkert gott orð numið. Vafalaust er gullkistan enn kyrr í jöklinum, því að engar sögur fara af því, að nokkur tólf vetra sveinn hafi sótt hana. Enda var uppeldi drengsins nokkrum vand- kvæðum háð, eins og að framan er sagt. Um Bárð Snæfellsáss er annars allstór saga. Er sú saga stórbrotin og allhrikaleg á köflum. Bárður var fæddur í Noregi, en fluttist til íslands, er hann var fullvaxinn Snœfellsjökull, séður úr Staðarsveit. Jökulþúfurnar á Snœfellsjökli. maður og nam land framan undir Snæfellsjökli. Kom hann að landi þar sem Djúpalón heitir. Skipverjar hans námu land hér og þar framan undir jöklinum, og þar á meðal Þorkell, hálfbróðir Bárðar. Var hann hálftröll og heljarmenni, eins og Bárður. Eina sögu vil ég rekja hér frá viðskiptum þeirra bræðra, þótt hún sé Ijót, en hún á að sanna tröllakyn þeirra og skaphörku. En þeir, sem hafa undir höndum Bárðar sögu Snæfellsáss ættu að lesa hana, því að hún er stórbrotin og ævintýraleg, þótt hún sé í raun og veru sorgarsaga um grimm örlög og skaphörku. En sagan er þannig frá viðskiptum þeirra bræðra: Þorkell Rauðfeldsson (hálfbróðir Bárðar) átti tvo sonu við konu sinni. Hét annar Sölvi en annar Rauð- feldur eftir föður hans. Þeir uxu upp á Arnarstapa og voru efnilegir menn. Dætur Bárðar uxu upp á Laugar- brekku, bæði miklar og ásjálegar. Helga var þeirra elzt. Þorkelssynir og Bárðardætur höfðu saman leika sína á vetrum á svellum við ár þær, er Barnár heita. Þau höfðu löngum leikmikið (leikmikið mun hér merkja sama og harðleikið). Vildu Þorkelssynir meir ráða, því að þeir voru sterkari. En Bárðardætur vildu ekki láta sinn hlut lakari verða um það, þær máttu. Það var einn dag, að þau voru að leik sínum, og geklc þeim þá enn með kappi Rauðfeld og Helgu. Hafísar lágu við. Þennan dag var þoka mikil. Þau höfðu þá leikinn allt við sjóinn niðri. Rauðfeldur hratt þá Helgu út á sjó með jakanum, en vindur stóð af landi mikill. Rak þá jakann út til hafíssins; fór þá Helga upp á haf- ísinn. Hina sömu nótt rak ísinn á haf út. Helga fylgdi þá ísnum, en hann rak svo ört, að innan sjö daga kom hún með ísnum til Grænlands. Þá bjó í Brattahlíð Ei- ríkur rauði. Hafði hann einum vetri áður byggt Græn- land. Flans son var Leifur heppni. Helga var svo kyrr í Grænlandi, því engin leið var út að komast. Helga þráði mjög til íslands. Það var einn dag, að Helga stóð úti í Brattahlíð og litaðist um og renndi þá augum í átt til íslands og kvað vísu þessa: Heima er bezt 239

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.