Heima er bezt - 01.07.1958, Page 24
keppninnar, en þá var veður afbrags gott. Forseti ís-
lands, herra Ásgeir Ásgeirsson, og forsetafrúin, Dóra
Þórhallsdóttir, gerðu sér ferð norður og voru heiðurs-
gestir mótsins. Forsetinn kom ekki tómhentur. Síðari
dag mótsins afhenti hann Sundsambandinu að gjöf for-
kunnar fagran grip, sem hann óskaði að veittur yrði ár-
lega þeim keppanda, sem næði beztu afreki á íslandsmóti
í sundi. Bikarinn nefndi hann „Pálsbikarinn“ til heiðurs
Páli heitnum Erlingssyni, hinum mikla brautryðjanda
og frömuði á sviði sundsins.
Keppni var mjög skemmtileg í einstökum greinum á
sundmotinu, einkum í 100 m skriðsundi karla og 200 og
400 m bringusundi karla. Þá var keppni unglinganna
einnig mjög skemmtileg.
í 100 m skriðsundi stóð keppnin milli hins unga og
glæsilega sundmanns Guðmundar Gíslasonar og Péturs
Kristjánssonar. Pétur er „gamall“ í hettunni, hefur
keppt á sundmotum í 10 ár, og hefur engan veginn sagt
sitt síðasta orð á þessu sviði. Hann fór með sigur af
hólmi í þctta sinn í 100 m skriðsundi og varð „maður
mótsins“, hlaut fleiri meistarapeninga á þessu móti en
nokkur annar, sigraði í 100 m flugsundi auk skriðsunds-
ins og tveimur boðsundum. Hann bætti svo rúsínu í
pylsuendann með því að setja íslandsmet í 200 m skrið-
sundi.
í 200 og 400 m bringusundi stóð baráttan milli Einars
Kristinssonar og Sigurðar Sigurðssonar. Sigurður varð
hlutskarpari í 200 m sundinu en Einar í 400 m.
í greinum kvenna skáru þrjár stúlkur sig algjörlega
úr, Ágústa Þorsteinsdóttir, Helga Haraldsdóttir og
Hrafnhildur Guðmundsdóttir, hver í sinni sérgrein, og
var þeim varla veitt keppni. Sama er að segja um boð-
sundin. Yfirburðir Reykvíkinga voru þar vfirgnæfandi.
Tvö íslandsmet voru sett í greinum meistaramótsins
og eitt í aukagrein. Pétur Kristjánsson setti íslandsmet
í 200 m skriðsundi, eins og áður getur, synti fyrsta
sprett 4x200 m boðsundsins á 2 mín. 18.4 sek. Guð-
mundur Gíslason átti fyrra metið, 2 mín. 18.5 sek. Þá
setti Reykjavíkursveitin met í þrísundi kvenna, 1 mín.
50.5 sek. (Helga baksund, Hrafnhildur bringusund og
Ágústa skriðsund). Helga Haraldsdóttir reyndi að móti
loknu við íslándsmetið í 200 m baksundi og tókst glæsi-
lega, synti vegalengdina á 2 mín. 57.3 sek„ og hafa fáir
íslenzkir karlmenn gert betur. Helga átti sjálf fyrra
metið, 3 mín. 2.2 sek.
__ Að keppni lokinni afhenti forseti íslands, herra Ásgeir
Ásgeirsson, Pálsbikarinn í fyrsta sinn. Ágústa Þorsteins-
dóttir hlaut gripinn fyrir 100 m skriðsund (868 stig).
Næstbezta afrek var 400 metra bringusund Einars Krist-
inssonar (858.5 stig). Þriðja bezta afrekið var 100 m
skriðsund Péturs Kristjánssonar (858 stig).
Að ofan: Ilelga Haraldsdóttir bregður við i metsundinu,
200 m baksundi.
í miðju: Viðbragðið í 100 m baksundi. Guðmundur Gísla-
son og Jón Helgason.
Að neðan: Einar Kristinsson á fullri ferð í 400 m bringu-
sundinu. Hann sigraði i þeirri grein. (Ljósm. R. Vignir).
242 Heima er bezt