Heima er bezt - 01.07.1958, Blaðsíða 27

Heima er bezt - 01.07.1958, Blaðsíða 27
Ingibjörg Siguráardóttir: Valur hraðar sér fram úr stofunni, og fótatak hans fjarlægist brátt. Asta hallar sér út af á legubekknum í stofunni og grúfir andlitið í höndum sér. Heitar og sárar tilfinningar rísa í sál hennar, Af hverju var hann svona góður og hjálplegur við hana, algerlega ókunn- uga? Af eintómri meðaumkun? Ekkert annað gat stjórnað gerðum hans. Fátæk og umkomulaus vinnu- kona gat vakið samúð hjá drenglyndu mikilmenni, en annað ekki. Líf hennar er snauðara en áður, en þó rík- ara um leið. Örfáar hugljúfar minningar á hún, sem enginn getur frá henni tekið. Jón kemur inn í stofuna með kaffidúk í hendinni. Hún nemur staðar á miðju gólfi og segir undrandi: — Hvað! Er gesturinn farinn? Asta rís upp af legu- bekknum. — Já, hann fór strax, þegar erindi hans var lokið, segir hún. Jóna brosir. — Jæja, svona fór það, og ég sem var farin að hlakka til að drekka með honum kaffi. — Það verður víst ekki í þetta sinn, sem þér veitist sú gleði, Jóna mín. — Nei, það er víst ekki svo vel. Hann hefir átt eitt- hvert áríðandi erindi við þig, Ásta mín. Þið gerið mig bara forvitna! — Þeirri forvitni er ósköp auðvelt að svala. Hann bauð mér í vetur að ráða mig í sveit næst komandi sumar, og nú er hann búinn að því. Erindi hans hingað í dag var að láta mig vita það. — Nú, það er bara svona, Ásta mín. Og hvar er hann búinn að ráða þig? — Á einhverju sýslumannssetri, að Ártúni. Kannast þú nokkuð við það? — Nei, ég þekki þar ekkert til. En það gleður mig samt, að hann skuli hafa ráðið þig þangað. Ég ber svo gott traust til hans eftir þeim vitnisburði, sem hann fær hér á Sæeyri. — Ég er bara fegin að fá atvinnuna, — sama er mér hvar ég vinn. — Var það ekki Valur lögregluþjónn, sem fyrstur kom að í vetur, þegar þú bjargaðir drengnum mínum? — Jú, hann og bifreiðarstjórinn. — Og eftir það bauðst hann til að ráða þig í sveit? — Já, kvöldið sem við urðum samferða hérna sunnan veginn. Jóna horfir innilega á Ástu, og rödd hennar klökkn- ar, er hún segir: — Þótt ég geti ekki í neinu endurgoldið þér lífgjöf litla drengsins míns, þá er ég þess fullviss, að sá atburð- ur á eftir að verða þér til gæfu á einhvern eftirminnan- legan hátt, Ásta mín. Guð blessi þig fyrir það kær- leiksverk! VI. Vorsól í heiði baðar allt í geislum sínum, vekur til lífsins hvern blundandi frjóanga í moldinni, kallar allt fram til vaxtar og þroska og fegurðar og veitir nýjum lífsstraumi inn í hverja sál. Aðalsmerki vorsins er líf. Hinu glæsilega sýslumannssetri að Ártúni hefur verið valinn saður í einu fegursta og tilkomumesta umhverfi íslenzkrar sveitar. Svipmikill og hár fjallahringur er út- vörður um víðáttumiklar og gróðursælar lendur. Breið og vatnsmikil á fellur rétt sunnan við túnið á sýslu- mannssetrinu og kveður straumþungan óð sinn þýtt og dreymandi. I litlu gili skammt ofan við túnið steyp- ist bjartur og tíginn foss fram af háu bergi og stillir hljóma sína í samræmi við strengjaspil árinnar og syng- ur um ástir og vordrauma. Ásta er komin að Ártúni og tekin við eldhússtörf- unum þar. Hildur, sýslumannsfrúin, er Ástu góð hús- móðir, og hún sér að Ásta vinnur verk sín vel og upp- fyllir með ágætum þær kröfur, sem hún gerir til eldhússtúkunnar sinnar. Þórður sýslumaður er hæg- látur og höfðinglegur í framkomu og vekur traust og virðingu við fyrstu kynni. Hann er oftast að heiman í embættiserindum, og Ásta kynnist honum lítið. Vinnu- Heima er bezt 245

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.