Heima er bezt - 01.09.1958, Side 2

Heima er bezt - 01.09.1958, Side 2
Eftir óþurrkana Sumarið, sem nú er næstum liðið, hefur verið íslenzk- um bændum býsna misgjöfult. Á Suður- og Vesturlandi hefur það verið gott til heyskapar, en á miklum hluta Norður- og Austurlands með afbrigðum kait og ó- þurrkasamt. Litlu áður en þetta er skrifað, eða um höf- uðdag, var á sumum bæjum varla nokkurt strá komið í hlöðu, en slíkt eru þó, sem betur fer, undantekningar. Bændur á Norður- og Austurlandi voru ekki vel við því búnir að mæta þessu erfiða sumri. Síðastliðinn vetur var víða mjög snjóþungur og gjaffrekur. Vorið var kalt, svo að seint greri. Sums staðar var síðustu ánum ekki sleppt af húsi fyrr en um miðjan júní og kúm auðvitað enn síðar. Síðan urðu bændur að beita túnin, svo að sláttur hófst ekki fyrr en með allra síðasta móti. í síðara hluta júlímánaðar var nokkur þurrkakafli, þó aldrei væri verulega hlýtt nema eina tvo daga með sól- skini og vestanátt. í þessum þurrkakafla náðu þeir, sem farnir voru að slá af fullum krafti, verulegu heymagni inn í hlöður, og þó einkum þeir, sem hafa stórvirkar vélar og súgþurrkun. En þeir, sem lítt eða ekki voru byrjaðir að slá fyrr en seinast í júlí eða enn síðar, hafa sáralitlum heyjum náð, því að á austanverðu Norður- landi og norðanverðu Austurlandi hefur varla nokkur heill þurrkdagur komið í ágúst. Nær allan þann mánuð var hæð yfir Grænlandi, en lægðir tíðar við Bretlands- eyjar, og hefur þessari loftstillingu fylgt þrálát úrkoma, þó misjafnlega mikil, og linnulausir kuldar, svo að fén- aður hefur naumast haldizt í högum. Lengi lifðu menn í voninni um, að um skipti á höfuð- daginn, 29. ágúst. Voru jafnvel nokkur teikn til þess á lofti, en þegar uppbirtan á höfuðdaginn reyndist aðeins svikaglenna, mun margur hafa orðið fyrir sárum von- brigðum. En þá var eftir síðasta vonin, messudagur hins heilaga Egidiusar, 1. september. Og þá birti. Er nú ekki annað sýnna en nokkur bati ætli að fylgja Egidiusar- messu. Állt um það verður heyskapur á stórum svæðum norðan og austan aldrei nema lítill og langt undir meðal- lagi, svo að bændur sjá fram á að þurfa að fækka bú- stofni sínum mjög, enda fóðurbætir orðinn svo dýr, að fáir bændur hafa efni á að kaupa hann að nokkru ráði. Heyrzt hafa raddir um, að hið opinbera hlaupi undir bagga, þar sem verst stendur á, og er það að sjálfsögðu eðlilegt, að slíkar hugmyndir komi fram. En víst munu bændur helzt vilja standa óstuddir af sér þessa hríð, enda þyrfti'landbúnaðurinn að vera svo traustur, að hann þyldi vandræðalaust eins árs harðindi. Raunar má segja, að tímabilið frá 1949 hafi, þegar á heildina er litið, verið harðindakafli, a. m. k. samanborið við tímabilið frá 1939 —1949, en þá var árferði jafnan mjög gott. Þegar sumar eins og það, sem nú er á enda, dynur yfir, verður mörgum að spyrja: Hvað er hægt að gera til að tryggja Iandbúnaðinn gegn skakkaföllum af óhag- stæðri tíð? Þó að Ijómi sé yfir orðum Stephans G. um bóndann, sem á allt sitt undir sól og regni, þá er örygg- iskrafa nútímans slík, að menn sætta sig ekki við, að lífsafkoma heilla stétta sé komin undir duttlungum veðurguðanna. Vissulega hefur um margt stefnt í ör- yggisátt, og á ótrúlega skömmum tíma hafa bændur lyft Grettistaki til að treysta afkomu sína, svo sem með stór- aukinni véltækni og votheysgerð. Er votheysgerðin þó víða ótrúlega lítil enn, þrátt fyrir ágæta reynslu þeirra, er hana hafa mesta. Hana þyrfti víða að auka að miklum mun, og hafi bændur einnig súgþurrkun, þarf veðrátta að vera með afbrigðum vond, svo að afkomu þeirra sé ógnað. En svo vaknar einnig sú spurning, hvort íslenzkur landbúnaður sé ekki um of einhæfur. Er ekki óvarlegt að byggja afkomu sína nær eingöngu á grasrækt. Ræktun matjurta og korns myndi að vísu ekki ganga vel í sumr- um sem þessum, en þá er enn eftir eitt, sem þyldi slíka veðráttu og gjarna mætti hugleiða í þessu sambandi, og það er skógræktin. Norskir bændur hafa plantað nytja- skóg á jarðeignum sínum, og eftir nokkra áratugi hefur þar staðið milljónavirði í trjáviði. Er ekki eitthvað svipað hugsanlegt hér? Vissulega verður nytjaskógur ekki ræktaður á jafnskömmum tíma og nýræktarspilda með grasi. En í vaxinni skógarspildu er fólginn mikill og varanlegur auður. Og bændur skilja manna bezt það, sem Stephan G. kvað um: „að hugsa ekki í árum, en öld- um“. Hugsjón ræktandans lýsir sér fagurlega í vísubroti brautryðjanda íslenzkrar garðræktar, sr. Bjöms Hall- dórssonar í Sauðlauksdal: Einhver kemur eftir mig, sem hlýtur. Bið ég honum blessunar, þá bústaðar minn nár í moldu nvtur. 292 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.