Heima er bezt - 01.09.1958, Blaðsíða 5

Heima er bezt - 01.09.1958, Blaðsíða 5
Og svo flettum við rímunum. Þarna er ein sam- hent: „Hitti að bragði Satan sinn, sönn 'fram lagði skilríkin. Glóðaflagða gramurinn Grím þá sagði velkominn." NÚ BARST TALIÐ að norðlægum slóðum. „Sjáðu nú til,“ sagði Vilhjálmur og gekk um gólf, eins og tii áherzlu. „Þegar ég var í heimskautalöndun- um og leit yfir heiminn í huganum, þá sá ég San Fran- cisco x suðurátt. Er farið var vestar, sá ég Japan og Kína í suðurátt, Rússland, Frakkland og England. Svo hélt ég í huganum yfir hafið... ísland var í suðurátt, Nýfundnaland og New York. Þá fyrst skildi ég, að ég var á miðdepli jarðar.“ Nú bandaði Vilhjáliuur hendinni, eins og háskóla- prófessor í fyrirlestri. Það var eins og hann væri búinn að endurtaka þetta nokkrum sinnum áður.. . og vafa- laust var það svo. „Fyrir rúmum tvö þúsund árum var Miðjarðarhafið miðdepill heimsins, Mare Nostrum. Það var á veldis- dögum Rómar og Karþagó. Þær stóðu andspænis hvor annarri við hafið, og það gekk á með skini og skúrum í sambúðinni. Og svipað er það í dag. Norður-íshafið er Miðjarðarhaf nútímans. Róm og Karþagó okkar daga eru Bandaríkin og Canada öðrum megin við heimskautið, en Rússland og leppríki þess hinum rnegin, og það eru skin og skúrir í sambúðinni, eins og við vitum. Norðurheimskautssvæðið verður íuikilvægara með hverjum deginum. Ef til þriðju heimsstyrjaldar- innar kemur, þá verður hún fyrst og fremst háð með fjarstýrðum flugskeytum yfir heimskautið. Á friðar- tímum gegnir það ómetanlegu hlutverki. Þar er gnótt hráefna til kjarnorkuframleiðslu, gnægðir kola, járns og olíu.“ Og augun gneistuðu. „Stórkostleg framtíð!“ EKKI TREYSTI Vilhjálmur sér til að kveða upp úr með það, hvert væri iuinnisstæðasta atvikið frá heiiu- skautaferðunum, enda var það varla von. Úr of mörgu var að velja. En greinilega mat hann mikils kynnin við Suðurpólsfarann og Norðiuanninn Roald Amundsen, þótt þeir væru andstæðingar um tíma. „Eg hitti Amundsen fyrst fyrir rúmum fimmtíu ár- unx á heimskautinu um borð í skipi hans Gjöa. Annars var honum alls ekki vel við mig á köflum. Flann sagði, að ég skrifaði tóma lygi og falsanir. Flestar bækur mín- ar væru byggðar upp af hreinum hindurvitnum og Sofðu unga ástin min . . . Evelyn og Vilhjálmur Stefánsson. Heima er bezt 295

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.