Heima er bezt - 01.09.1958, Side 6
Vilhjálmur sýnir islenzkurn stúdentum i Dartmouth nýjustu bók sina, „The Fat of the Land“. — Stúdentarnir eru Kristinn
Hallgrimsson frá Reykjavík og Jósef H. Þorgeirsson frá Akranesi. Frú Evelyn stendur fyrir aftan mann sinn.
(Ljósm. The Dartmouth, clzta háskólablað i Ameriku).
kreddum. í sjálfsævisögu sinni skrifar hann aldrei öðru-
vísi en „uppgötvanir“ Vilhjálms Stefánssonar, og hend-
ir gaman að kenningum mínum um Ijósu Eskimóana.
,Vilhjálmur hefur aldrei lifað af landinu,1 segir hann
um mig.“ Og nú hló Vilhjálmur, lengi og hjartanlega.
„Lestu þennan kafla,“ sagði hann, „hann er skemmti-
legur, reglulega skemmtilegur."
OG SVO KOM hann með ævisögu Suðurpólfarans,
fletti og brosti.
„Annars vorum við góðir vinir. Hann drukknaði við
að hjálpa öðrum. ítalska leiðangursstjórans Nobile var
saknað, og flugvél var send til að leita hans. Amundsen
fór með, en vélin steyptist í hafið fyrir norðan Noreg.
Já, við vorum góðir vinir... En nú er bezt að ég fái
að heyra fréttir frá íslandi... Hvemig gengur Asgeiri
forseta? Hefur hann verið endurkjörinn? Eða Jóni Dúa-
syni við endurheimt Grænlands? Hvernig er með flokk
Vilhjálms Þór? Er ekki mikið flogið á Islandi? Gaman
væri að koma aftur til Íslands. Við hjónin tölum mikið
saman á íslenzku. Konan mín syngur meira að segja.
Þú ættir að heyra hana syngja ,Góða tungl‘ og ,Sofðu
unga ástin mín‘. Við ferðuðumst mikið á íslandi. Einu
sinni ferðaðist ég með frænda mínum, Jónasi frá Hriflu,
austur að Klaustri, og þá var nú tekið lagið, maður.
Jónas er sterkur söngmaður. Annars hefur Jónas boðið
mér legstað á Þingvöllum---en það er ekki ákveðið
enn.-------Einu sinni reyndi ég að koma á föstum
flugferðum við ísland. Pan American-flugfélagið hafði
eitt sinn einkarétt á öllu flugi út til íslands, en félagið
afsalaði sér réttindunum.--Nú fljúga þeir víst mikið
á íslandi. Er það ekki?“
ÞEGAR VILHJÁLMUR HAFÐI fengið allar upp-
lýsingar um flugið, snerist talið að Grænlandi.
„Það er slæmt, hve málstaður Jóns Dúasonar hefur
fengið lítið fylgi. Athyglisverður maður, mjög athyglis-
verður.----Þú hefur kannske ekki heyrt það, að einu
sinni vildu einhverjir íslendingar fá mig fyrir forseta?
Menn skrifuðu um mig í blöðin. Gunnar Thoroddsen,
sem þá var mjög ungur, stakk upp á því í grein, að ég
(Framhald á bls. 299).
296 Heima er bezt